Hidden Seaside |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, og röndum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju á undan / eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Lykkjum er aukið út eins og útskýrt er að neðan: Frá réttu: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Frá röngu: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. RENDUR: Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-8 cm eftir stroff (mælt fyrir miðju að framan), prjónið rendur þannig: * 2 cm með litnum gallabuxnablár, 3½ cm með litnum marsipan *, prjónið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 5-6-6-6-7-7 rendur með litnum gallabuxnablár á fram- og bakstykki. Síðan er prjónað áfram eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-104-112-112-120-128 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með litnum DROPS Soft Tweed. Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 4 umferðir stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja og eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 1 lykkja og setjið 1. merkiþráðinn hér, teljið 20 lykkjur og setjið 2. merkiþráðinn hér (= ermi), teljið 32-32-36-36-40-44 lykkjur og setjið 3. merkiþráðinn hér, teljið 20 lykkjur og setjið 4. merkiþráðinn hér (= ermi), það eru 32-32-36-36-40-44 lykkjur á milli 4. og 1. merkiþráða. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við fyrstu 2 merkiþræðina (= 4 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðrum merkiþræðinum. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta merkiþræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir lasaklínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við fyrstu 2 merkiþræðina (= 4 lykkjur fleiri), prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merkiþræði (byrjun á umferð). Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og prjónað hefur verið 6 sinnum fyrir laskalínu við hvern merkiþráð = 152-152-160-160-168-176 lykkjur í umferð. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur. BERUSTYKKI: Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu og lesið RENDUR! Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Nú er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út með þessum hætti alls 7-11-12-12-10-10 sinnum á fram- og bakstykki og ermar. Það eru 208-240-256-256-248-256 lykkjur í umferð. Haldið áfram að auka út í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptist 4 og 8 lykkjur. Aukið út með þessum hætti 16-16-16-20-26-30 sinnum á fram- og bakstykki (= 8-8-8-10-13-15 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 29-33-34-38-42-46 sinnum á fram- og bakstykki og 21-25-26-28-29-31 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 304-336-352-376-404-436 lykkjur í umferð (90-98-104-112-124-136 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki / bakstykki og 62-70-72-76-78-82 lykkjur á merkiþráða á ermum). Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-25-28-31 cm, mælt frá miðju að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fram að 1. merkiþræði og byrjið umferðina hér, setjið fyrstu 62-70-72-76-78-82 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-112-124-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 62-70-72-76-78-82 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-112-124-136 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-248-276-300 lykkjur. Prjónið fyrstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi, umferðin byrjar hér. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum eins og áður, þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka er prjónað áfram með litnum marsipan. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm mælt fyrir miðju að framan (mælt eftir stroff). Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) jafnframt sem aukið er út um 30-32-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 230-248-266-286-318-346 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af. Peysan mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-70-72-76-78-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 72-80-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón og rendur eins og áður, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 4-3-2½-2½-2-1½ cm alls 4 sinnum = 64-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 18-16-15-15-12-9 cm frá skiptingunni, passið uppá að endað sé með minnst 3½ cm með litnum marsipan. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 4 umferðir með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt. Fellið af. Ermin mælist ca 20-18-17-17-14-11 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. Ertu búin að klára þetta mynstur? |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.