Hvernig á að hekla þríbrugðinn og fjórbrugðinn stuðul sem er í 5. vísbendingu DROPS Mystery blanket
Í þessu myndbandi sýnum við hvernig hekla á þríbrugðna stuðla og fjórbrugðna stuðla sem eru í 5. vísbendingu í DROPS Mystery blanket Spring Lane.
Þetta teppi er heklað úr DROPS ♥ You #8, en í myndbandinu heklum við með grófara garni; DROPS Snow.
1= ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL: Bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina eins og útskýrt er í uppskrift, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn undir kúluna (= 5 lykkjur á heklunálinni), * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu/næstu lykkjur á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni.
2= FJÓRBRUGÐINN STUÐUL: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, færið heklunálina í kringum lykkjuna eins og útskýrt er í uppskrift/sjá í mynsturteikningu hvernig línan liggur, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn undir þríbrugðna stuðulinn (= 6 lykkjur á heklunálinni), ** bregðið þræðinum um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu/næstu lykkjur á heklunálinni **, endurtakið frá **-** alls 5 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni.
Til að lesa meira um DROPS CAL Spring Lane sjá: Vertu með í DROPS Along