DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!

Þú gætir líka haft gaman af...

Video thumbnail for Hvernig á að prjóna hettuhálsklút í DROPS 253-61
20:09
Hvernig á að prjóna hettuhálsklút í DROPS 253-61

Í þessu DROPS myndbandinu höfum við nú þegar prjónað hettuna (stærð L/XL) og höfum sett lykkjurnar á 2 lykkjuhaldara / þráð. Við sýnum fyrst hvernig við prjónum upp lykkjur í kringum hettuna og prjónum i-cord affellingu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Þessar 2 lykkjur eru settar á annan lykkjuhaldara / þráð, en það eru prjónaðar upp 2 lykkjur í hinni hliðinni sem eru settar á hinn lykkjuhaldarann / þráð. Lesið I-CORD AFFELLING í uppskriftinni. Það eru eftir 2 lykkjur á prjóni þegar kanturinn hefur verið prjónaður til loka, klippið þráðinn og setjið 2 lykkjur á lykkjuhaldara / þráð. Takið upp 2 nýjar lykkjur í hinni hliðinni á hettunni og setjið þær á lykkjuhaldara / þráð. Setjið lykkjurnar frá hinum lykkjuhaldaranum / þræðinum yfir á prjóninn. Síðan sýnum við hvernig við fitjum upp lykkjur fyrir hægri hluta á hálsklútnum, prjónum 1 umferð áður en hálsklúturinn er prjónaður saman með hettunni með byrjun fyrir miðju að aftan. Jafnframt eru prjónaðar i-cord kantlykkjur og stroffprjón í perluprjóni. Lesið nánari útskýringu í uppskrift í útskýringu á I-CORD AFFELLING, 2 I-CORD KANTLYKKJUR, stroffprjón í perluprjóni og hvernig prjóna á hálsklútinn saman við hettuna. Þegar allar lykkjur hafa verið prjónaðar upp frá hettunni (50 prjónaðar umferðir), þá eru eftir 2 lykkjur á lykkjuhaldara / þræði (í myndbandinu eru þær settar á prjóninn), prjónið þessar 2 lykkjur slétt (í stærð S/M eru 3 lykkjur settar aftur á þráðinn, prjónið 1 lykkju slétt og 2 síðustu lykkjurnar slétt saman). Eftir þetta er prjónuð 1 umferð frá röngu þar sem prjónaðar eru 2 i-cord kantlykkjur, 2 lykkjur brugðið saman, eftir það stroffprjón í perluprjóni þar til 3 lykkjur eru eftir, þá er prjónuð 1 lykkja brugðið og endað með 2 i-cord kantlykkjur. Fylgið útskýringu í uppskrift hvernig fella á af þeim lykkjum sem eftir eru í hægri hluta á hálsklút. Við sýnum 1. umferð (frá réttu) af 8 fyrstu umferðum, þá sýnum við 1. umferð með úrtöku (frá réttu). Prjónið síðan vinstri hluta á hálsklút. Eftir það er uppfitjunarkanturinn á hægri hluta og vinstri hluta á hálsklútnum saumaður saman fyrir miðju að aftan með lykkjuspori. Við notum garnið DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk í myndbandinu, sama liti og prjónastærð eins og stendur í uppskrift.

Video thumbnail for Hvernig á að prjóna handstúkur með kaðli í DROPS 234-55
18:42
Hvernig á að prjóna handstúkur með kaðli í DROPS 234-55

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum vinstri handstúkuna með kaðli í DROPS 234-55. Við höfum nú þegar fitjað upp 50 lykkjur og prjónað stroff í 2 cm (1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið). Eftir það sýnum við: 1) Hvernig 12 lykkjurnar í A.1 eru prjónaðar. 2) Hvernig prjónamerki er sett eftir 38 lykkjur. – Eftir það er haldið áfram með mynstur og sléttprjón hringinn. 3) Hvernig umferð 3 í mynsturteikningu A.1 er prjónuð (kaðall með kaðlaprjóni). 4) Hvernig fækka á lykkjum í fyrsta skipti hvoru megin við prjónamerki (þegar stykkið mælist 3 cm). – Eftir það er A.1 prjónað 2 sinnum á hæðina + 3 fyrstu umferðir í A.1. 5). Hvernig prjónamerki er sett í 6. lykkju í A.1 og hvernig mynstrið er prjónað jafnframt því sem aukið er út hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt og mynstrið eins og áður. Eftir það er haldið áfram með mynstur og útaukningu fyrir op fyrir þumal eins og útskýrt er í mynstri. 6) Þegar stykkið mælist 16 cm eru prjónaðar upp 5 lykkjur eftir mynsturteikningu, næstu 13 lykkjur (fyrir op fyrir þumal) eru settar á þráð, fitjuð er upp 1 ný lykkja aftan við þumal og næstu 6 lykkjur eru prjónaðar eftir mynsturteikningu. 7) Hvernig prjónað er eftir 1. umferð í mynsturteikningu «aftan við» op fyrir þumal. 9) Hvernig stroffið, 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið er prjónað þegar stykkið mælist 18 cm. – Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. 10) Setjið 13 lykkjurnar af þræði til baka á sokkaprjónana. 11) Hvernig prjónaðar eru upp 3 lykkjur í kanti á bakhlið á þumallykkjum. – prjónið stroff yfir þumallykkjur í 2 cm og fellið af. Þessar handstúkur eru prjónaðar úr DROPS Merino Extra Fine, sama garni og við notum í myndbandinu. Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.