Iris Romance Cardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, v-hálsmáli, rúllukanti, snúru og pífu með picot. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-33 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig: Á EFTIR HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á UNDAN VINSTRI KANTI AÐ FRAMAN: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). PICOT: Fellið laust af frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið inn hægri prjóni á milli fyrstu 2 lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (= 4 nýjar lykkjur á vinstri prjóni), prjónið slétt og fellið jafnframt af 6 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 3 uppslættir + 2 lykkjur). Nú er haldið áfram að prjóna frá *-* + felldar af 6 lykkjur á sama hátt meðfram allri affellingunni þar til 1 lykkja er eftir í umferð. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum síðustu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar að framan, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að framan. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantar að framan eru saumaðir saman = miðja að aftan, síðan er kantur að framan saumaður meðfram berustykki aftan í hnakka. Það er prjónuð snúra til að loka peysunni við miðju að framan. Í lokin er prjónaður upp blúndukantur meðfram kanti að framan og fellt af með picot. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 4 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið A.1 fram og til baka í 17-17-17-17-18-18 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, það er prjónað áfram yfir kant að framan þegar lykkjur eru fitjaðar upp fyrir berustykki. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 4 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið A.2 fram og til baka í 17-17-17-17-18-18 cm, endið með umferð frá röngu. Ekki klippa þráðinn, næsta umferð er prjónuð með þessum þræði frá réttu eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Nú eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að framan. Snúið og prjónið með hringprjón 4 frá réttu þannig: Prjónið vinstri kant að framan eins og áður frá réttu (= 4 lykkjur), fitjið upp 76-76-78-78-80-82 nýjar lykkjur í umferð, prjónið hægri kant að framan eins og áður (= 4 lykkjur) = 84-84-86-86-88-90 lykkjur. Setjið 1 merki að innanverðu við kantlykkjur að framan í annarri hliðinni (= framan), stykkið er mælt frá þessu merki. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, merkiþræðirnir eru settir á prjóninn á milli 2 lykkja og þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið (= hægra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, prjónið 18 lykkjur brugðið (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, prjónið 36-36-38-38-40-42 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, prjónið 18 lykkjur brugðið (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 4 kantlykkjur að framan eins og áður (= vinstra framstykki). Nú á að prjóna sléttprjón og kanta að framan eins og áður JAFNFRAMT sem aukið er út bæði fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL – lesið leiðbeiningar að ofan og lestu báða kaflana að neðan áður en þú prjónar áfram. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. V-HÁLSMÁL: Aukið er út fyrir v-hálsmáli frá réttu í báðum hliðum á stykki innan við 5 lykkjur, þ.e.a.s. 4 kantlykkjur að framan og 1 lykkja í sléttprjóni (= 1 lykkja fleiri í hvorri hlið) – munið jafnframt eftir að auka út fyrir laskalínu. Aukið út í 4. hverri umferð 2 sinnum í öllum stærðum, síðan í annarri hverri umferð 14-14-15-15-16-17 sinnum og í lokin í 4. hverri umferð 2 sinnum í öllum stærðum. Aukið hefur verið út alls 18-18-19-19-20-21 sinnum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjur (merkiþráðurinn situr á milli laskalykkja) frá réttu þannig – munið jafnframt eftir að auka út fyrir v-hálsmáli: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 22-26-29-34-35-36 sinnum (= 44-52-58-68-70-72 umferðir prjónaðar) = 176-208-232-272-280-288 lykkjur fleiri fyrir laskalínu. Útaukning fyrir laskalínu er nú lokið í stærð S til XL, en í XXL og XXXL er prjónað og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu þannig að einungis sé aukið út á framstykkjum og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri) – lykkjur eru ekki auknar út á ermum. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-0-0-3-6 sinnum (= 0-0-0-0-6-12 umferðir prjónaðar) = 0-0-0-0-12-24 lykkjur fleiri fyrir laskalínu. Öll útaukning fyrir laskalínu á nú að vera lokið, aukið hefur verið út 22-26-29-34-38-42 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 22-26-29-34-35-36 sinnum á ermum. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu og v-hálsmáli er lokið, eru 296-328-356-396-420-444 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-21-23-25-28-30 cm mælt beint niður frá merki fyrir miðju að framan (þ.e.a.s. ekki er mælt á ská niður meðfram v-hálsmáli). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 43-47-51-56-61-66 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 82-90-98-108-118-128 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 60-68-74-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 43-47-51-56-61-66 lykkjur í sléttprjóni, endið með 4 kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-212-232-252-276-300 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 28-28-28-28-27-27 cm frá skiptingunni. Stykkið mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm frá merki að framan – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð stroff frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) jafnframt er fækkað um 1 lykkju þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju slétt og 4 kantlykkjur að framan eins og áður = 195-211-231-251-275-299 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur og fellið af aðeins laust. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá merki að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-68-74-84-86-88 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 70-78-86-96-100-104 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-4-3-4-2-4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkju í hverjum 6-4-3-2-2-1½ cm alls 6-9-12-16-17-18 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-43-42-39-38 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 46-45-44-43-40-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Kantur að framan frá hvoru framstykki er sauðmaður saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan kantinn að berustykki aftan í hnakka. SNÚRA: Fitjið upp 3 lykkjur á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig: * Færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á sokkaprjóni án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt yfir allar 3 lykkjurnar *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca 45 cm eða að óskaðri lengd. Klippið og festið þráðinn. Þræðið snúruna í gegnum brugðnu lykkjuna í kanti að framan neðst í hvorri hlið á v-hálsmáli og hnýtið saman (= fyrir miðju að framan). Gerið einfaldan hnút í hvorn enda á snúruna. PÍFA: Nú er prjónuð upp pífa meðfram kanti að framan. Hvor hlið er prjónuð hvor fyrir sig á milli neðri kants á peysu og fyrir miðju aftan í hnakka, á vinstra framstykki er prjónað upp neðri kantur á peysu og upp að miðju að aftan, á hægra framstykki er prjónað upp frá miðju að aftan og niður að neðri kanti. Prjónið pífuna í hvora hlið á peysu þannig: Notið hringprjón 4 og prjónið upp frá réttu 1 lykkja í hverja umferð sem hefur verið prjónuð – prjónið upp innan við 3 lykkjur. Klippið þráðinn og snúið stykkinu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið A.3 eins langt og hægt er út umferðina. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, fellið af frá réttu með PICOT – lesið leiðbeiningar að ofan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. Ertu búin að klára þetta mynstur? |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.