Hvernig á að prjóna kant í hálsmáli í DROPS 187-14
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum kant í hálsmáli eftir mynsturteikningu A.4 í Adele peysunni í DROPS 187-14. Við höfum nú þegar prjónað 4 umferðir garðaprjón, 1 umferð slétt og 3 umferðir í mynsturteikningu A.4. Við byrjum í umferð 4 í mynsturteikningu = umferð með 2 lykkjur slétt saman og sláum 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð svo það myndist gat). Þegar umferð 7 hefur verið prjónuð til loka, prjónið 1 umferð slétt, áður en fellt er af þannig: Fellið af með sléttum lykkjum, en á undan 4 hverri lykkju er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er felldur af eins og lykkja.
Eftir þetta brjótum við stykkið saman við gataumferð í A.4 þannig að stykkið með uppábroti kemur innan við kantinn. Saumið affellingarkantinn við efstu umferð með garðaprjóni.
Þessi peysa er prjónuð úr DROPS Belle, en í myndbandinu notum við grófara garn: DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.