MUSSIER FRANCOISE skrifaði:
Bonjour je voudrais tricoter le nautical night top, j'ai fait le 1er rang des rayures mais je ne comprends comment on continue avec les augmentations Merci de bien vouloir m'expliquer clairement les 2premières mailles du rang sont devenues 3 comment commencer le nouveau rang ?
06.03.2025 - 11:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mussier, notez qu'avant les rayures, on a décalé le tour pour que les tours commencent 2 mailles avant la manche, ainsi le début du tour doit maintenant commencer par les 2 dernières mailles du devant - cf début du paragraphe RAYURES. Bon tricot!
06.03.2025 - 13:48
Chantal skrifaði:
Bonjour, Je ne suis pas à l'aise avec les aiguilles ciculaires et je voudrais savoir le nombre de mailles devant et dos afin de respecter au mieux le patron avec des aiguilles droites. Y a t-il une méthode pour calculer le nombre de mailles lorsque l'on ne veut pas tricoter le modèle présenté avec des aiguilles circulaires ? je ne pense pas être la seule à privilégier les aiguilles droites !! Merci pour votre aide. Cordialement Chantal
25.02.2025 - 14:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Chantal, cette leçon explique comment adapter facilement un modèle sur aiguilles droites. La construction de ce modèle ne se prête peut-être pas aussi facilement à être tricoté en allers et retours, pour mieux comprendre sa construction, rendez-vous sous l'onglet "vidéos" en haut de page, vous y découvrirez les différentes étapes du pull: dos, épaules devant, devant et augmentations raglan. Bon tricot!
25.02.2025 - 16:47
Dominique skrifaði:
Bonjour. Concernant le DOS & DEVANT:il faut d'abord tricoter le devant gauche soit 41 mailles en taille L avant de mettre sur un fil les 74 mailles de la manche? Merci pour votre réponse.
24.02.2025 - 21:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Dominique, avant de diviser les mailles, tricotez 2 mailles pour le devant, et glissez les 74 mailles suivantes en attente pour la manche. Rappelez-vous que pour que les rayures soient plus belles (pas de décalage), on a modifié le début des tours 2 mailles avant la manche. Bon tricot!
25.02.2025 - 09:59
Kinga skrifaði:
Wydaje mi się, że w ostatnim akapicie przed sekcją "PODZIAŁ ROBÓTKI NA TYŁ/PRZÓD i RĘKAWY" znajduje się błąd. "Przerobić 2 oczka, okrążenie zaczyna się teraz między prawym przodem i prawym rękawem." - okrążenie powinno się zaczynać między lewym przodem i lewym rękawem.
16.02.2025 - 12:27DROPS Design svaraði:
Witaj Kingo, masz rację. Zgłosiłam to już do korekty. Pozdrawiam!
17.02.2025 - 13:11
Miryam Haislip skrifaði:
How can I work with stripes, change color? Please we a need a video. 😊
08.02.2025 - 19:40DROPS Design svaraði:
Dear Miryam, for list of related video-tutorials just switch the tab (bookmark) just below the title. Happy knitting!
09.02.2025 - 13:52
Susi skrifaði:
Das Top soll in Größe L 63cm breit sein. Ist das nicht sehr breit? Stimmt die Größenangabe?
08.02.2025 - 17:45DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, ja genau, so stimmt es mit der angegebenen Maschenprobe. Wenn Sie Hilfe brauche, die Größe zu wählen, kann Ihnen diese Lektion helfen. Viel Spaß beim Stricken!
10.02.2025 - 10:02
Nautical Nights Top#nauticalnightstop |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum, evrópsku berustykki og stuttum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. RENDUR: Það eru prjónaðar rendur þannig: 6 umferðir með litnum ljós beige / litur marsipan, 2 umferðir með litnum bláklukka / litur kobolblár. LEIÐBEININGAR PRJÓN (á við um rendur þegar prjónað er í hring í umferð): Til að fá fallegri skil í skiptingunni í byrjun og lok umferðar þegar rendur eru prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkja í næstu umferð er prjónuð þannig: Lyftið upp lykkjunni undir fyrstu lykkju á vinstri prjóni (lykkjunni er lyft upp í aftari lykkjubogann) og setjið þessa lykkju yfir á vinstri prjón. Síðan er þessi lykkja prjónuð slétt saman með næstu lykkju á vinstri prjóni. Með þessu verður skiptingin á minna sýnileg. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Nú er bakstykkið látið bíða og byrjun á framstykkjum er prjónuð. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónað og aukið út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Lykkjur eru fitjaðar upp meðfram hlið á framstykkjum og lykkjur frá bakstykki eru settar til baka á prjóninn. Prjónað er fram og til baka yfir allt berustykkið þar til útaukning fyrir hálsmál er lokið. Fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan og síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur. Lykkjur eru auknar út á berustykki. Fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar, síðan eru lykkjur auknar út bæði fyrir ermar og fyrir framstykki / bakstykki. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-40-42-44-46-48 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Light í litnum ljós beige eða DROPS Daisy í litnum marsipan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-10-10-10-10-11 sinnum (= 20-20-20-20-20-22 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 78-80-82-84-86-92 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snýr að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig, notið litinn ljós beige / litinn marsipan: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-20-20-20-20-22 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 22-22-22-22-22-24 lykkjur. Í lok síðustu umferðar frá röngu, prjónið síðustu 2 lykkjur brugðið saman = 21-21-21-21-21-23 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig, notið litinn ljós beige / litinn marsipan: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-20-20-20-20-22 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 22-22-22-22-22-24 lykkjur. Í byrjun á síðustu umferð frá röngu, prjónið fyrstu 2 lykkjur snúnar brugðið saman = 21-21-21-21-21-23 lykkjur. Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermakúpu, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru á vinstra framstykki, setjið 1 merki hér, prjónið upp 24 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi, lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 24 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi, lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið lykkjur til baka frá hægra framstykki á vinstri prjón, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið síðustu 3 lykkjur = 168-170-172-174-176-186 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 24 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 24 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt = 174-176-178-180-182-192 lykkjur. Útaukning við miðju að framan er nú lokið. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið. UMFERÐ 5: Prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 26 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 26 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt út umferðina, síðan eru fitjaðar upp 30-32-34-36-38-40 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 208-212-216-220-224-236 lykkjur í umferð. Síðan er stykkið prjónað í hring – ATH – það á einnig að prjóna rendur, lestu kaflann um rendur að neðan. UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2. Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður sá sami. Prjónið þessar 2 umferðir alls 5-4-5-5-2-1 sinnum (nú hefur verið aukið út alls 7-6-7-7-4-3 sinnum á ermum = 38-36-38-38-32-30 lykkjur á hvorri ermi og 76-78-80-82-84-90 lykkjur á framstykki / bakstykki) = 228-228-236-240-232-240 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. RENDUR: Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir miðju að framan fyrir hálsmáli, byrja RENDUR – lesið útskýringu að ofan. ATH! Byrjun umferðar er nú í vinstri hlið á hálsmáli að framan, en til að litaskiptin komi til með að sjást sem minnst, færist byrjun umferðar. Prjónið þess vegna að 2 lykkjum áður en ermin byrjar áður en rendur eru prjónaðar, umferðin byrjar nú á undan síðustu 2 lykkjum á framstykki. Lesið einnig LEIÐBEININGAR PRJÓN. Næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1: Aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt (= síðustu 2 lykkjur á framstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir 38-36-38-38-32-30 lykkjur á ermi, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið 72-74-76-78-80-86 lykkjur slétt á bakstykki, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir 38-36-38-38-32-30 lykkjur á ermi, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið út umferðina (= 2 lykkjur fleiri í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og ermi = alls 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Endurtakið þessar 2 umferðir þar til aukið hefur verið út 11-13-15-18-22-25 sinnum bæði á fram- og bakstykki og ermum. Nú hefur verið aukið út alls 18-19-22-25-26-28 sinnum á ermum = 316-332-356-384-408-440 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 13-14-16-18-19-19 cm mælt fyrir miðju á ermi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Þegar brotið er tvöfalt uppá peysuna við öxl, mælist stykkið ca 19-20-22-24-25-25 cm yst meðfram handveg. Prjónið 2 lykkjur slétt, byrjun umferðar er nú á milli framstykkis og vinstri ermi. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 60-62-68-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 98-104-110-118-128-140 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 60-62-68-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 98-104-110-118-128-140 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-228-244-264-288-316 lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn þar til stykkið mælist 21-22-22-22-23-25 cm, mælt frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi, endið með minnst 6 umferðir með litnum ljós beige / litnum marsipan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 22-22-24-26-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 234-250-268-290-316-348 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm. ERMAR: Setjið 60-62-68-74-76-80 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-72-80-88-92-98 lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn þar til ermin mælist ca 11-10-9-7-7-6 cm frá skiptingunni, endið með minnst 6 umferðir með litnum ljós beige / litnum marsipan. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 74-80-88-96-102-108 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Ermin mælist ca 27-27-28-28-29-28 cm frá öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 104 til 126 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3 með litnum ljós beige / litnum marsipan. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nauticalnightstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.