DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Daisy Delight

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-2
DROPS Design: Mynstur bm-057
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-450-500-550 g litur 41, plóma
50-50-50-50-50-50 g litur 45, sítrónupúns
50-50-50-50-50-50 g litur 02, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff og kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Baby Merino 22, 04, 20.
B) DROPS Baby Merino 37, 41, 3.
C) DROPS Baby Merino 38, 46, 09.
D) DROPS Baby Merino 20, 39, 45.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 26,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 26. og 27. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 merkiþráð við miðju að aftan (= byrjun á umferð). Byrjið frá réttu með litnum plóma og prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-20 lykkjur sléttprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-30 lykkjur sléttprjón, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-32-36-36-40 lykkjur sléttprjón, snúið og prjónið til baka að miðju að aftan.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hin prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 106-110-115-125-130-134 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum plóma. Prjónið 10 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-10-15-15-20-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 110-120-130-140-150-160 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt (allur uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka og þá verður berustykki aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN.
Setjið 9-10-10-10-11-11 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 7-6-7-7-5-5 lykkjur, setjið hvert og eitt af næstu 8-9-9-9-10-10 prjónamerkjum eftir 12-12-13-14-14-15 lykkjur, nú eru 7-6-6-7-5-5 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað mynstur A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) – sjá LEIÐBEININGAR, JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út hvoru megin við prjónamerkin þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ÖR-1: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 128-140-150-160-172-182 lykkjur.
ÖR-2: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 146-160-170-180-194-204 lykkjur.
ÖR-3: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 164-180-190-200-216-226 lykkjur.
ÖR-4: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 182-200-210-220-238-248 lykkjur.
ÖR-5: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 200-220-230-240-260-270 lykkjur.
Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 11-12-13-14-15-16 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan. Takið prjónamerkin úr stykkinu. Prjónið nú mynstur A.2 (= 20-22-23-24-26-27 mynstureiningar með 10 lykkjum) umferðina hringinn. Í næst síðustu umferð í A.2 er aukið út um 10-11-12-14-11-11 lykkjur jafnt yfir = 290-320-336-352-376-390 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir fyrstu 45-49-51-55-60-64 lykkjum (= hálft bakstykki), 2. prjónamerki eftir næstu 55-62-66-66-68-67 lykkjum (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 90-98-102-110-120-128 lykkjur (= framstykki), 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 55-62-66-66-68-67 lykkjur (= ermi). Nú eru 45-49-51-55-60-64 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki).
Prjónið nú mynstur A.3 hringinn, jafnframt í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona í annarri hverri umferð alls 5-6-8-10-11-13 sinnum = 330-368-400-432-464-494 lykkjur. ATH: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni er haldið áfram í sléttprjóni þar til allar útaukningar fyrir laskalínu hafa verið gerðar og stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 50-55-59-65-71-77 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-110-118-130-142-154 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 50-55-59-65-71-77 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar 10-10-12-12-14-16 sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 110-120-130-142-156-170 lykkjur á milli prjónamerkja).
Haldið áfram með plóma og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í ca öðrum hverjum cm alls 12 sinnum = 268-288-308-332-360-388 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 28 cm frá skiptingu er aukið út um 8-12-13-13-15-17 lykkjur = 276-300-321-345-375-405 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 2,5. Prjónið stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn í 2 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 65-74-82-86-90-93 lykkjur af öðrum þræðinum í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-84-94-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi og byrjið á umferð hér. Haldið áfram með plóma og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-5.-4.-4.-3. hverri umferð alls 13-17-21-22-23-24 sinnum = 49-50-52-54-58-61 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-38-37-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-5-6-5-5 lykkjur jafnt yfir = 51-54-57-60-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú stroff * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn í 2 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt með plóma
symbols = slétt með natur
symbols = slétt með sítrónupúns
symbols = brugðið með plóma
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift!
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Anna Suihko wrote:

En oikein saa tolkkua ohjeeseen jossa kehoitetaan lisämään kuvion A2 toiseksi viimeisellä kerroksella 12 silmää ja tuloksena on 320 s koossa M kun silmukoita ennen lisäystä on 220. Mikähän multa on mennyt ohi?

21.04.2024 - 16:39

DROPS Design answered:

Hei, myös piirroksen A.2 mallineuleen aikana tehdään lisäyksiä. Jokaiseen mallikertaan lisätään 4 silmukkaa, eli mallineuleen aikana lisätään yhteensä 88 silmukkaa + 12 silmukkaa.

22.04.2024 - 18:40

country flag Helena Saarinen wrote:

It's very difficult to understand how I will make those loops after A2!!!! Never before get this kind of pattern in DROPS!!!

12.04.2024 - 15:52

country flag Linda Lavoie wrote:

Dans le modèle 196-2 (Daisy delight), vous dites que quand A-1 a été tricoté 1fois en hauteur, l’ouvrage mesure 13 cm depuis le rang de montage au milieu du devant(dans le large). Est-ce depuis le tout début incluant le col ou depuis le début de A-1 ?

29.02.2024 - 13:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lavoie, on doit bien mesurer depuis le rang de montage, autrement dit avec le col et A.1, depuis le tout début de l'ouvrage. Bon tricot!

29.02.2024 - 16:16

country flag Georgia Wilhelmsson wrote:

Hej! Jag ska börja sticka mönster A2 i storlek S, tröjan Daisy Delight men förstår inte symbolerna på första raden. Hur ska jag gå tillväga? Hur många maskor blir det totalt i första raden i A2?

28.10.2023 - 17:12

DROPS Design answered:

Hei Georgia 1.rad i A.2 går over 10 masker (den sorte firkanten er ingen maske). Når du har strikket 1.rad øker du med 2 kast pr gang A.2 strikkes = 12 masker når du skal strikke 2. rad. I str. S skal du ha 200 masker når du har strikket A.1 ferdig, og når du starter på A.2 strikker du A.2 20 ganger (= 10 masker i A.2 x 20 ganger = 200 masker). Sett maskemarkører mellom hver gang du strikker A.2 så har du en bedre oversikt. Bare husk å flytte maskemarkørene når det økes (så på 2. omgang er det 12 maske mellom maskemarkørene, mens når 22. omgang strikkes er det 14 masker mellom hver maskemarkør). mvh DROPS Design

30.10.2023 - 09:18

country flag Sandra wrote:

Im Diagramm A1 bei den Reihen mit den Pfeilen soll zugenommen werden, immer beidseits der Markierungsfäden. Soll das mit Umschlägen gemacht werden, die dann in der nächsten Runde links verschränkt abgestrickt werden?

26.08.2023 - 09:59

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, ja gerne können Sie mit Umschläge zunehmen, dann stricken Sie 1 Masche zwischen jedem Umschlag, so gibt es nicht 2 Umschläge nebeneinander. Viel Spaß beim stricken!

28.08.2023 - 13:18

country flag Daska wrote:

Hallo, voor maat M staat bij de mouwen: 74 steken op een hulpdraad, dan 10 nieuwe. Dan voorpand en weer 74 op draad en 10 nieuwe. Maar eerst 10 nieuwe en dan 74 op draad is toch logischer qua symmetrie?

17.03.2023 - 20:32

DROPS Design answered:

Dag Daska,

De 74 steken die je op de hulpdraad zet brei je niet, maar laat je eerst links liggen en de 10 steken die je opzet komen onder de oksel, dus aansluitend op het achterpand, daarna brei je de steken van het voorpand, zet je weer 74 steken op een hulpdraad en zet je 10 nieuwe steken op. De 10 nieuwe steken komen dus aan beide kanten onder de oksel en verbinden de voor- en achterpanden met elkaar.

19.03.2023 - 16:39

country flag Miriam S wrote:

Danke für die tolle Anleitung. Muster sehr schön. Leider sind die Zunahmen am Rumpf komplett überflüssig. Hatte nachher eher eine Triangel Form. Beim 2. Versuch gerade runtergestrickt und ist immer noch eher weit. Dafür sind 60cm Gesamtlänge (Gr. L) viel zu kurz.. Zunahmen mit Umschlag machen leider auch Löcher wenn man sie verschränkt abstrickt.

18.10.2022 - 09:05

country flag Yvonne wrote:

Hej. I Ryg & Forstykke næst sidste linje: Skift til rundpind 2,5 strik rib * 1 ret, 2 masker retstrik * strik *-* rundt på omgangen 2 cm?? Er det 1 vr og 2 ret eller er det noget med at strikke 2 masker sammen ?? Mvh Yvonne

29.09.2022 - 10:42

DROPS Design answered:

Hej Yvonne, ret strikkes ret fra retsiden på hver pind. Retstrik strikkes rundt ved at omgangene strikkes skiftevis ret og vrang. Det vil sige at første omgang strikkes: 1ret, 2vrang, 1ret, 2vrang osv. Næste omgang strikkes: 1 ret, 2ret, 1ret, 2 ret (altså ret hele vejen rundt) :)

29.09.2022 - 15:17

country flag Annette Nielsen wrote:

Jeg mangler et brystmål på opskriften

14.01.2022 - 21:17

DROPS Design answered:

Hej Annette, du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften, hver finder du også information om hvordan man læser måleskitsen. God fornøjelse!

17.01.2022 - 10:10

country flag Annette wrote:

Ik heb de pas gebreid, die is veel te klein uitgevallen, slechts 2 cm tot begin van het patroon. Alles klopt: maat van de naalden (2,5 en 3 mm), de wol (Baby Merino unicolour). Ik krijg mijn hoofd niet eens door de opening. Wat kan er mis zijn? Met vriendelijke groet

14.01.2022 - 14:17

DROPS Design answered:

Dag Annette,

Heb je een proeflapje gebreid en gecontroleerd of jouw stekenverhouding klopt met de aangegeven stekenverhouding in het patroon? Pas eventueel de naalddikte aan voor de juiste stekenverhouding. Voor het opzetten kun je ook een dikkere naald gebruiken of 2 naalden gebruiken, zodat de opzetrand losjes is.

16.01.2022 - 14:45