DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!

Laskalína

Lærðu að prjóna laskalínu - hvort sem er í hring eða fram og til baka, með sléttprjóni, klukkuprjóni eða gatamynstri, neðan frá og upp eða ofan frá og niður. Við höfum fullt af kennslumyndböndum til að sýna þér hvernig!

Myndbönd: 28
4:41
Hvernig á að enda úrtöku í laskalínu á framstykki í DROPS Children 32-20

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við 2 síðustu umferðirnar með laskalínu og úrtöku í hálsi á framstykki í DROPS Children 32-20. Miðju lykkjurnar eru settar á þráð, við erum með 5 lykkjur hvoru megin og byrjum frá réttu á vinstri öxl: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, fækkið lykkjum fyrir laskalínu eins og áður (takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð), prjónið 2 lykkjur slétt saman (úrtaka í hálsmáli) = 3 lykkjur á prjóni, snúið stykkinu. Prjónið brugðið frá röngu, 1 kantlykkja í garðaprjóni, snúið stykkinu. 1 kantlykkja í garðaprjóni, fækkið lykkjum fyrir laskalínu = 2 lykkjur á prjóni. Snúið stykkinu, fellið af lykkjur með brugðnu og klippið frá. Prjónið nú hægri öxl frá réttu: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (úrtaka í hálsmáli), fækkið lykkjum fyrir laskalínu (2 lykkjur slétt saman), 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 3 lykkjur). Snúið stykkinu og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, brugðið frá röngu, snúið stykkinu. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu, 1 kantlykkja í garðaprjóni, snúið stykkinu og fellið af lykkjur með brugðið. Við notum garnið DROPS Air í myndbandinu, sama garn og notað er í jólapeysunni. Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú getur séð þetta mynstur með því að smella á myndina að neðan.