Magdalena Asteberg skrifaði:
Hej! Jag har precis stickat färdigt A1 i storlek 12/18 och när jag mätte så fick jag 16 cm i stället för 13 cm , vad gjorde jag för fel?
27.01.2022 - 02:14DROPS Design svaraði:
Hej Magdalena, så har du strikket lidt løsere end hvad vi har gjort ifølge strikkefastheden som står i opskriften. Strikker du i DROPS Merino Extra Fine?
28.01.2022 - 10:53
Sonca Lengoc skrifaði:
Do you have an adult version of this pattern?
26.01.2022 - 18:35DROPS Design svaraði:
Dear Sonca, you can find an adult version here Happy knitting!
26.01.2022 - 19:48
Stefanie skrifaði:
Könntet ihr das bitte auch für Erwachsene machen? Ich möchte bitte diesen Pullover in XL. Vielen lieben Dank
15.12.2021 - 13:24DROPS Design svaraði:
Liebe Stefanie, hier finden Sie einen ähnlichen Pullover für Erwachsene XS/S bis XXXL). Viel Spaß beim stricken!
15.12.2021 - 16:12
CATI Corbalan skrifaði:
Gracias por sus explicaciones tan claras. Saludos desde España
09.10.2021 - 09:36
Silje skrifaði:
Hei. Jeg strikker 9/10 år. Og er helt på slutten av A1 men får ikke sikk-sakk til å stemme når det er en økning der. (øking er på linje 4 når du ser på diagrammet og problemet blir på linje 3). Det er 3 røde masker mellom hver bortsett fra den ene der blir det 4. Og da stemmer ikke det med brun trå, det blir en rød glippe... Stemmer dette eller er det noe jeg gjør galt?
08.10.2021 - 17:48DROPS Design svaraði:
Hei Silje. Ja, det blir 3 røde masker 2 ganger og 4 røde masker 1 gang (i 1 rapport av A.1) for å få maskeantallet / økningene til å stemme. Dette skal jevne seg ut når alle økninger er gjort i diagrammet. mvh DROPS design
11.10.2021 - 10:17
Jukka Ketola skrifaði:
Hello, on this pattern elevation description different , little boy hard to understand . Do you have video of exaple description for this elevation?
16.09.2021 - 08:44DROPS Design svaraði:
Dear Jukka, if you scroll down to the bottom of the pattern, below the shcematic drawing you can find all the relevant videos for this pattern, including THIS about hpw to knit an elevation to the back of a sweater. Happy Knitting!
17.09.2021 - 02:24
Andrea skrifaði:
Bezieht sich die Länge der Nadeln, 40 und 60 , auf die Gesamtlänge inklusive Spitzen oder auf die Seillänge? Vielen Dank schon mal für die Antwort! Viele Grüße Andrea
17.03.2021 - 18:22DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, die Länge ist von einer Spitze zu den anderen gemessen. Viel Spaß beim stricken!
18.03.2021 - 08:55
Heidi Kristoffersen skrifaði:
Hei. Strikker 3/4 år og skal nå dele til armer. Men A1 er ikke ferdig. Skal mønsteret fortsette under armen?
16.01.2021 - 12:38DROPS Design svaraði:
Hei Heidi. Om strikkefastheten i høyden stemmer skal A.1 være akkurat ferdig før det deles til ermene. A.1 = 42 pinner. Iflg strikkefastheten er 28 pinner 10 cm, 42 pinner(A.1) = 15 cm + 3 cm vrangbord = 18 cm. Om du har mye igjen av A.1 kan bærestykket bli for lang når det tas på. mvh DROPS design
25.01.2021 - 14:55
Maria Del Mar skrifaði:
Estoy siguiendo el patron pero me gustaria modoficarlo y ponerle una abertura lateral en el cuello con dos botones.Como puedo modificar eñ patron para hacer ese cambio con aguja corcular?
06.12.2020 - 22:34DROPS Design svaraði:
Hola Maria, tienes que trabajar la orilla del escote y el canesu de ida y vuelta con aguja circular. Toma como ejemplo el patron DROPS BABY 36-14. Buen trabajo!
07.12.2020 - 08:16
Debbie skrifaði:
Is there a mitt pattern to match? Toddler size??
06.12.2020 - 03:04DROPS Design svaraði:
Dear Debbie, no, there isn't, since the pattern is too big for it. You can check our Christmas Workshop for all the Christmas themed garments. Happy knitting!
06.12.2020 - 16:38
Little Red Nose#littlerednosesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 12 mán -12 ára.
DROPS Children 32-10 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna ca 11. og 12. hverja lykkju, eða ef auka á út þá er það gert á eftir 12. hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um miðju undir ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppaðu yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. STÆRÐ 12/18 mán (2 - 5/6 - 7/8) ÁRA: Setjið 1 prjónamerki mitt að framan á milli 2 lykkja (þ.e.a.s. á eftir 33 (36-42-42) lykkjum). STÆRÐ (3/4 - 9/10 - 11/12) ÁRA: Setjið 1 prjónamerki mitt framan í miðju lykkju (þ.e.a.s. í 39.-46.-46. hverja lykkju). Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til að eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur í hinni hliðinni, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur í hinni hliðinni. Haldið áfram með að prjóna yfir 8 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. Fyrst er prjónað berustykki sem skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Umferðin byrjar ca við miðju að aftan. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72 (76-80-84-88-96-100) lykkjur á sokkaprjóna/hringprjón 3 með litnum rauður (í 2 minnstu stærðum verður að fitja upp og prjóna á sokkaprjóna áður en lykkjum er aukið út, í öðrum stærðum er hægt að fitja upp og prjóna með stuttum hringprjóni). Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið áfram með stroff í 3 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 6 (4-3-0-4-5-9) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 66 (72-77-84-84-91-91) lykkjur. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram . Prjónið mynstur eftir A.1 – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11 (12-11-12-12-13-13) mynstureiningar með 6 (6-7-7-7-7-7) lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 176 (192-209-228-240-260-260) lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með litnum rauður. Í næstu umferð er aukið út um 7 (7-10-7-3-0-11) lykkjur jafnt yfir = 183 (199-219-235-243-260-271) lykkjur. Þegar stykkið mælist 13 (14-15-16-17-18-19) cm frá miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli), skiptist stykkið þannig: Prjónið 25 (27-30-32-34-36-38) lykkjur, setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 49 (53-59-63-67-72-75) lykkjur, setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið afgang af 25 (27-30-32-34-36-38) lykkjum eins og áður = 115 (123-135-143-151-160-167) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 57 (61-67-71-75-80-83) lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm frá skiptingu = 127 (135-147-155-163-172-179) lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 (13-16-19-22-25-28) cm frá skiptingu, aukið út um 9 (9-9-9-9-8-9) lykkjur í næstu umferð = 136 (144-156-164-172-180-188) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 34 (37-41-45-49-53-57) cm, mælt frá öxl. ERMI: Setjið lykkjur af öðru bandinu á sokkaprjón 4 og prjónið að takið upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50 (54-58-62-62-66-68) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur (= mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum rauður. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½ (2-2-2½-3-3½-3½) cm millibili alls 6 (6-8-8-8-8-9) sinnum = 38 (42-42-46-46-50-50) lykkjur. Þegar ermin mælist 10 (12-17-20-24-27-31) cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir 36 (40-40-44-44-48-48) Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm eða að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 45 (50-50-55-55-60-60) lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls ca 18 (20-25-28-32-35-39) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. SNOPPA: Heklið með litnum rauður með heklunál 3 þannig: Heklið 4 loftlykkjur og 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, klippið frá og festið enda. Heklið 1 snoppu á hvert hreindýr (= 11 (12-11-12-12-13-13) snoppur). Hnýtið snoppurnar á hvert hreindýr og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlerednosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.