Azucena Roldán Garcia-Ochoa skrifaði:
Me gustaría hacer este patrón pero SOLO con el hilo Kid Silk. - ¿Que cantidad de lana necesito? - ¿Puedo seguir el patrón con los mismos puntos? Gracias por vuestra respuesta.
16.02.2025 - 09:46DROPS Design svaraði:
Hola Azucena, puedes trabajar con doble hilo de Kid-Silk; si la tensión se mantiene puedes seguir las instrucciones con los mismos puntos. Ten en cuenta que la labor será mucho más ligera y no tendrá caída. Como trabajarás con doble hilo de Kid-Silk necesitarás el doble de lana (el doble de ovillos).
17.02.2025 - 01:37
Nicole De Weerdt skrifaði:
Wat spijtig dat de klassieke manier van breien ook niet kan toegepast worden! Ik zou er nog zo blij mee zijn geweest!
14.02.2025 - 07:21
Biny skrifaði:
Brei je dit vest met Flora 1 draads? Kan evt Bomul Linn ook 1 draads?
12.02.2025 - 08:20DROPS Design svaraði:
Dag Biny,
Dit vest brei je met 2 draden uit garencateogrie A of met 1 draad uit garencategorie C. Bomul-Lin valt in categorie C, dus hiervan heb je dan 1 draad nodig. Via deze link vind je informatie over hoe je garens vervangt en hoe je dit om kunt rekenen met de looplengte.
15.02.2025 - 10:59
Joanna Gibowska skrifaði:
Bardzo ładne kobiety sweterek delikatny
07.02.2025 - 14:38
Natalia skrifaði:
For the crocheted edge, all is done in the same row? DT, 1chain, 3TC, 1 chain, 3TC, 1chain, DT?
07.02.2025 - 13:54DROPS Design svaraði:
Dear Natalia, for the crochet edge, work only 1 row as shown in diagram: start with 1 single crochet (US-crochet terminology), then repeat *1 chain stitch, skip 2,5 cm/ 1" on garment, then crochet in the next stitch from garment: 3 double crochets, 1 chain stitch, 3 double crochets, 1 chain stitch, skip approx 1,5 cm/ 1" on garment and crochet 1 single crochet in the next stitch from garment*, repeat from *-*. Happy crocheting!
07.02.2025 - 16:02
Sweet Harmony Cardigan#sweetharmonycardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Flora eða DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, v-hálsmáli, rúllukanti og hekluðum kanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-2 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 KANTLYKKJUR FRÁ RÉTTU – Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt. FRÁ RÉTTU – Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt. FRÁ RÖNGU – Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið. FRÁ RÖNGU – Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón, prjóna aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 2 kantlykkjur eins og áður, sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni um hægri prjóninn með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón aftan frá og fram á við, prjónið 2 kantlykkjur eins og áður, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn brugðið, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að v-hálsmál hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8½-9-9 cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja / mitt í þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (= heklaðir kantar). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er heklaður kantur meðfram framstykkjum og hálsmáli. HÁLSMÁL: Fitjið upp 70-70-72-80-82-84 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Flora eða 1 þræði DROPS Alpaca saman með 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 merki innan við 2 ystu lykkjur í annarri hlið á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 3 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 18-18-18-22-22-22 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 28-28-30-30-32-34 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 18-18-18-22-22-22 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru 3 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþráðinn (= hægra framstykki). Prjónið sléttprjón með 2 KANTLYKKJUR í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan, jafnframt á að auka út fyrir LASKALÍNU og V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan og lesið báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjur við hvern merkiþráð (= 8 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 9-8-15-21-23-21 sinnum. Síðan heldur útaukningin áfram þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykkjum og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu alls 16-20-14-8-8-14 sinnum á framstykkjum og bakstykki og 8-10-7-4-4-7 sinnum á ermum. Nú hefur verið aukið út alls 25-28-29-29-31-35 sinnum fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki og 17-18-22-25-27-28 sinnum á ermum. V-HÁLSMÁL: Þegar aukið hefur verið út 2 sinnum fyrir laskalínu byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli. Aukið er út fyrir v-hálsmáli frá réttu í báðum hliðum á stykkinu innan við 2 lykkjur (= 1 lykkja fleiri í hvorri hlið) í 4. hverri umferð 1-2-2-2-2-2 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 10-9-10-10-11-12 sinnum og í lokin í 4. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 13-13-14-14-15-16 sinnum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og v-hálsmáli eru 264-280-304-324-344-368 lykkjur í umferð. Munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan og prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-24-26-29 cm mælt beint niður frá merki fyrir miðju að framan (ekki mæla meðfram v-hálsmáli). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 42-45-48-51-55-60 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-52-58-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 80-86-92-98-106-116 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 50-52-58-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 42-45-48-51-55-60 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-204-224-244-268 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-50-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan og aukið JAFNFRAMT út 1 lykkju í síðustu umferð = 177-193-205-225-245-269 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur eins og áður. Síðan eru prjónaðar 4 umferðir sléttprjón (brugðnar lykkjur frá röngu, sléttar lykkjur frá réttu) með 2 kantlykkjum í hvorri hlið eins og áður. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af aðeins laust með brugðnum lykkjum frá röngu. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-52-58-62-64-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-60-66-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið 2 lykkjur í hverjum 6-5-3½-2½-2½-2 cm alls 6-7-9-12-13-14 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-39-39-38-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 43-42-41-41-40-37 cm frá skiptingunni. HEKLAÐUR KANTUR: Notið heklunál 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir), byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, heklið mynsturteikningu A.1 í fyrstu lykkju, síðan er mynsturteikning A.2 hekluð meðfram kanti á framstykki, v-hálsmáli, hálsmáli aftan í hnakka, í hinni hliðinni á v-hálsmáli og síðan niður meðfram vinstra framstykki – stillið af að A.2 endar með fastri lykkju í síðustu lykkju neðst á vinstra framstykki. Klippið og festið þræðina. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetharmonycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.