Hvernig á að sauma saman ferninga í DROPS 198-3
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við saumum saman 2 ferninga í teppinu Garden Patches í DROPS 198-3. Saumað er í ystu lykkju í hverjum ferningi. Stingið nálinni niður á milli liða í lykkju í fyrstu lykkju á fyrri ferningi og upp á milli liða á lykkju við hliðina (= í sama ferning). Stingið því nálinni næst á milli liða á lykkju á fyrstu lykkju á seinni ferningi og upp á milli liða á lykkju í næstu lykkju (= í sama ferning). Haldið áfram að sauma svona sikk sakk þar til allir ferningarnir hafa verið saumaðir saman.
Þetta teppi er heklað úr DROPS Cotton Merino, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.