Hvernig á að prjóna MYNSTUR í DROPS 182-1
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig prjóna á MYNSTUR í húfu «Very Berry» í DROPS 182-1. Við höfum nú þegar prjónað nokkra cm stroff og byrjum myndbandið með 1. umferð MYNSTUR.
1.-12. UMFERÐ: Slétt frá réttu, brugðið frá röngu.
13. UMFERÐ (frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt.
14. UMFERÐ (frá röngu): Prjónið slétt. Endurtakið þessar 14 umferðir upp úr.
RS = frá réttu WR= frá röngu.
Þessi húfa er prjónuð úr DROPS Baby Merino, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.