Anne skrifaði:
Huomasin virheeni, nyt alkaa täsmäämään paremmin 🤭
28.07.2019 - 13:06
Allison skrifaði:
I have followed lots of fairsle charts like yours, but I am having trouble with the understanding the AI bit, and your instruction: Work according to diagrams A.1 and A.2 from the right side as follows: Work 5 band stitches in GARTER STITCH, A.1 over 1 stitch, A.2 a total of 13-14-15-14-15 times on the row and 5 band stitches in garter stitch. " Does that mean we work the first 5 stictches of each row in garter stitch then one stitch (A1) and then the chart stitches?
29.05.2019 - 21:39DROPS Design svaraði:
Dear Allison, A.1 will allow the pattern to be symetrical on each side, ie you will work A.1 over the first st after band st (seen from RS), then repeat A.2 in width until the 5 last sts remain. From WS repeat A.2 (reading from the left towards the right) and finish with A.1. Read more here about diagrams Happy knitting!
31.05.2019 - 09:03
Daisy Delight Cardigan#daisydelightcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine, DROPS Lima eða DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blómum, litamynstri, garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð 3-12 ára.
DROPS Children 34-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar með sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 1 cm frá kanti í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir næstu 4-4-5-5-5 hnappagötum með 6 -6-6-7-7 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður, prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 72-76-80-86-92 lykkjur á hringprjón 4 með litnum fjólublár/kirsuberjarauður/dökk rauður. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-19-21-23-24 lykkjur jafnt yfir í umferð sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1! = 89-95-101-109-116 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð og mælið síðan héðan. Prjónið eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN, prjónið A.1 yfir 1 lykkju, prjónið A.2 alls 13-14-15-14-15 sinnum í umferð og prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning A.1 og A.2 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 219-235-251-263-281 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 3-3-5-1-5 lykkjur jafnt yfir í umferð = 222-238-256-264-286 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18 cm frá prjónamerki. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN, prjónið 31-33-36-37-38 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-48-51-53-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-66-72-74-76 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-48-51-53-62 lykkjur á annan þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 31-33-36-37-38 lykkjur (= framstykki) og prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 146-154-166-170-174 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu með 3-4-5-6-7 cm millibili alls 3 sinnum = 158-166-178-182-186 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 12-16-19-22-25 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir (ekki auka út yfir kanta að framan) = 168-176-188-192-196 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *. Prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Í næstu umferð frá réttu, fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku með 4-3½-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-7-7-8-10 sinnum = 40-40-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 22-27-30-34-37 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út jafnt yfir 4-4-5-5-4 lykkjur í umferð = 44-44-48-48-52 lykkjur. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Festið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daisydelightcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.