DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Daisy Delight Cardigan

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-3
DROPS Design: Mynstur bm-058
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-450-500-550 g litur 41, plóma
50-50-50-50-50-50 g litur 45, sítrónupúns
50-50-50-50-50-50 g litur 02, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 80 cm fyrir stroff og kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 8-8-8-9-9-9 st.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Baby Merino 22, 04, 20.
B) DROPS Baby Merino 37, 41, 3.
C) DROPS Baby Merino 38, 46, 09.
D) DROPS Baby Merino 20, 39, 45.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) mínus kanta að framan (= 5 lykkjur á hvorri hlið á stykki = 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 21,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 21. hverja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með plóma og prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-20 lykkjur sléttprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-30 lykkjur sléttprjón, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hin prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-8-8-8 næstu hnappagötum með ca 7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 116-120-125-135-140-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum plóma. Prjónið 10 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 5-11-16-16-21-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 121-131-141-151-161-171 lykkjur.
Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka og þá verður berustykki aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN.
Setjið 9-10-10-10-11-11 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 12-11-12-12-10-10 lykkjur, setjið hvert og eitt af næstu 8-9-9-9-10-10 prjónamerkjum eftir 12-12-13-14-14-15 lykkjur, nú eru 13-12-12-13-11-11 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað mynstur A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) – sjá LEIÐBEININGAR, með 5 kantlykkjum að framan með garðaprjóni á hvorri hlið, JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út hvoru megin við prjónamerkin þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ÖR-1: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 139-151-161-171-183-193 lykkjur.
ÖR-2: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 157-171-181-191-205-215 lykkjur.
ÖR-3: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 175-191-201-211-227-237 lykkjur.
ÖR-4: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 193-211-221-231-249-259 lykkjur.
ÖR-5: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki (= 18-20-20-20-22-22 lykkjur fleiri) = 211-231-241-251-271-281 lykkjur.
Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 11-12-13-14-15-16 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan. Takið prjónamerkin úr stykkinu. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 (= 1 lykkja), A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 20-22-23-24-26-27 mynstureiningar með 10 lykkjum), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í næst síðustu umferð í A.2 og A.3 er aukið út um 10-11-12-14-11-11 lykkjur jafnt yfir = 301-330-345-361-386-400 lykkjur. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir fyrstu 50-54-56-60-65-69 lykkjur (= vinstra framstykki), 2. prjónamerki eftir næstu 55-62-66-66-68-67 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 91-98-101-109-120-128 lykkjur (= bakstykki), 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 55-62-66-66-68-67 lykkjur (= ermi). Nú eru 50-54-56-60-65-69 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= hægra framstykki).
Prjónið nú mynstur A.4 með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona í annarri hverri umferð alls 5-6-8-10-11-13 sinnum = 341-378-409-441-474-504 lykkjur. ATH: Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni er haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til allar útaukningar fyrir laskalínu hafa verið gerðar og stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 50-55-59-65-71-77 lykkjur í sléttprjóni (= hægra framstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 101-110-117-129-142-154 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 65-74-82-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 50-55-59-65-71-77 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= vinstra framstykki), 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 231-250-269-293-322-350 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 60-65-70-76-83-90 lykkjur inn frá hvorri hlið (nú eru 111-120-129-141-156-170 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram með plóma, sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í ca öðrum hverjum cm alls 12 sinnum = 279-298-317-341-370-398 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 28 cm frá skiptingu er aukið út um 8-10-12-12-16-18 lykkjur = 287-308-329-353-386-416 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 2,5. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* fram og til baka í 2 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 65-74-82-86-90-93 lykkjur af öðrum þræðinum í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-84-94-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi og byrjið á umferð hér. Haldið áfram með plóma og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-5.-4.-4.-3. hverri umferð alls 13-17-21-22-23-24 sinnum = 49-50-52-54-58-61 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-38-37-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-5-6-5-5 lykkjur jafnt yfir = 51-54-57-60-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú stroff * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn í 2 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.04.2019
Leiðrétting: FRAM- OG BAKSTYKKI:..Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* fram og til baka í 2 cm.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með plóma
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með natur
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með sítrónupúns
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu með plóma
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift!
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Carina wrote:

Har trivts så bra i denna snygga stickade tröja, och när det blev dax för tvätt, så följde jag tvättråd till punkt och pricka. Men till min stora förvåning hade tröjan töjt sig något enormt under tvätten. Den blev så stor att den ej går att använda. Vågar inte sticka i detta garn igen om jag inte kan få hjälp, eller en vettig förklaring.

08.04.2024 - 15:11

country flag Helle Knudsen wrote:

Tusind tak for en skøn opskrift. Jeg er meget glad for det færdige resultat i variationen med grøn bund og rosa blomster. Og det er min voksne datter også, så jeg må i pindene igen 😊

24.05.2023 - 23:38

country flag Julie Hindle wrote:

Please can someone explain why this pattern is written in detail and the childs pattern is very vague? I have shared it with multiple knitting groups and no one appears to understand it. I would appreciate some help or guidance on doing the childs pattern please. I really don't want to disappoint my grandaughter. Thank you. Julie

14.03.2023 - 17:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hindle, sorry to hear you have troubles with the pattern for child, you are welcome to ask your question giving more info about the sections you don't understand, the size you are working etc... using the question form at the bottom of the pattern you are working on. Thanks for your comprehension.

15.03.2023 - 09:37

country flag MONBLANC wrote:

Bonjour J’ai une question : après la flèche 5 j’ai 231 mailles et a l’avant dernier rang de A2 et A3 je dois augmenter de 11 mailles = 242 et non 330. Ai-je oublié des augmentations ? Merci de votre réponse Cordialement Anne Marie

11.09.2022 - 15:08

DROPS Design answered:

Cf réponse ci-dessous :)

12.09.2022 - 11:11

country flag MONBLANC wrote:

Bonjour J’ai un souci puisqu’a la flèche 5 en taille M j’ai 231 mailles et à l’avant dernier rang de A2 et A3 je dois faire 11 augmentations = 242. Or vous dites 330 mailles ! Ai-je oublié des augmentations ? Merci de votre aide Cordialement Anne Marie

11.09.2022 - 15:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Monblanc, après la flèche 5 vous avez 231 mailles, mais en tricotant A.3 vous devez augmenter (on passe de 10 à 14 m dans chaque A.3), autrement dit vous aurez: 5 m + 1 m de A.2 + 22 x 14 m de A.3 (= 308) + 5 m = 319 m + 11 augmentations à l'avant-dernier rang = 330 m. Bon tricot!

12.09.2022 - 11:11

country flag Hanne wrote:

Strikker str. s Har strikket A1 ( 211 m ) nu strikkes A2 og A3 - A2 er 1 maske og A3 er over 10 m, der er 2 omslag på 1. pind, det er 12 m 20 gange. Det kan ikke give 301 m. Hvad menes med næst sidste pind, hvor der tages 10 m ud, jeg er jo lige startet? Jeg forstår det ikke, håber du kan hjælpe ( kan ikke regne ud hvordan I kommer frem til disse 301 m ) ellers en fin trøje. Vh Hanne Strunge

24.04.2022 - 22:04

DROPS Design answered:

Hei Hanne. Du har 211 masker og skal nå strikke A.2 + A.3. Det strikkes slik: 5 stoplemasker + A.2 (1 maske) + A.3 (10 masker x 20 ganger = 200 m) + 5 stolpemasker = 211 masker. Når du strikker 1. rad av A.3 øker du med 2 masker hver gang A.3 strikkes, så på 2.rad av A.3 har du: 5 stoplemasker + A.2 + A.3 (12 masker x 20 ganger = 240) + 5 stolpemasker = 251 masker. På 21. rad øker du også med 2 masker hver gang A.3 strikkes. Da vil du ha: 5 stoplemasker + A.2 + A.3 (14 masker x 20 ganger = 280) + 5 stolpemasker = 291 masker. MEN husk på nest siste pinne i A.2 og A.3 økes det 10 masker jevnt fordelt = 291 + 10= 301 masker på pinnen. mvh DROPS Design

25.04.2022 - 14:14

country flag Heléne Ahnell wrote:

Hej! Förstår inte beskrivningen för resåren nertill på tröjan. 1 rät och 2 m i rätstickning, alltså hela varvet rätstickning? och på nästa varv? Tacksam för närmare förklaring. Tack!

04.02.2022 - 00:09

DROPS Design answered:

Hej Heléne. Ja första varvet blir då bara med räta maskor. Från avigsidan stickar du sen den ensamma rätmaskan avig och de 2 maskorna i rätstickning stickas räta. (Framkantsmaskorna stickas räta på alla varv). Mvh DROPS Design

04.02.2022 - 12:27

country flag Sharlene wrote:

I am doing the elevation and wonder if instead of 24 (for the L size) i should turn and work 32 stitches.

02.02.2022 - 19:26

DROPS Design answered:

Dear Sharlene, the elevation should be enough as written in the pattern (24), so that it matches the photo. First, to get to 32, you may need to work more rows, to get from 16 to 32 stitches by working 8 stitches more each time (so you would need to work 2 extra rows, at least). Also, the back will be even higher than the original pattern, so it may cause a deformation in the shape of the jacket. Happy knitting!

05.02.2022 - 19:15

country flag Robinet wrote:

Bonjour Je fais une taille S , jusqu'au dernier étape pour les manches. Après avoir monté 10mailles sous la manche, elle devient 75 mailles. Quand l ouvrage est à 4cm, diminue 2 mailles, =73. Puis diminuer 13 mailles =60mailles. Question: pourquoi il vous reste 49 mailles à la fin, et non 60 mailles? Merci pour votre explication

25.10.2021 - 03:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robinet. Quand l'ouvrage mesure 4 cm, diminuer 2 mailles au milieu sous la manche - voir DIMINUTIONS. Diminuer ainsi au total (la premiere diminution inclus) 13 fois tous les 8 tours. Cela veut dire que vous diminuez 2 mailes 13 fois (=26 mailles diminuees). 75-26=49. Bon tricot!

25.10.2021 - 09:40

country flag Sheela Wadalkar wrote:

I am knitting the medium sized cardigan. In the first row of the A 3 pattern, how do we increase 4 stitches in each of the 10 stitches? I see only 2 yarn overs in the first row of A3. Also, the 21st row shows two yarn overs. Have I understood the pattern correctly? Very confused. Please help,

23.09.2021 - 07:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wadalkar, yes correct, you first increase 2 sts on first row (with 2 yarn overs) and then increase one more time on the 21st row = each A.3 will be then 14 sts - on the next to last row in A.2/A.3 increase 11 sts evenly and you will get -330 sts. Happy knitting!

23.09.2021 - 08:53