Í þessu DROPS myndbandi gefum við ykkur stutta yfirsýn yfir hvernig flík með hringlaga berustykki mun sitja á líkamanum við mátun og hvar útaukningar-/úrtökulínur eru staðsettar.
STUTT YFIRLIT MEÐ VERKLÝSINGU:
Verkið er hægt að prjóna/hekla ofan frá og niður eða neðan frá og upp og oft án þess að þörf sé á að sauma það saman í lokin.
OFAN FRÁ OG NIÐUR:
Berustykkið er prjónað/heklað yfir allar lykkjur. Útaukning sem gefur breidd á fram- og bakstykki og ermum er hægt að gera á nokkra vegu, til dæmis þannig: Aukið út samkvæmt mynsturteikningu sem sýnir hvar öll útaukning á sér stað, eða aukið út lykkjum jafnt yfir á ákveðnum stöðum með nokkurra cm millibili á milli hverra útaukningarumferða. Þegar berustykkið er tilbúið er haldið áfram með fram- og bakstykki og ermar til loka áfram niður. Hægt er að prjóna hálsmálið annað hvort til að byrja með eða í lokin.
NEÐAN FRÁ OG UPP:
Byrjað er á að prjóna/hekla fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig að byrjun á berustykki. Síðan er berustykkið prjónað/heklað bæði yfir fram- og bakstykki og ermar, á meðan lykkjum er fækkað. Hægt er að gera úrtöku á nokkra vegu, til dæmis þannig: Fækkið lykkjum samkvæmt mynsturteikningu sem sýnir hvar öll úrtaka á sér stað, eða fækkið lykkjum jafnt yfir á ákveðnum stöðum með nokkurra cm millibili á milli hverra úrtökuumferða. Þegar berustykkið er tilbúið er hálsmálið prjónað.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Skrifaðu athugasemdir eða spurningar fyrir þetta myndband
Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.