DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!

Áferðaprjón

Langar þig að læra að prjóna fallega áferð? Við erum með kennslumyndbönd til að leiðbeina þér í því að búa til kúlur, kaðla, perluprjón, stroffprjón, brómberjamynstur, öldumynstur og margar fleiri glæsilegar aðferðir.

Myndbönd: 264
25:37
Hvernig á að prjóna kaðal sem er hjartalaga

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum kaðal sem er hjartalaga. Við prjónum kant í hvorri hlið með 2 lykkjur slétt = kantlykkjur og við höfum nú þegar fitjað upp 24 lykkjur og prjónað 2 umferðir slétt. Við byrjum myndbandið á að sýna allar umferðirnar frá 1-12. Eftir það sýnum við kaðalinn sem er prjónaður 3 sinnum. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 2 lykkjur slétt (= kantlykkjur), 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt, 4 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt (= kantlykkjur). : UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 + 4 lykkjur slétt, 12 lykkjur brugðið, 4 + 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni, 4 lykkjur slétt, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 4 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt (= kantlykkjur). UMFERÐ 4: Prjónið 2 + 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 4 + 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni, 2 lykkjur brugðið, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 2 lykkjur brugðið, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 3 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 6: Prjónið 2 + 3 umferðir slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 3 + 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 7: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni, 3 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 8: Prjónið 2 + 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 2 + 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 9: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt. UMFEÐR 10: Prjónið 2 + 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 2 + 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 10: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlarpjóni, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni, 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 12: PRJÓNIÐ 2 + 4 lykkjur slétt, 12 lykkjur brugðið og 4 + 2 lykkjur slétt. Endurtakið umferð 3-12 að óskaðri lengd og fellið af. Við notum DROPS Snow í myndbandinu, en litlu bleiku prufurnar eru prjónaðar úr DROPS Cotton Merino, kaðallinn er einnig prjónaður 3 sinnum. Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.

10:40
Hvernig á að prjóna gatamynstur með öldumynstri

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum öldumynstur með gatamynstri. Þetta fallega öldumynstur er hægt að nota m.a. í hálsklúta. Við höfum valið að sýna tvær mynstureiningar á breiddina með 2 kantlykkjur í hvorri hlið. Til þess að það sjáist vel það sem við höfum prjónað höfum við þegar prjónað 1 mynstureiningu á hæðina og myndbandið byrjar með fyrstu umferð í næstu mynstureiningu: UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur snúið brugðið, 8 lykkjur slétt *, endurtakið frá og endið á 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið. UMFERÐ2 og allar umferðir frá röngu: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið að síðustu 2 lykkjum, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (umferð 4,6,8 og 10 er spólað hratt yfir á myndbandinu). UMFERÐ 3: Lyftið 1 lykkju af prjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur snúnar saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið á 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið. UMFERÐ 5: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l slétt, 1 lykkja brugðið. UMFERÐ 7: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið á 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið. UMFERÐ 9: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, * 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt saman (= lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir yfir), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið á 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið. UMFERÐ 10: Prjónið á sama hátt og brugðnu umferðirnar.