DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!

Hekl myndbönd

Lærðu að hekla með frábæru kennslumyndböndunum okkar! Við erum með allt frá kennslumyndbönd fyrir byrjendur með grunnaðferðum til aðferða sem eru meira tæknilega útfærðar, sem og skref-fyrir-skref myndbönd til að leiðbeina þér í gegnum nokkur af vinsælustu fríu heklumynstrunum okkar.

Myndbönd: 283
20:33
Hvernig á að klippa upp peysu með 6 mismunandi köntum að framan

Mörgum þykir erfitt að klippa í prjónað stykki, á meðan aðrir hafa ekki áhyggjur af því og klippa jafnvel upp stykkið án þess að sauma á undan með saumavél eða að hekla kant áður en klippt er. Þú VERÐUR að lesa textann að neðan til að fá betri yfirsýn og skilning á myndbandinu. Í þessu DROPS myndbandi notum við DROPS Nepal og sýnum 3 mismunandi aðferðir að sauma/ festa enda áður en maður klippir. Við sýnum einnig 6 mismunandi kanta að framan. Við sýnum ekki hvernig kantarnir að framan eru prjónaðir í þessu myndbandi. Í sýnishornunum í myndbandinu höfum við 7 «uppklippilykkjur» sem við prjónum með öðrum lit og við höfum merkt miðjulykkjuna með þræði í öðrum lit. Það er hægt að hafa færri eða fleiri «uppklippilykkjur». Það er regla að í mynstri á peysu er útskýrt hvernig prjónað er fram og til baka, þannig að þessar «uppklippilykkjur» eru ekki útskýrðar í mynstri, heldur verður maður að bæta þeim við. Í sýnishorni A og B er hekluð umferð með fastalykkjum í gegnum uppklippilykkju, á meðan sýnishorn C, D, E og F er notuð saumavél áður en klippt er upp. Í sýnishorni A eru heklaðir hálfur 3. og hálfur 4. lykkjubogar saman, á meðan sýnishorn B eru heklaðir hálfur 4. og hálfur 5. lykkjubogar saman. Það er saumaður sikk sakk saumur á C og D og sikk sakk saumur + 1 beinn saumur á E og F. Yfirlit yfir mismunandi kanta að framan: A) Uppklippikanturinn er heklaður með fastalykkjum með þynnri þræði en sjálft stykkið (notið þynnri þráð en stykkið sjálft og sömu gerð ef það er mögulegt, í þessu myndbandi notum við DROPS Flora litur nr. 19 kórall). Kanturinn er ein löng, laus lengja prjónuð í garðaprjóni sem saumuð er niður á stykkið, passið uppá að kanturinn að framan verði ekki of langur né of stuttur í samanburði við stykkið sjálft. Brúnin-kantur er saumað beint á stykkið á röngu. B) Uppklippikanturinn er heklaður með fastalykkjum með þynnri þræði en sjálft stykkið (notið þynnri þráð en stykkið sjálft og sömu gerð ef það er mögulegt, í þessu myndbandi notum við DROPS Flora litur nr. 19 kórall). Kanturinn að framan er prjónaður í eitt stykki þannig: Hálfur í stroffi sem verður kantur að framan (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni yst) og hálfur í sléttprjóni sem verður kantur á bakhlið. Kantur að framan er saumaður niður á stykkið og sléttprjónaði hlutinn er lagður yfir brúnina-kant og saumaður niður frá röngu. C) Uppklippikanturinn er saumaður með sikk sakk saumi í saumavél, ca 0,5–1,0 cm frá þar sem klippa á upp. Við kant að framan hafa verið prjónaðar upp lykkjur í fyrstu lykkju í sjálfu stykki, þar sem hoppað var yfir ca 4. hverja lykkju/umferð á hæðina, svo að kanturinn að framan verði ekki of langur í samanburði við stykkið sjálft. Kanturinn að framan er prjónaður í garðaprjóni að óskuðu máli og felið brúnina-kant með fallegum borða. D) Uppklippikanturinn er saumaður með sikk sakk saum í saumavél, ca 0,5–1,0 cm frá þar sem klippa á upp. Við kant að framan hafa verið prjónaðar upp lykkjur í fyrstu lykkju í sjálfu stykkinu, þar sem hoppað var yfir ca 4. hverja lykkju/umferð á hæðina, þannig að kanturinn að framan verði ekki of langur í samanburði við stykkið sjálft. Kanturinn að framan er prjónaður í sléttprjóni að óskuðu máli, eftir það 1 umferð brugðið (uppábrot) og síðan aftur sléttprjón. Síðasti hlutinn sem er prjónaður í sléttprjóni á að leggja yfir brúnina-kant og sauma niður. E) Uppklippikanturinn er saumaður með 1 beinum saum yfir sikk sakk saum í saumavél (= saumar), ca 0,5-1,0 cm frá þar sem klippa á upp. Við kant að framan hafa verið teknar upp lykkjur í fyrstu lykkju í sjálfu stykkinu, þar sem hoppað var yfir ca. 4. hverja lykkju/umferð á hæðina, þannig að kanturinn að framan verði ekki of langur í samanburði við stykkið sjálft. Kanturinn að framan er prjónaður í stroffi, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið að óskuðu máli og brúnin-kantur er falinn með fallegum borða. F) Uppklippikanturinn er saumaður með 1 beinum saum yfir sikk sakk saum í saumavél (= 2 saumar), ca 0,5-1,0 cm frá þar sem klippa á upp. Við kant að framan hafa verið teknar upp lykkjur í fyrstu lykkju í sjálfu stykkinu, þar sem hoppað var yfir ca 4. hverja lykkju/umferð á hæðina, þannig að kanturinn að framan verði ekki of langur í samanburði við stykkið. Kanturinn að framan er prjónaður í stroffi ( 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) að óskuðu máli. Á bakhlið er tekinn upp sami fjöldi lykkja í sömu lykkju og stroffkantur að framan og prjónaður er hluti í sléttprjóni sem leggja á yfir brún-kant og sauma niður. Við notum garnið DROPS Nepal í myndbandinu.