DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!

Kennslumyndbönd

Myndbönd: 1735
5:56
Hvernig á að prjóna hálfan dominoferning (láréttan)

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum hálfan dominoferning (láréttan). Við höfum nú þegar tekið upp lykkjur meðfram öðrum kantinum á ferningnum og lárétti ferningurinn er undir. Við höfum einnig sett prjónamerki í miðjulykkju. Nú er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, en síðasta lykkjan er ekki prjónuð, hún er sett á þráð/nælu, snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið slétt út umferðina en síðasta lykkjan er ekki prjónuð, hún er sett á þráð/nælu, snúið við. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju á ferningi í annarri hverri umf (rétta), JAFNFRAMT er síðasta l sett á þráð/nælu í hverri umferð. Haldið áfram þar til það eru 3 eða 4 lykkjur eftir á prjóni (í þessu myndbandi höfum við 4 lykkjur eftir). Í næstu umferð (= rétta) er prjónað þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, setjið síðustu lykkju í umferð á þráð (ef þú hefur 4 lykkjur eftir) = 1 lykkja eftir á prjóni. Nú höfum við 5 lykkjur á þræði hvoru megin við miðjulykkju. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru á prjóni. Í þessu myndbandi setjum við lykkjurnar (= 11 lykkjur) á prjóninn til þess að sýna hvernig þessi hálfi ferningur lítur út. Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.

11:34
Hvernig á að prjóna sérstakan kaðal án kaðlaprjóns

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum kaðal sem er aðeins öðruvísi en þessi hefðbundni kaðall. Fitjið upp fjölda lykkja sem er deilanlegur með 9+2 +2 (= 1 lykkja í hvorri hlið). Við höfum fitjað upp 18+2 +2 lykkjur = 2 kaðlar. Kantlykkjur eru prjónaðar slétt í hvorri hlið í hverri umferð. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt í næstu lykkju, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur slétt í næstu lykkju, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, leggið þráðinn framan við stykkið og steypið næstu 7 lykkjum yfir á hægri prjón, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja. UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju, * 2 lykkjur brugðið, sleppið 2 næstu lykkjum af vinstri prjóni (leggið þær aftan við), setjið 3 næstu lykkjur á hægri prjón, setjið til baka 2 lausar lykkjur á vinstri prjón, setjið til baka 3 lykkjur á hægri prjón yfir á vinstri prjón og prjónið þessar snúnar slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, sleppið 3 næstu lykkjum af vinstri prjón (leggið þær framan við), setjið 2 næstu lykkjur á hægri prjón, setjið til baka 3 lausu lykkjurnar á vinstri prjón, setjið til baka 2 lykkjur á hægri prjón yfir á vinstri prjón, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur snúnar slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja. UMFERÐ 4: Prjónið 1 kantlykkju, 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, steypið næstu lykkju yfir á hægri prjón, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og prjónið 1 kantlykkju. Endurtakið umferð 1-4 að óskaðri lengd. Við notum garnið DROPS Snow í myndbandinu. Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.