Í þessu DROPS myndbandi gefum við ykkur stutta yfirsýn yfir hvernig flík með berustykki með laskalínu mun sitja á líkamanum við mátun og hvar útaukningar-/úrtökulínur eru staðsettar.
STUTT YFIRLIT MEÐ VERKLÝSINGU:
Verkið er hægt að prjóna/hekla ofan frá og niður eða neðan frá og upp og oft án þess að þörf sé á að sauma það saman í lokin.
OFAN FRÁ OG NIÐUR:
Byrjað er á að prjóna/hekla yfir allar lykkjur á berustykki. 4 svæði merkt (í hverri skiptingu milli fram- og bakstykkis og erma). Þessar merkingar eru laskalínurnar og lykkjum fjölgað við laskalínur, sem gefur breidd á fram- og bakstykki og ermum. Þegar berustykkið er tilbúið er haldið áfram með fram- og bakstykki og ermar niður á við. Hægt er að prjóna hálsmálið fyrst eða síðast.
NEÐAN FRÁ OG UPP:
Byrjað er á að prjóna/hekla fram- og bakstykki og ermar hvert í sínu lagi að byrjun á berustykki. Síðan er berustykkið prjónað/heklað yfir allar lykkjur á fram- og bakstykki og ermum. Jafnframt er lykkjum fækkað hvoru megin við 4 svæði merkt í berustykki (í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). Þessar merkingar eru laskalínurnar og lykkjum fækkað við laskalínur að hálsmáli. Þegar berustykkið er tilbúið er hálsmálið prjónað.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Skrifaðu athugasemdir eða spurningar fyrir þetta myndband
Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.