DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni í mars!
DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7370.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Water Rings

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl, röndum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 258-2

#waterringssweater

DROPS Design: Mynstur ml-121
Garnflokkur D eða C + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-250-250-250-300-350 gr litur 24, marsipan
50-100-100-100-100-100 gr litur 09, ljós sægrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 5,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7370.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

RENDUR:
Prjónið rendur og sléttprjón frá berustykki og alveg niður að stroffi á fram- og bakstykki og ermum.
Rendur eru prjónaðar þannig:
1 umferð í litnum ljós sægrænn.
3 umferðir í litnum marsipan.
Endurtakið þessar 4 umferðir.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Nú er bakstykkið látið bíða og byrjun á framstykki er prjónuð. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónað og aukið út við hálsmál. Þett er endurtekið á hinni öxlinni.
Síðan er prjónað upp að ermum meðfram framstykkjum. Prjónað er fram og til baka yfir allt berustykkið þar til útaukning fyrir hálsmál er lokið. Fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmál fyrir miðju að framan og síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur. Lykkjur eru auknar út á berustykki. Fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar, síðan eru lykkjur auknar út bæði fyrir ermar og fyrir framstykki/bakstykki. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 26-28-26-28-30-32 lykkjur á hringprjón 5,5 með litnum marsipan í DROPS Meldoy.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-8-9-9-9-9 sinnum (= 16-16-18-18-18-18 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 58-60-62-64-66-68 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón.

HÆGRI ÖXL:
Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snýr að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Byrjið á að taka upp 1 kantlykkju alveg yst við handveg, síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 16-16-18-18-18-18 lykkjur) = 17-17-19-19-19-19 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið sléttprjón fram og til baka - fyrsta umferð er prjónuð frá röngu.
Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-5-5 sinnum (= 8-8-10-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 21-21-24-24-24-24 lykkjur.
Stykkið mælist nú ca 10-10-12-12-12-12 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 16-16-18-18-18-18 lykkjur), endið með að taka upp 1 kantlykkju yst við handveg = 17-17-19-19-19-19 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-5-5 sinnum (= 8-8-10-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 21-21-24-24-24-24 lykkjur.
Stykkið mælist nú ca 10-10-12-12-12-12 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið og það eru sett merki í umferð í skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Byrjið með lykkjur frá vinstra framstykki og prjónið slétt yfir fyrstu 19-19-22-22-22-22 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 kantlykkja færri), setjið 1. merki á prjóninn, prjónið upp 16-16-18-18-18-18 lykkjur meðfram vinstra framstykki innan við ystu lykkju (= ermi), setjið 2. merki á prjóninn.
Prjónið 58-60-62-64-66-68 lykkjur frá bakstykki slétt frá réttu, setjið 3. merki á prjóninn (ATH! Þetta merki er notað til að merkja byrjun umferðar – passið uppá að þetta merki aðgreini sig frá hinum), prjónið upp 16-16-18-18-18-18 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki innan við ystu lykkju (= ermi), setjið 4. merki á prjóninn, prjónið 2 fyrstu lykkjur frá hægra framstykki slétt saman (= 1 kantlykkja færri), prjónið slétt yfir þær 19-19-22-22-22-22 lykkjur sem eftir eru á hægra framstykki = 130-132-144-146-148-150 lykkjur. Klippið þráðinn. Nú færist byrjun umferðar til þar sem prjóna á berustykkið í hring eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Byrjið við 3. merki sem staðsett er í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi.
Nú er prjónað sléttprjón í hring þannig:
Prjónið lykkjur frá hægri ermi (= 16-16-18-18-18-18 lykkjur), prjónið 20-20-23-23-23-23 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-20-16-18-20-22 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í umferð, prjónið 20-20-23-23-23-23 lykkjur frá vinstra framstykki (= 58-60-62-64-66-68 lykkjur fyrir framstykki), prjónið lykkjur frá vinstri ermi (= 16-16-18-18-18-18 lykkjur), prjónið að lokum yfir lykkjur frá bakstykki (= 58-60-62-64-66-68 lykkjur) = 148-152-160-164-168-172 lykkjur í umferð.

Prjónið hringinn í sléttprjóni og aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan, prjónið síðan áfram með RENDUR – lesið útskýringu að ofan.

UMFERÐ 1: Prjónið og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi innan við merki (= 4 lykkjur fleiri).
Þ.e.a.s. aukið út yst við merki í hvorri hlið á ermi, aukið út til vinstri í byrjun á ermi og til hægri í lok á ermi – lykkjufjöldinn er aukinn út með 2 lykkjum á hvorri ermi, á meðan lykkjur á framstykki og bakstykki verður sá sami.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.

Endurtakið þessar 2 umferðir alls 11-11-11-10-9-8 sinnum (= 22-22-22-20-18-16 umferðir prjónaðar) = 192-196-204-204-204-204 lykkjur – munið eftir röndum. Það eru 38-38-40-38-36-34 lykkjur fyrir hvora ermi og 58-60-62-64-66-68 lykkjur fyrir framstykki/bakstykki.

Síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar eins og áður, jafnframt því sem aukið er út um 1 lykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið og aukið út 2 lykkjur á hvorri ermi eins og áður JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur á fram/bakstykki innan við 2 lykkjur sléttprjón (= 8 lykkjur fleiri).
Þ.e.a.s. aukið er út um 1 lykkju til vinstri eftir 2 lykkjur sléttprjón á fram/bakstykki og aukið er út um 1 lykkju til hægri þegar 2 lykkjur eru eftir á fram/bakstykki (það eru alltaf 2 lykkjur sléttprjón á milli útaukninga á fram- og bakstykki og ermar) – lykkjufjöldinn eykst um 2 lykkjur á hvorri ermi, framstykki og bakstykki.
UMFERÐ 2:
Prjónið slétt.

Endurtakið þessar 2 umferðir alls 4-5-5-7-9-11 sinnum (= 8-10-10-14-18-22 umferðir prjónaðar) = 224-236-244-260-276-292 lykkjur. Það eru 46-48-50-52-54-56 lykkjur fyrir hvora ermi og 66-70-72-78-84-90 lykkjur fyrir framstykki/bakstykki.
Það hefur verið aukið út alls 15-16-16-17-18-19 sinnum á ermum og 4-5-5-7-9-11 sinnum á fram-/bakstykki.

Ermin mælist nú ca 15-16-16-17-18-19 cm mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp meðfram framstykki. Þegar brotið er tvöfalt uppá peysuna við öxl, mælist stykkið ca 20-21-22-23-24-25 cm yst meðfram handveg.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar – stillið af að skiptingin sé í umferð sem prjónuð er í litnum marsipan.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 46-48-50-52-54-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 66-70-72-78-84-90 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 66-70-72-78-84-90 lykkjur slétt (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 144-156-168-184-200-216 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og rendur hringinn – stillið af að rendurnar haldi áfram frá berustykki yfir á fram- og bakstykki.
Prjónið þar til stykkið mælist 26-27-28-29-29-30 cm, mælt frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð í litnum marsipan.
Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í litnum marsipan JAFNFRAMT er aukið út um 18-20-22-24-30-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 162-176-190-208-230-248 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7 cm er fellt af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm.

ERMAR:
Setjið 46-48-50-52-54-56 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 52-56-62-66-70-74 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og rendur hringinn – stillið af að rendurnar haldi áfram frá berustykki yfir á ermi.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-4-3-2½-2-2 cm alls 5-7-9-10-12-13 sinnum = 42-42-44-46-46-48 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 33-32-33-32-30-30 cm frá skiptingunni – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð í litnum marsipan.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í litnum marsipan JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-48-50-54-54-56 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 54-54-55-55-55-56 cm frá öxl.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 72 til 90 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 4 með litnum marsipan – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur).
Fellið af með sléttum lykkjum jafnframt því sem bætt er við 1 uppslætti eftir 4. hverja lykkju – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 258-2

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waterringssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (2)

country flag Ménard Mimi skrifaði:

Je tricote depuis plus de 50ans, j'adore tricoter avec des aiguilles circulaires mais aujourd'hui je cale avec ce modèle. Pourriez-vous m'aider en faisant un schéma. Merci beaucoup

07.03.2025 - 13:33

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ménard, pour vous aider à la réalisation de ce modèle, vous trouverez, en haut de page, sous l'onglet "Vidéos" quelques exemples de réalisation de ce type de pull, par ex; comment tricoter le dos (1/4), chaque devant (2/4), puis comment relever les mailles de la manche et augmenter pour le raglan (3/4) et enfin la fin des augmentations du raglan et la division de l'empiècement. Bon tricot!

07.03.2025 - 14:05

country flag Laura skrifaði:

Are the measurements across the top (shoulder to shoulder) accurate? There is a big difference compared to the bottom measure and I don\'t see where the increases would occur. Also the top measure seems small relative to other sweaters with a similar style. Thank you!

22.02.2025 - 13:40