Í þessu DROPS myndbandinu prjónum við eftir DROPS 253-61, en sama aðferð er notuð í öðrum DROPS mynstrum.
Við höfum nú þegar prjónað hettuna (stærð L/XL) og höfum sett lykkjurnar á 2 lykkjuhaldara / þráð. Við sýnum fyrst hvernig við prjónum upp lykkjur í kringum hettuna og prjónum i-cord affellingu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Þessar 2 lykkjur eru settar á annan lykkjuhaldara / þráð, en það eru prjónaðar upp 2 lykkjur í hinni hliðinni sem eru settar á hinn lykkjuhaldarann / þráð.
Lesið I-CORD AFFELLING í uppskriftinni. Það eru eftir 2 lykkjur á prjóni þegar kanturinn hefur verið prjónaður til loka, klippið þráðinn og setjið 2 lykkjur á lykkjuhaldara / þráð. Takið upp 2 nýjar lykkjur í hinni hliðinni á hettunni og setjið þær á lykkjuhaldara / þráð. Setjið lykkjurnar frá hinum lykkjuhaldaranum / þræðinum yfir á prjóninn.
Síðan sýnum við hvernig við fitjum upp lykkjur fyrir hægri hluta á hálsklútnum, prjónum 1 umferð áður en hálsklúturinn er prjónaður saman með hettunni með byrjun fyrir miðju að aftan. Jafnframt eru prjónaðar i-cord kantlykkjur og stroffprjón í perluprjóni. Lesið nánari útskýringu í uppskrift í útskýringu á I-CORD AFFELLING, 2 I-CORD KANTLYKKJUR, stroffprjón í perluprjóni og hvernig prjóna á hálsklútinn saman við hettuna.
Þegar allar lykkjur hafa verið prjónaðar upp frá hettunni (50 prjónaðar umferðir), þá eru eftir 2 lykkjur á lykkjuhaldara / þræði (í myndbandinu eru þær settar á prjóninn), prjónið þessar 2 lykkjur slétt (í stærð S/M eru 3 lykkjur settar aftur á þráðinn, prjónið 1 lykkju slétt og 2 síðustu lykkjurnar slétt saman).
Eftir þetta er prjónuð 1 umferð frá röngu þar sem prjónaðar eru 2 i-cord kantlykkjur, 2 lykkjur brugðið saman, eftir það stroffprjón í perluprjóni þar til 3 lykkjur eru eftir, þá er prjónuð 1 lykkja brugðið og endað með 2 i-cord kantlykkjur.
Fylgið útskýringu í uppskrift hvernig fella á af þeim lykkjum sem eftir eru í hægri hluta á hálsklút. Við sýnum 1. umferð (frá réttu) af 8 fyrstu umferðum, þá sýnum við 1. umferð með úrtöku (frá réttu).
Prjónið síðan vinstri hluta á hálsklút. Eftir það er uppfitjunarkanturinn á hægri hluta og vinstri hluta á hálsklútnum saumaður saman fyrir miðju að aftan með lykkjuspori.
Við notum garnið DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk í myndbandinu, sama liti og prjónastærð eins og stendur í uppskrift.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
I have knitted the left side of hood tail multiple times and can not get it to work. Is it reversed? Is it done on the purl/wrong side? I just can not get it to work and the video just says do as right side but I can’t figure it out Thank you
23.01.2026 - 22:12DROPS Design :
Dear Theresa, which pattern are you working? Since this technique can be used in multiple patterns it's possible that the video, modelled after pattern 253-61, has some slight differences compared to other patterns. The scarf is worked very similarly in the right side and the wrong side but you start on the right side for the right part of the scarf and you start on the wrong side for the left side of the scarf, as explained in the text instructions. Happy knitting!
25.01.2026 - 16:07Moje pytanie jest podobne do poprzedniego komentarza. Czy możecie pokazać jak zrobić kaptur?
05.12.2025 - 21:30DROPS Design :
Witaj Natalio, najpierw wykonujesz prostokąt na górę głowy (od czoła do tyłu), odcinasz nitkę i zdejmujesz oczka na nitkę lub drut pomocniczy. Teraz trzymając robótkę rzędem nabierania oczek do siebie, nabierasz oczka wzdłuż prawego boku prostokąta (korzystając z nowej nitki - postępując od rzędu nabierania oczek do oczek na drucie pomocniczym), przerabiasz oczka na nitce/drucie pomocniczym i nabierasz oczka wzdłuż drugiej strony prostokąta (od oczek na drucie pomocniczym do rzędu nabierania oczek). Dalej przerabiasz prosto w dół i kaptur gotowy. Pozdrawiamy!
11.12.2025 - 09:51Could you perhaps also show how to knit the hood? I’m struggling to get the second step correctly done
30.11.2025 - 09:59