Hvernig á að prjóna upp tapaða lykkju í klukkuprjóni og setja aftur til baka upp á prjóninn
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við setjum tapaðar lykkjur í klukkuprjóni með uppslætti aftur á prjóninn. Í myndbandinu sýnum við klukkuprjón þannig: KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1: 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið á 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2: 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið saman uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið á að slá 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi bruðgið, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 3: 1 lykkja garðaprjón, * prjónið saman uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið saman uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt, 1 lykkja garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.