DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 frábærum garntegundum!

Mynstur kennslumyndbönd

Við höfum nokkur hundruð skref-fyrir-skref kennslumyndbönd til að leiðbeina þér við að prjóna og hekla nokkur af vinsælustu mynstrunum okkar.

Myndbönd: 983
10:18
Hvernig á að prjóna kant á sjali, jafnframt því að fella af

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum kant á sjali jafnframt því sem við fellum af. Þegar lykkjur af sjali hafa verið prjónaðar, á ekki að snúa stykkinu, fitjið upp 14 nýjar lykkjur fyrir kant á sjali frá röngu. Snúið við, prjónið 1 umferð slétt yfir 14 nýju lykkjurnar (= rétta), snúið stykkinu við og prjónið áfram eftir mynstri = 1 umf í mynstureiningu frá röngu. Í þessu myndbandi höfum við prjónað fyrstu umferðina á kanti. Við byrjun nú á annarri umferð af kantmynstri: UMFERÐ 1 = ranga: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur saman slétt og prjónið garðaprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur saman slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn (= 2 lykkjur), 2 lykkjur slétt. Snúið stykki. UMFERÐ 2 = rétta: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið annan uppsláttinn af þeim tveimur sem voru slegnir uppá prjóninn, sá seinni er steyptur niður af prjóni, prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir að kantlykkjum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur saman slétt og prjónið nú saman síðustu kantlykkjuna slétt með fyrstu lausu lykkjunni af sjali. Snúið við og prjónið UMFERÐ 3 í mynstri o.s.frv. Í síðustu umferð frá réttu, fellið af fyrstu 8 kantlykkjurnar, prjónið síðan afgang eftir mynstri = 14 lykkjur á prjóni og endurtakið aftur mynstur. Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.

25:18
Hvernig á að prjóna sjal í DROPS 143-5

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum sjal með garðaprjóni og mynstri í DROPS 143-5. Við höfum fitjað upp 9 lykkjur og sett 1 prjónamerki í miðju lykkju. Við prjónum nú þannig (= rétta): 3 lykkjur slétt, sláið uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt = 11 lykkjur. Prjónið nú slétt í hverri umferð JAFNFRAMT sem aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð frá réttu þannig: Sláið uppá prjóninn innan við 3 lykkjur með garðaprjóni á hvorri hlið og sláið upp á prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat: 3 lykkjur slétt, sláið uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt = 11 lykkjur. Prjónið nú slétt í hverri umferð JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð frá réttu þannig: Sláið uppá prjóninn innan við 3 lykkjur garðaprjón á hvorri hlið og sláið uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat. Við aukum út um 39 lykkjur (spólum hratt). Eftir það sýnum við 1 mynstureiningu á hæðina á mynsturteikningu A.1 og A.2 með A.1 til hægri um miðju og A.2 til vinstri. Að lokum sýnum við hvernig við fellum af með uppslætti: * Fellið af 3 lykkjur, sláið síðan uppá hægri prjón, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* út umferðina. Þetta sjal er prjónað úr DROPS Lace, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow. Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú getur séð þetta mynstur með því að smella á myndina að neðan.