Red Nose Jumper Kids |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa fyrir börn úr DROPS Nepal. Stykkið er með hreindýramynstri. Stærð 2-12 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 32-18 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. 1 kantlykkja í garðaprjóni = prjónið lykkjuna slétt frá réttu og slétt frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hreindýrin eru prjónuð í sléttprjóni. Til að koma í veg fyrir löng hopp með þráðinn á bakhlið á stykki þegar litamynstur er prjónað, prjónið með 3/5 dokur. Þ.e.a.s. prjónið með 1 dokku gallabuxnablár/rauður hvoru megin við hreindýrin og með 1 dokku millibrúnn/beige/ljós beige fyrir miðju á peysu (þ.e.a.s. A.1/A.2). Til að koma í veg fyrir göt í litaskiptum verður að vefja þræðina utan um hvorn annan þegar skipt er um lit. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 2 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón (með eða án hreindýrs á bakstykki). Stykkin eru prjónuð neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. BAKSTYKKI MEÐ HREINDÝRI: Fitjið upp 54-58-62-66-70-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með litnum gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-2-3-3-3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 10-12-14-16-20-24 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 13-15-17-19-21-23 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 26 lykkjur) – sjá MYNSTUR, prjónið 13-15-17-19-21-23 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 21-23-26-29-32-35 cm fellið af með 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 52-56-60-64-68-72 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með litnum rauður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-34-38-42-46-50 cm fellið af miðju 18-20-22-24-24-26 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 16-17-18-19-21-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32-35-39-43-47-51 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI ÁN HREINDÝRS: Fitjið upp 54-58-62-66-70-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með litnum gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-2-3-3-3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 10-12-14-16-20-24 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir í litinn rauður og haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 21-23-26-29-32-35 cm fellið af með 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 52-56-60-64-68-72 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 31-34-38-42-46-50 cm fellið af miðju 18-20-22-24-24-26 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 16-17-18-19-21-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32-35-39-43-47-51 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-58-62-66-70-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með litnum gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-2-3-3-3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 2-4-6-8-12-16 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu með litnum gallabuxnablár þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 11-13-15-17-19-21 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.2 (= 30 lykkjur) – sjá MYNSTUR, prjónið 11-13-15-17-19-21 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar umferðin með ör í A.2 hefur verið prjónuð til loka á hæðina er skipt um grunnlit frá litnum gallabuxnablár yfir í litinn rauður. Haldið áfram alveg eins með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 21-23-26-29-32-35 cm fellið af með 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 52-56-60-64-68-72 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með litnum rauður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-35-38-42-45 cm eru miðju 14-16-16-18-18-18 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-2-2-3 sinnum = 16-17-18-19-21-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32-35-39-43-47-51 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 28-28-32-32-32-36 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum rauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerki á að nota síðar þegar aukið er út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-8-8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-3½-3½-3-3½ cm millibili alls 6-8-8-9-11-11 sinnum = 40-44-48-50-54-58 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 26-30-34-38-42-46 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaum innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju á hvorri hlið. Saumið ermar í. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 46 til 66 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með litnum rauður. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 56-60-64-72-72-76 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÁR: Festið 3 kögur fyrir hár framan á höfuðið og 3 kögur aftan á höfði. 1 kögur = klippið 2 þræði með litnum millibrúnn ca 8-9 cm. Leggið 2 þræðina saman, dragið þræðina utan um lykkju efst á höfði á hreindýri á milli beige á höfði og millibrúnn í horni – mitt á sjálfu höfðinu. Hnýtið tvöfaldan hnút. Festið alveg eins kögur hvoru megin við miðju kögrið – sjá mynd. AUGU: Gerið 2 augu með litnum millibrúnn þannig: 1 auga. Klippið 3 þræði ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5 – sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 auga til viðbótar. Staðsetjið augun framan á höfuðið á hreindýri, nákvæmlega yfir ljós beige eininguna – sjá mynd. Dragið þræðina í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið þræðina á röngu. NEF: Gerið einn dúsk með litnum rauður ca 5-6 cm að þvermáli, munið að setja 2 þræði í til að festa dúskinn með. Festið dúskinn framan á höfuðið á hreindýri ca mitt í ljós beige eininguna með því að þræða þræðina í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið á röngunni. HÁLSÓL AÐ AFTAN (á við um bakstykki með hreindýri): Heklið loftlykkjuröð ca 14 cm með heklunál 4 með litnum gulur. Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýrinu á bakstykki. Festið enda á röngu á stykki. HÁLSÓL AÐ FRAMAN: Heklið loftlykkjuröð ca 16-18 cm með heklunál 4 með litnum gulur. Þræðið rautt hjarta eða svipað sem skraut á loftlykkjuröðina og hnýtið hnút þannig að hjartað haldist mitt í loftlykkjuröðinni. Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýri á framstykki. Festið enda á röngu á stykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Helen Chappell wrote:
Thank you for answering my questions (3 questions)so quickly and so clearly. Now I have the confidence to start the Red Nose Christmas jumper for my grandson. Really excited and looking forward to it. I am happy to have found Drops, the beautiful yarns and stylish patterns. Will definitely be buying again.
11.09.2023 - 15:41Helen Chappell wrote:
The pattern for Red Nose jumper says , "cast on 70 stitches (including 1 edge stitch on each side). Does this mean add another 2 stitches making it 72 stitches to cast on or are the edge stitches included in the 70 stitches? Thank you.
09.09.2023 - 20:29DROPS Design answered:
Dear Helen, no, the 70 stitches already include these 2 edge stitches. Happy knitting!
10.09.2023 - 20:18Helen Chappell wrote:
For the knitting tension for this pattern should I knit on size 4mm or 5mm needles? Thank you.
29.08.2023 - 13:26DROPS Design answered:
Hi Helen, The guage is for 5 mm needles. Happy knitting!
30.08.2023 - 06:48Helen Chappell wrote:
Can you knit this pattern on straight needles? What is the advantage of using circular needles? I haven't used them before. Thank you.
11.08.2023 - 12:39DROPS Design answered:
Dear Mrs Chappell, sure you can, front and back pieces are worked back and forth on circular needle to have enough room for all stitches; only sleeves are worked in the round - in this lesson we explain how to adapt them into straight needle. Happy knitting!
11.08.2023 - 15:31Nisha wrote:
I have made this jumper and would like to put it on sale. I was a little confused about you copyr policy. When I sell a product made using your patterns do I have to mention your name, even if its just 1 item?
01.01.2023 - 17:28Monika Henrich wrote:
Wenn in dem Diagramm Hin- und Rückreihen angezeigt werden, müssen die Zu- und Abnahmen/Farbwechsel auch in den Rückreihen ausgeführt werden? Ergibt bei mir zuviele Löcher bei den Farbwechsel. Was mache ich falsch oder lese ich das Diagramm 32-18 falsch.
20.12.2022 - 19:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Henrich, ja genau die Diagramme zeigen alle Reihen, wenn bei der nächsten Reihe mehr Maschen in de 2. Farbe gestrickt werden soll, können Sie diese Farbe bei der letzte Reihe einige Maschen folgen lassen, damit die Farbe an der richtigen Stellen für die nächste Reihe wird. Viel Spaß beim stricken!
21.12.2022 - 08:05De Man wrote:
Ik be met die trui bezig moet je ook aan de averechtekant het patroon aanhouden of alleen aan de voorkant
18.12.2022 - 11:17DROPS Design answered:
Dag De Man,
Je breit zowel op de goede als op de verkeerde kant het patroon. Aan de goede kant lees je het telpatroon van rechts naar links en aan de verkeerde kant lees je het telpatroon van links naar rechts.
18.12.2022 - 15:09Laura wrote:
Hola, ellos diagramad A.1 y A.2 muestran las filas de ida y vuelta (derecho y revés) o sólo las filas de derecho, y el revés se teje tal como se presenta el tejido? Gracias
15.12.2021 - 19:28DROPS Design answered:
Hola Laura, los diagramas muestran todos los puntos de todas las filas (las de derecho y las de revés) vistas por el lado derecho.
18.12.2021 - 22:41Tonje wrote:
Det hadde vært fint med bilde av genseren med reinsdyr bakfra også.
05.12.2021 - 01:08Nora wrote:
Los puntos centrales escote delantero no se rematan solo se separan?
19.09.2021 - 18:13DROPS Design answered:
Hola Nora, si, los puntos centrales no se cierran, sino que se ponen en espera en un gancho auxiliar, para que el cuello quede después más bonito.
19.09.2021 - 22:22