DROPS Alpaca Party - 13 tegundir af alpakka garni á afslætti í allan október!

Lærðu að prjóna

Lærðu hvernig á að prjóna með víðtæku safni okkar af prjónamyndböndum. Frá því að ná tökum á grunnaðferðum til að prjóna flókin gatamynstur, myndböndin okkar ná yfir allt! Þú getur lært vinsælar aðferðir eins og evrópskar axlir og axlasæti, auk ráðlegginga og tækniaðferða eins og að taka upp lykkjur og gera stuttar umferðir. Fullkomið fyrir prjónara á öllum stigum, kennsluleiðbeiningarnar okkar eru hannaðar til að hvetja og leiðbeina þér hvert skref á leiðinni!

Myndbönd: 598
17:18
Hvernig á að auka út fyrir laskalínu jafnframt því sem stuttar umferðir eru prjónaðar

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig aukið er út fyrir laskalínu á meðan prjónaðar eru stuttar umferðir. Setjið 4 prjónamerki í mynstrið sem þú prjónar og klippið þráðinn frá. Byrjið nú í vinstri hlið við hálsmál að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki og prjónið samkvæmt mynstri (sléttprjón / samkvæmt mynsturteikningu) og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir 4 prjónamerkjum þar til prjónaðar eru 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og stendur í mynstri og þegar stutta umferðin hefur verið prjónuð til loka er þráðurinn klipptur frá og þú byrjar að prjóna aftur frá miðju að aftan. Uppslátturinn / útaukningar eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynstri sem prjónað er eftir. Mundu að uppslátturinn / útaukningar eru prjónaðar mismunandi á undan og á eftir prjónamerkjum og þegar prjónað er frá réttu / röngu. Við notum garnið DROPS Snow í myndbandinu. Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.

9:45
Hvernig á að prjóna útaukningu fyrir axlarsæti fram og til baka

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum útaukningu fyrir axlarsæti fram og til baka, bæði frá réttu og frá röngu. Setjið 4 prjónamerki í stykkið og aukið út þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI (á við um frá réttu): Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Á UNDAN PRJÓNAMERKI: (á við frá röngu): Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Við notum garnið DROPS Snow í myndbandinu. Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.

5:50
Hvernig á að auka út í berustykki á stykki með axlarsæti

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við aukum í berustykki á stykki með axlarsæti með því að auka út um 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki 4 sinnum í sömu umferð = 8 lykkjur fleiri í 1 umferð. Þessi útauknings aðferð er m.a. notuð í «Country Muse» peysu í DROPS 216-40 og «Country Muse Cardigan» jakkapeysu í DROPS 216-39. Við höfum nú þegar prjónað kant í hálsmáli, útaukningu fyrir axlarsæti og útaukningu fyrir ermar á peysu og byrjum myndbandið á að færa til prjónamerkin fyrir útaukningu fyrir ermar að lykkjum sem auka á út framan við og aftan við, fyrir berustykki. Aukið út framan við og aftan við lykkjur með prjónamerki þannig: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferð að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjuboga, prjónið lykkju með prjónamerki í sléttprjóni eins og áður, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferð að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjuboga (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við lykkju með prjónamerki í). Peysan í DROPS 216-40 og peysan í DROPS 216-39 eru prjónaðar úr DROPS Lima, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow. Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

9:51
Hvernig á að auka út fyrir ermar á stykki með axlarsæti

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við aukum út fyrir ermi á stykki með axlarsæti með því að auka út um 2 lykkjur í hvorri ermi. Þessi útauknings aðferð er m.a. notuð í «Country Muse» peysu í DROPS 216-40 og «Country Muse Cardigan» jakkapeysu í DROPS 216-39. Við höfum nú þegar prjónað kant í hálsi og útaukningu fyrir axlarsæti á peysu og byrjum myndbandið á að færa til prjónamerkin fyrir axlarsæti þar sem auka á út lykkjum fyrir ermar. Aukið svona út á undan 1. og 3. prjónamerki: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og prjónaður slétt í fremri lykkjuboga (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út á eftir 2. og 4. prjónamerki: Notið vinstri prjón og takið upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp framan frá og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjuboga (= 1 lykkja fleiri). Næsta umferð er prjónuð slétt. Ef þetta er jakkapeysa þá er næsta umferð prjónuð brugðið frá röngu. Fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami, einungis er aukið út á ermum. Peysan í DROPS 216-40 og peysan í DROPS 216-39 eru prjónaðar úr DROPS Lima, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow. Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

8:38
Hvernig á að skipta framstykki og bakstykki og fella af fyrir axlalykkjum í klukkuprjóni

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við skiptum framstykki / bakstykki og hvernig við fellum af fyrir axlalykkjum, eins og í vestum í DROPS 210-4 og 217-13. Í peysunni 217-14 eru lykkjur ekki felldar af fyrir handveg, en axlalykkjurnar eru settar á þráð. Við höfum færri fjölda lykkja en sem stendur i uppskrift. Byrjið mitt að aftan og prjónið þann fjölda lykkja sem stendur í mynstri, við prjónum 13 lykkjur í klukkuprjóni, 1 lykkju slétt (garðaprjóns lykkja), eftir það fellum við af lykkjur fyrir 1. handveg (uppslátturinn fyrir klukkuprjóns lykkjur eru felldar af eins og eigin lykkja, svo að kanturinn verði ekki stífur). Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni (þessa lykkju hefur þú nú þegar á hægri prjóni). Prjónið klukkuprjónsmynstur yfir framstykki, 1 lykkja garðaprjón, fellið af fyrir 2. handveg, 1 lykkja garðaprjón og klukkuprjónsmynstur út umferðina. Klippið þráðinn frá og látið lykkjurnar fyrir framstykki hvíla á prjóni. Prjónið frá réttu (lykkjurnar eru nú færðar yfir á vinstri hlið á prjóni). Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, A.4 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið svona fram og til baka þar til réttu máli á mynstri hefur verið náð (passið uppá að síðasta umferðin sé frá röngu). Prjónið framstykki alveg eins og bakstykki (lykkjurnar eru færðar yfir á vinstri prjón). Vestin í DROPS 210-4 og 217-13 eru prjónuð úr DROPS Air, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow. Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

4:54
Evrópskt berustykki - stutt yfirlit. Hálsmál er lokið, ermalykkjur hafa verið prjónaðar upp

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við stutt yfirlit yfir hvernig á að prjóna flík með evrópsku berustykki, þar sem hálsmáli er lokið eftir að ermalykkjur hafa verið prjónaðar upp. Flíkin er prjónuð samkvæmt leiðbeiningum 1-5: 1) BAKSTYKKI: Fitjið upp lykkjur fyrir aftan við hnakka í hálsmáli og prjónið bakstykkið ofan frá og niður, á sama tíma og aukið er út í hvorri hlið þar til réttum fjölda lykkja í axlarbreidd hefur verið náð. Bakstykkið er með örlítið skáhallar axlir. 2) FRAMSTYKKI: Framstykkið er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjið á því að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið framstykkið ofan frá og niður á sama tíma og aukið er út fyrir hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. 3) BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur settar á sama hringprjón - prjónið þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið framstykkis, prjónið bakstykkið, prjónið upp upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu, prjónið hitt framstykkið = prjónið áfram berustykkið fram og til baka yfir allar lykkjur frá miðju að framan. 4) ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁL, FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, þá er byrjað á að auka aðeins út fyrir hálsmáli og ermar og eftir það fyrir bæði fram- og bakstykki og ermar. Jafnframt eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli eru framstykkin sett saman við miðju að framan og stykkið er prjónað áfram í hring á hringprjóna. 5) FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar öll útaukning er lokið og berustykki hefur verið prjónað í rétta lengd er því skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað áfram í hring á hringprjóna ofan frá og niður á meðan ermar eru látnar bíða.

6:56
Evrópskt berustykki 1/4 - Bakstykki

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig á að prjóna bakstykkið á flík með evrópsku berustykki. Hálsmálið er tilbúið eftir að lykkjur fyrir berustykkið eru prjónaðar upp. Við sýnum hvernig á að auka út lykkjur fyrir axlir. Fitjið upp lykkjur fyrir aftan hálsmálið og prjónið berustykkið fram og til baka, ofan frá og niður, á meðan aukið er út í hvorri hlið þar til fjöldi lykkja fyrir óskaða axlabreidd er náð. Bakstykkið hefur örlítið skálaga axlir. Við sýnum 4 útaukningarumferðir þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR 3. UMFERÐ: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 7 sinnum. Klippið frá, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI - frá réttu: Notaðu vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja af prjóni fyrir neðan, taktu upp þráðinn að framan og prjónaðu lykkjuna slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI - frá réttu: Notaðu vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja af prjóni fyrir neðan, taktu upp þráðinn aftan frá og prjónaðu lykkjuna slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notaðu vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja af prjóni fyrir neðan, taktu upp þráðinn aftan frá og prjónaðu lykkjuna brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notaðu vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja af prjóni fyrir neðan, taktu upp þráðinn að framan og prjónaðu lykkjuna brugðið í aftari lykkjubogann. Garn sem við notum í myndbandinu: DROPS Andes Uppskriftir með þessari aðferð og viðeigandi myndbönd, sjá hér að neðan.