DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4508.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Daisy Delight Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine, DROPS Lima eða DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blómum, litamynstri, garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð 3-12 ára.

DROPS Children 34-5

#daisydelightcardigan

DROPS Design: Mynstur me-051-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm.
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350 gr litur 34, fjólublár
50-50-50-50-50 gr litur 01, natur
50-50-50-50-50 gr litur 30, sinnep

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350 gr litur 6273, kirsuber
50-50-50-50-50 gr litur 0100, natur
50-50-50-50-50 gr litur 2923, gulur

Eða notið:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur B)
250-300-300-350-350 gr litur 17, dökk rauður
50-50-50-50-50 gr litur 01, natur
50-50-50-50-50 gr litur 28, gulur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS TALA, Kókoshneta NR: 516: 5-5-6-6-6 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4508.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar með sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 1 cm frá kanti í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir næstu 4-4-5-5-5 hnappagötum með 6 -6-6-7-7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður, prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 72-76-80-86-92 lykkjur á hringprjón 4 með litnum fjólublár/kirsuberjarauður/dökk rauður. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-19-21-23-24 lykkjur jafnt yfir í umferð sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1! = 89-95-101-109-116 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð og mælið síðan héðan. Prjónið eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN, prjónið A.1 yfir 1 lykkju, prjónið A.2 alls 13-14-15-14-15 sinnum í umferð og prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar mynsturteikning A.1 og A.2 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 219-235-251-263-281 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 3-3-5-1-5 lykkjur jafnt yfir í umferð = 222-238-256-264-286 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18 cm frá prjónamerki. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN, prjónið 31-33-36-37-38 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-48-51-53-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-66-72-74-76 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-48-51-53-62 lykkjur á annan þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 31-33-36-37-38 lykkjur (= framstykki) og prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 146-154-166-170-174 lykkjur í umferð.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu með 3-4-5-6-7 cm millibili alls 3 sinnum = 158-166-178-182-186 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 12-16-19-22-25 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir (ekki auka út yfir kanta að framan) = 168-176-188-192-196 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *. Prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Í næstu umferð frá réttu, fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku með 4-3½-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-7-7-8-10 sinnum = 40-40-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 22-27-30-34-37 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út jafnt yfir 4-4-5-5-4 lykkjur í umferð = 44-44-48-48-52 lykkjur. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR: Festið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin l frá röngu með litnum fjólublár = slétt lykkja frá réttu, brugðin l frá röngu með litnum fjólublár
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu með litnum fjólublár = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu með litnum fjólublár
slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með litnum natur = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með litnum natur
slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með litnum sinnep = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með litnum sinnep
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt
í þessari umferð er aukið út mitt í mynsturteikningu, passið því vel uppá að mynstrið passi í næstu umferðum <br />
<br />
= í þessari umferð er aukið út mitt í mynsturteikningu, passið því vel uppá að mynstrið passi í næstu umferðum

Diagram for DROPS Children 34-5
Diagram for DROPS Children 34-5
Diagram for DROPS Children 34-5

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Francoise skrifaði:

Bonjour ! Est ce que je peux ajouter 2 mailles au début du tricot et 2 mailles à la fin ( donc 7 m de bordure ) pour avoir une finition en icord ?

09.06.2025 - 15:16

country flag Brigitte skrifaði:

Lorsque on doit augmenter dans l'empiècement doit-on faire 1 augmentation en répétant 15 fois le bloc des 6 mailles de base (du coup 7 mailles 15 fois ? où on augmente 1 fois en début de rang ? Pouvez vous éclaircir les explications s'il vous plaît J'ai posé plusieurs questions envoyées les unes après les autres Merci de les lire toutes les 3 pour la réponse Brigitte

29.03.2025 - 18:48

DROPS Design svaraði:

Bonjour Brigitte, comme les augmentations ne se font que dans A.2, vous allez augmenter dans chaque A.2 comme indiqué dans le diagramme. Par ex, si vous devez répéter le diagramme 15 fois, vous aurez 15 augmentations à chaque fois, et (en taille 7/8 si j'ai bien compris), vous aurez ainsi 7 mailles dans chaque A.1 et 7x15 + 1 m de A.1 + 2 x5 m de bordure devant après le premier rang des diagrammes. Lorsque les diagrammes seront terminés, vous aurez ainsi: 5 m de bordure, 1 m de A.1, 15x16 m de A.2, 5 m de bordure = 251 mailles. Mettez éventuellement un marqueur entre chaque A.2 (et après A.1) pour mieux vous repérer et ainsi mieux vérifier votre nombre de mailles. Bon tricot!

31.03.2025 - 08:42

country flag Brigitte skrifaði:

Suite de ma question combien de fois doit on répéter A1 1 fois au début ou/et 1 fois avant chaque 6 m ??? Brigitte

29.03.2025 - 18:18

DROPS Design svaraði:

Bonjour Brigitte, comme indiqué ci-dessous, A.1 ne va se tricoter qu'une seule fois, au début du rang sur l'endroit/à la fin du rang sur l'envers, après/avant la bordure devant; et on va répéter A.2 13 à 15 fois selon la taille. Bon tricot!

31.03.2025 - 08:35

country flag Brigitte skrifaði:

Bonjour. Je ne comprends pas où se place le diagramme A1 quand on commence l'empiècement on répète 14 fois A2 mais où mettons A1 ? Que veut dire au dessus la maille de suivantes? Merci de votre explication Brigitte

29.03.2025 - 18:11

DROPS Design svaraði:

Bonjour Brigitte, on tricote A.1 en début de rang sur l'endroit puis on répète A.2 - sur l'envers, on répète A.2 en lisant bien le diagramme de gauche à droite et on termine par A.1. Le motif est ainsi symétrique. Lorsqu'il est indiqué de tricoter A.1 au-dessus de la maille suivante, on doit alors simplement tricoter la maille suivante en suivant le diagramme A.1. Bon tricot!

31.03.2025 - 08:35

country flag COSME Christiane skrifaði:

Bonjour en faisant les 2 premiers rg est ce que c' est 1 point de riz dans l ' attente d' une réponse je vous remercie Christiane C

23.12.2024 - 10:07

country flag Gouteux skrifaði:

Bonjour je fais la taille 7/8 ans je viens de commencer j'ai fait les premiers rangs jusqu'aux augmentations et ensuite passer A1 etA2 apparement ilya plusieurs rangs de point mousse et je ne comprends pas les infos ,le nombre de rangs et combien de mailles entre A1 et A2

11.11.2024 - 11:03

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Gouteux, lorsque vous avez augmenté après les 2 côtes mousse, vous avez 101 mailles que vous tricotez ainsi: 5 m point mousse, 1 maille comme indiqué dans le diagramme A.1, puis répétez maintenant 15 fois les 6 mailles du diagramme A.2 et terminez par 5 m point mousse, soit: 5+1+(15x6)+5=101 mailles. Sur l'envers, lisez le diagramme de gauche à droite. Augmentez comme indiqué dans A.2 = vous aurez 16 m dans chaque A.2 quand le diagramme est terminé, soit: 5+1+(15x16)+5=251 mailles. Bon tricot!

11.11.2024 - 12:48

country flag Teresa skrifaði:

Per favore non capisco lo Schema!!! Mi potete spiegare meglio? Si legge dal basso verso l'alto? I ferri sono andata e ritorno? Grazie

10.11.2024 - 00:09

DROPS Design svaraði:

Buonasera Teresa, i diagrammi si leggono dal basso verso l'alto, da destra verso sinistra per i ferri di andata e da sinistra a destra per quelli di ritorno. Buon lavoro!

11.11.2024 - 16:31

country flag Aud skrifaði:

Hva menes med: strikk A1 over 1 maske?

05.10.2024 - 21:35

DROPS Design svaraði:

Hej Aud. Då stickar du 1 maska enligt diagram A.1. Se mer om strikkediagrammer här. Mvh DROPS Design

09.10.2024 - 08:54

country flag Cordelia skrifaði:

I am making the smallest size and just using one colour throughout. I can't work out the diagrams for how to do the increases with just one colour. I've done the 2 ridges, the first increase row, the following Knit row but am now stuck. Please help!

21.07.2024 - 20:38

DROPS Design svaraði:

Dear Cordelia, even if you work with one colour, the instructions are worked exactly the same. There are 2 charts A.1 and A.2 depending on the size you are working; for the smallest size choose the second ones. You will work the pattern as follows: 5 band stitches in garter stitch, A.1 over 1 stitch, A.2 a total of 13 times on the row and 5 band stitches in garter stitch. You can ignore the colours and simply knit or purl depending on the side you are working on. The only thing to account for is the black oval, which are increases. Please read the following lesson for more information: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!

22.07.2024 - 01:32

country flag Gill Corris skrifaði:

I am knitting the second size up and love the design. However, try as I might, I cannot get the increase mid-pattern row right (row 41 for me, marked with an arrow)- do I wrap the main colour yarn or the cream? The extra stitches show at the ends of the row, but the yarn overs are half way so the pattern ends up wrong. Please help!

07.05.2024 - 13:33

DROPS Design svaraði:

Hi Gill Gorris! You do yarn-over with same colour as previous stitch, which makes 1 more dark stitch next row. Flower will be like one before, just on the diagram white squares move aside because new stitch. Hope it helps!

07.05.2024 - 15:23