DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni í mars!
DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 277.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3601.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Love Stripes

Hekluð peysa úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 257-28

#lovestripessweater

DROPS Design: Mynstur cl-142
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 gr litur 21, ljós beige
350-350-400-450-450-500 gr litur 47, crimson rauður

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina með heklunál nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 277.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3601.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Munið að mynsturteikningin er lesin frá hægri til vinstri frá réttu og frá vinstri til hægri frá röngu.

LOFTLYKKJUR:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

RENDUR:
Allt stykkið er heklað í röndum þannig að það eru til skiptis 2 umferðir í litnum ljós beige og 2 umferðir í litnum crimson rauður (þ.e.a.s. 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu í hvorum lit).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðuls. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, áður en stykkinu er snúið þannig að næsta umferð er hekluð frá hinni hliðinni á stykki. Umferðin er hekluð til skiptis frá réttu og frá röngu.

LEIÐBEININGAR RENDUR:
Þegar rendur eru heklaðar, þá er fallegra að klippa og festa þráðinn á eftir hverri litaskiptingu.

2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN:
Til að loka gati, er heklað um hvern loftlykkjuboga þannig (á við um berustykki) eða í ystu loftlykkju (á við um ermi): * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann / í loftlykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja).

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Lykkjum er fækkað í byrjun og lok umferðar þannig:
Heklið fyrsta stuðul eins og áður (þ.e.a.s. 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul), heklið næstu 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul til viðbótar á sama hátt og heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í umferð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Öll peysan er hekluð fram og til baka, en í lok hverrar umferðar eru umferðirnar heklaðar saman til að forðast sauma fyrir miðju að aftan og fyrir miðju undir ermi.
Berustykkið er heklað fram og til baka frá miðju að aftan og heklað er ofan frá og niður.
Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað til loka niður á við og fram og til baka, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar heklaðar fram og til baka. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál.

BERUSTYKKI:
Notið DROPS Cotton Light í litnum crimson rauður og heklunál 4,5 og heklið 80-84-88-92-96-100 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan.
Allt stykkið er heklað í RENDUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Snúið stykkinu og skipti yfir í litinn ljós beige. Lesið MYNSTUR, HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR RENDUR.
Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja af næstu 11-12-12-13-14-15 loftlykkjur (= hálft bakstykki), A.1 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 16-16-18-18-18-18 loftlykkjur (= ermi), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 22-24-24-26-28-30 loftlykkjur (= framstykki), A.1 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 16-16-18-18-18-18 loftlykkjur (= ermi), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 11-12-12-13-14-15 loftlykkjur (= hálft bakstykki).
Á eftir fyrstu umferð eru 84-88-92-96-100-104 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð.
Haldið áfram hringinn til skiptis frá réttu og frá röngu þar til A.1 og A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina – munið eftir að umferðin endar með keðjulykkju. Það eru 140-144-148-152-156-160 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjurnar skiptast niður á milli loftlykkjuboga þannig: 32-32-34-34-34-34 stuðlar fyrir hvora ermi og 38-40-40-42-44-46 stuðlar fyrir bæði framstykki og bakstykki. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu.

Nú er heklað með A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2 alls 9-10-11-12-13-15 sinnum á hæðina og heklaðar eru alls 14-15-16-17-18-20 umferðir frá byrjun á stykki.

Það eru 248-264-280-296-312-340 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjur skiptast niður á milli loftlykkjuboga þannig: 50-52-56-58-60-64 stuðlar fyrir hvora ermi og 74-80-84-90-96-106 stuðlar fyrir bæði framstykki og bakstykki.

Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul, en til að loka gatinu þá er heklað um hvern loftlykkjuboga 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – lesið leiðbeiningar að ofan = 252-268-284-300-316-344 stuðlar. Stykkið mælist ca 19-20-21-23-24-26 cm miðja að aftan (= við byrjun umferðar). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 38-41-43-46-49-54 stuðla (= hálft bakstykki), hoppið yfir 50-52-56-58-60-64 stuðla (= ermi), heklið 4-4-6-8-12-12 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 76-82-86-92-98-108 stuðla (= framstykki), hoppið yfir 50-52-56-58-60-64 stuðla (= ermi), heklið 4-4-6-8-12-12 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 38-41-43-46-49-54 stuðla (= hálft bakstykki). Nú er fram- og bakstykkið heklað til loka á meðan ermar eru látnar bíða. Klippið þráðinn, nú byrjar umferðin fyrir miðju undir annarri erminni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-172-184-200-220-240 lykkjur.
Stillið byrjun umferðar af eftir réttu eða röngu þannig að áferðin sem er á berustykki haldi áfram á fram- og bakstykki og stillið af að rendurnar haldi áfram frá berustykki yfir á fram- og bakstykki.
Byrjið með 1 keðjulykkju í 3-3-4-5-7-7 loftlykkju sem fitjaðar voru upp í hlið undir annarri erminni á fram- og bakstykki (= ca fyrir miðju undir ermi) – nú byrjar umferðin hér, heklið 3 loftlykkjur (= jafngildir fyrsta stuðli), heklið 1 stuðul í hverja af 1-1-2-3-5-5 næstu loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hverja af 4-4-6-8-12-12 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 2-2-3-4-6-6 síðustu loftlykkjur = 160-172-184-200-220-240 stuðlar.
Heklið fram og til baka með stuðlum í röndum eins og áður þar til peysan mælist ca 43-45-46-48-50-52 cm fyrir miðju að aftan – stillið af að fram- og bakstykkið endi með 2 umferðir í litnum crimson rauður.
Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá efst á öxl.

ERMAR:
Stillið umferðin af frá réttu eða röngu þannig að áferðin sem er á berustykki haldi áfram á ermum og stilli af að rendurnar haldi áfram frá berustykki yfir á ermi.
Byrjið með 1 keðjulykkju í 3-3-4-5-7-7 loftlykkju sem fitjuð var upp í hlið undir ermi á fram- og bakstykki (= ca fyrir miðju undir ermi), heklið 3 loftlykkjur (= jafngilda fyrsta stuðli), heklið 1 stuðul í hverja af 0-0-1-2-4-4 næstu loftlykkjur, heklið 2 stuðla saman í síðustu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hvern 50-52-56-58-60-64 stuðlum sem hoppað var yfir á ermi, heklið 2 stuðla saman í fyrstu loftlykkju og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 1-1-2-3-5-5 loftlykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-56-62-66-72-76 stuðlar.
Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Setjið eitt merki í byrjun á stykki (= fyrir miðju undir ermi).
Heklið hringinn til skiptis frá réttu og frá röngu í stuðlum og röndum eins og áður.
Þegar ermin mælist ca 3 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við merki fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 12-12-7-6-4-3 cm alls 4-4-6-7-10-11 sinnum = 46-48-50-52-52-54 stuðlar. Heklið þar til ermin mælist ca 46-46-46-44-44-42 cm frá skiptingunni – stillið af að ermin endar með 2 röndum í litnum crimson rauður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið litinn crimson rauður og heklunál 4,5 og festið þráðinn með 1 keðjulykkju fyrir miðju að aftan (= byrjun umferðar).
Heklið í kringum kant í hálsmáli þannig: * Heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, heklið 1 keðjulykkju í næsta stuðul (= 1 keðjulykkja í annan hvern stuðul) *, heklið frá *-* alla leiðina hringinn = 40-42-44-46-48-50 loftlykkjubogar.
Í næstu umferð er hekluð 1 keðjulykkja um fyrsta loftlykkjubogann, munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn = 80-84-88-92-96-100 stuðlar. Klippið og festið þræðina.

Mynstur

Þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og er teiknuð til að sjá hvar næsta umferð er hekluð = Þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og er teiknuð til að sjá hvar næsta umferð er hekluð
1 loftlykkja = 1 loftlykkja
1 stuðull í lykkju að neðan = 1 stuðull í lykkju að neðan
1 stuðull um loftlykkjubogann að neðan = 1 stuðull um loftlykkjubogann að neðan
2 loftlykkjur (= loftlykkjubogi) = 2 loftlykkjur (= loftlykkjubogi)
diagram for DROPS 257-28
diagram for DROPS 257-28
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lovestripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.