Hvernig á að hekla barð á hatti í DROPS 167-7
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við heklum barðið á hatti í DROPS 167-7. Við heklum alls 5 endurtekningar af mynstri A.1 í umferð, en sýnum 2 fyrstu endurtekningarnar og spólum hratt yfir 3 síðustu til að spara tíma. Þessi hattur er heklaður úr DROPS Muskat, en í myndbandinu heklum við með grófara garni, DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.