Hvernig á að hekla ferninga saman
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig hægt er að hekla ferninga saman. Heklið ferningana saman eða stykkin saman yst í kanti. Heklið 1 fastalykkju í horni á 1. ferningi, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkju í horni á 2. ferningi, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja á ská til baka að 1. ferningi, 2 loftlykkjur beint að 2. ferningi, 1 fastalykkja í 2. ferning *, endurtakið frá *-*.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.