Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við heklum ömmuferninga í teppinu Wrap With Love í DROPS Baby 21-27.
Heklið 6 loftlykkjur og tengið saman með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í hringinn, * 3 loftlykjur, 3 stuðlar *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 3 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: 1 keðjulykkja í hvorn af næstu 2 stuðlum, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í fyrstu loftlykkjubogann, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar í sama loftlykkjuboga (1. horn), * 2 loftlykkjur, 3 stuðlar í næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar í sama loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 2 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkjur frá byrjun umferðar.
UMFERÐ 3: 1 keðjulykkju í hvorn af næstu 2 stuðlum, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 3 stuðla í sama loftlykkjuboga (1. hornið), * 2 loftlykkjur, 3 stuðlar í næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar í sama loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 2 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Þetta teppi er heklað úr DROPS BabyAlpaca Silk, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Bonjour, est-ce 1ml ou 2ml qu'il faut faire dans la section à répéter? Il est écrit dans les explications du patrons par exemple: TOUR 2 *1 ml, 3 B dans l'arceau suivant, 3 ml et 3 B dans le même arceau *. et dans les explications du vidéos (et dans le vidéo lui-même): TOUR 2 *2 ml, 3 B dans l'arceau suivant, 3 ml, 3 B dans le même arceau* Merci.
08.07.2017 - 18:05DROPS Design :
Bonjour Paméla, crochetez juste 1 maille en l'air, comme indiqué dans les explications de ce modèle. Merci, bon crochet!
10.07.2017 - 10:49