PATRICIA SMITH skrifaði:
In this grouping and on the main screen for children it shows a pullover sweater design. I cannot locate the pattern. Is it available?
04.12.2019 - 17:12DROPS Design svaraði:
Hi Patricia, The jumper is pattern 32-10. Happy knitting!
05.12.2019 - 07:20
Nancy skrifaði:
Can we use Drops Baby Merino instead?
05.09.2019 - 22:25DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, BabyMerino is yarn group A while this jacket is worked with Merino Extra Fine, a yarn group B - try our yarn converter to check all possible alternatives. Happy knitting!
06.09.2019 - 08:04
Carolyn skrifaði:
Are you able to do this pattern for 3-6months
12.08.2019 - 19:22DROPS Design svaraði:
Dear Carolyn, unfortunstely, we're unabel to re-write the pattern for each customer, but for any personal assistance you can ask to your favourite DROPS store, even by email. Happy knitting!
12.08.2019 - 20:00
BROUSSARD Chantal skrifaði:
Bonjour, sur ce modèle, est-ce que le diagramme s'applique sur l'envers, ou est-ce uniquement sur les rangs à l'endroit ? merci cordialement
21.03.2019 - 08:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Broussard, les diagrammes montrent tous les rangs, c'est-à-dire ceux sur l'endroit aussi bien que ceux sur l'envers - voir ici comment lire un diagramme tricot. Bon tricot!
21.03.2019 - 09:59
Ina Vreeman skrifaði:
Ik kom niet uit met het tel patroon 1e naald moet ik van telpatroon meederen en dan de 2e naald kom ik uit.
18.02.2019 - 15:56DROPS Design svaraði:
Dag Ina,
Afhankelijk van de maat die je breit heeft het patroon een herhaling van 6 a 7 steken. Nadat je de boord hebt gebreid heb je 77 (83-88-95-95-102-102) op de naald. Dit aantal steken is inclusief 2 keer 5 biessteken en inclusief A.2 over de stee vlak voor de bies (zie beschrijving in het patroon.) De patronen zijn over een breedte van 6 of 7 steken (ook afhankelijk van je maat; kies telpatroon voor de maat die je breit. Volgens mijn berekening zou je dan goed uit moeten komen. Misschien nog even goed doorlezen en kijken of je het juiste telpatroon hebt.
22.02.2019 - 14:46
Marina Kleve skrifaði:
Can you tell me how many increases are made in total in the first row of the pattern 12/18 -2. Thx
23.01.2019 - 20:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Kleve, you repeat A.1 a total of 11 times in size 12/18months and 12 times in size 2 years. After first row in A.1 you have increased 2 sts (= 2 Yarn overs) in each A.1, ie 22 sts inc in size 12/18 months and 24 sts inc in size 2 years. Happy knitting!
24.01.2019 - 09:51
Lieselotte Hahn skrifaði:
1. Beim Probestricken habe ich bemerkt, dass folgendermassen gestrickt werden muesste. :A1- xmal A2 - A1 fuer das Elchmuster. STIMMT das? 2. Zeigt jede Zeile des Strickdiagramms nur die rechten Maschen? Oder 1. ZEILE - rechts, 2. ZEIle links zurueck etc Danke
10.01.2019 - 11:49DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hahn, das Diagram A.1 wird mehrmals gestrickt (in der Breite wiederholt) und dann stricken Sie A.2 (= 1 Masche) so daß das Muster gleich auf beiden Seiten wird. Die Hinreihen rechts nach links stricken, die Rückreihen werden links nach rechts gestrickt (= mit A.2 anfangen, dann A.1 links nach rechts lesen/wiederholen). Viel Spaß beim stricken!
10.01.2019 - 13:10
Marilisa skrifaði:
Sto lavorando a questo bellissimo modello. Al termine dello sprone, quando si devono dividere le maglie, credo ci sia un errore. Anziché “lavorare 29-31-33-35-37-41 “per il primo davanti come indicato, direi di operare come nel secondo davanti “lavorare le 29 (31-34-36-38-40-42) maglie” . Grazie
26.10.2018 - 18:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Marilisa. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
26.10.2018 - 19:43
Marilisa skrifaði:
Vorrei aggiungere un commento per un errore che ho riscontrato,ma mi compare questa scritta: “Sorry! You are either a spammer or have made too many comments in a short period of time. Please try again later! “\r\nÈ già la seconda volta e non capisco perché. Come mai?
26.10.2018 - 15:38DROPS Design svaraði:
Buongiorno Marilisa, provi ad aspettare un attimo e a riprovare tra un pochino. Probabilmente ha scritto troppi commenti ravvicinati.
26.10.2018 - 16:53
Little Red Nose Jacket#littlerednosejacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 12 mán -12 ára.
DROPS Children 32-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan): Allur kanturinn að framan er prjónaður með litnum rauður. Þ.e.a.s. notið 1 dokku af litnum rauður í hvorn kant að framan þegar þess er þörf (þ.e.a.s. í umferð þar sem rauður er ekki hluti af mynstri). Skipt er um þráð á milli kants að framan og berustykkis (þetta er gert svona til þess að forðast að festa þræði út á kanti að framan). Þegar skipt er um þræði eru þræðirnir tvinnaðir saman með hvor öðrum svo að lykkjurnar hangi saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (= 74 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,57. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert til skiptis á eftir ca 10. og 11. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat – ATH: Ekki er lykkjum fækkað/aukið út yfir kanta að framan). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi og innan á skálm): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppaðu yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið slétt þar til eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur í umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til að eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur í hinni hliðinni, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur í hinni hliðinni. Haldið áfram með að prjóna yfir 8 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina, prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu eftir 1½-2 cm í kanti á hálsmáli, síðan er fellt af fyrir næstu 4-5-6-6 hnappagötum með ca 8-8-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónað berustykki sem skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84 (88-92-96-100-108-112) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með rauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 7 (5-4-1-5-6-10) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING (prjónið 2 lykkjur brugðið saman = 1 lykkja færri) = 77 (83-88-95-95-102-102) lykkjur. Prjónið síðan upphækkun aftan í hnakka svo að berustykki verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða haltu áfram. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11 (12-11-12-12-13-13) mynstureiningar með 6 (6-7-7-7-7-7) lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu lykkju og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 187 (203-220-239-251-271-271) lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum rauður. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 7 (7-10-7-3-0-11) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 194 (210-230-246-254-271-282) lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 13 (14-15-16-17-18-19) cm mælt fyrir miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli), skiptist stykkið þannig: Prjónið 29 (31-34-36-38-40-42) lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 52 (56-62-66-70-75-78) lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær 29 (31-34-36-38-40-42) lykkjur eins og áður (= framstykki) = 122 (130-142-150-158-167-174) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í 32 (34-37-39-41-43-45) lykkjur inn frá hvorri hlið (= 58 (62-68-72-76-81-84) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu = 130 (138-150-158-166-175-182) lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 (13-16-19-22-25-28) cm frá skiptingu, aukið út um 14 (14-14-14-14-13-14) lykkjur í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 144 (152-164-172-180-188-196) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm, fellið síðan af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 34 (37-41-45-49-53-57) cm, mælt frá öxl. ERMI: Setjið lykkjur af öðrum þræðinum á sokkaprjón 4 og prjónið að takið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48 (52-56-60-60-64-66) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur (= mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum rauður. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½ (2-2-2½-3-3½-3½) cm millibili alls 6 (6-8-8-8-8-9) sinnum = 36 (40-40-44-44-48-48) lykkjur. Þegar ermin mælist 10 (12-17-20-24-27-31) cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm eða að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 45 (50-50-55-55-60-60) lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls ca 18 (20-25-28-32-35-39) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. SNOPPA: Heklið með litnum rauður með heklunál 3 þannig: Heklið 4 loftlykkjur og 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, klippið frá og festið enda. Heklið 1 snoppu á hvert hreindýr (= 11-12-11-12 snoppur). Hnýtið snoppurnar á hvert hreindýr og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlerednosejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.