Love Stripes Cardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-27 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Munið að mynsturteikningin er lesin frá hægri til vinstri frá réttu og frá vinstri til hægri frá röngu. LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. RENDUR: Allt stykkið er heklað í röndum þannig að það eru til skiptis 2 umferðir í litnum ljós beige og 2 umferðir í litnum crimson rauður (þ.e.a.s. 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu í hvorum lit). HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðuls. Í næstu umferð er síðasti stuðullinn í umferð heklaður í 3. loftlykkju í byrjun fyrri umferðar. LEIÐBEININGAR RENDUR: Þegar rendur eru heklaðar, þá er fallegra að klippa og festa þráðinn á eftir hverri litaskiptingu. 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Til að loka gati, er heklað um hvern loftlykkjuboga þannig (á við um berustykki) eða í ystu loftlykkju (á við um ermi): * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann / í loftlykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað í byrjun og lok umferðar þannig: Heklið fyrsta stuðul eins og áður (þ.e.a.s. 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul), heklið næstu 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul til viðbótar á sama hátt og heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í umferð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Öll peysan er hekluð fram og til baka frá miðju að framan og heklað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað til loka niður á við og fram og til baka, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar heklaðar fram og til baka, en í lokin á umferð eru umferðirnar heklaðar saman, þetta kemur í veg fyrir sauma á miðri ermi og gefur erminni sömu áferð og afgangur af peysunni. Í lokin er heklaður kantur að framan upp meðfram framstykki, í kringum hálsmál og niður meðfram hinu framstykkinu. BERUSTYKKI: Notið DROPS Cotton Light í litnum crimson rauður og heklunál 4,5 og heklið 80-84-88-92-96-100 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Allt stykkið er heklað í RENDUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Snúið stykkinu og skipti yfir í litinn ljós beige. Lesið MYNSTUR, HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR RENDUR. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af næstu 11-12-12-13-14-15 loftlykkjur (= framstykki), A.1 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 16-16-18-18-18-18 loftlykkjur (= ermi), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 22-24-24-26-28-30 loftlykkjur (= bakstykki), A.1 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 16-16-18-18-18-18 loftlykkjur (= ermi), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), 1 stuðull í hverja af næstu 11-12-12-13-14-15 loftlykkjur (= framstykki). Á eftir fyrstu umferð eru 84-88-92-96-100-104 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð. Haldið áfram fram og til baka þar til A.1 og A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina – munið eftir RENDUR. Það eru 140-144-148-152-156-160 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjurnar skiptast niður á milli loftlykkjuboga þannig: 32-32-34-34-34-34 stuðlar fyrir hvora ermi, 19-20-20-21-22-23 stuðlar fyrir hvort framstykki og 38-40-40-42-44-46 stuðlar fyrir bakstykki. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Nú er heklað með A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2 alls 9-10-11-12-13-15 sinnum á hæðina og heklaðar eru alls 14-15-16-17-18-20 umferðir frá byrjun á stykki. Það eru 248-264-280-296-312-340 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjur skiptast niður á milli loftlykkjuboga þannig: 50-52-56-58-60-64 stuðlar fyrir hvora ermi, 37-40-42-45-48-53 stuðlar fyrir hvort framstykki og 74-80-84-90-96-106 stuðlar fyrir bakstykki. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul, en til að loka gatinu þá er heklað um hvern loftlykkjuboga 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – lesið leiðbeiningar að ofan = 252-268-284-300-316-344 stuðlar. Stykkið mælist ca 19-20-21-23-24-26 cm meðfram kanti fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 38-41-43-46-49-54 stuðla (= framstykki), hoppið yfir 50-52-56-58-60-64 stuðla (= ermi), heklið 4-4-6-8-12-12 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 76-82-86-92-98-108 stuðla (= bakstykki), hoppið yfir 50-52-56-58-60-64 stuðla (= ermi), heklið 4-4-6-8-12-12 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 38-41-43-46-49-54 stuðla (= framstykki). Nú er fram- og bakstykkið heklað til loka á meðan ermar eru látnar bíða. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-200-220-240 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hverja af 4-4-6-8-12-12 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að næstu loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hverja af 4-4-6-8-12-12 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul út umferðina = 160-172-184-200-220-240 stuðlar. Heklið fram og til baka með stuðlum í röndum eins og áður þar til peysan mælist ca 43-45-46-48-50-52 cm meðfram kanti fyrir miðju að framan – stillið af að fram- og bakstykki endar með 2 umferðir í litnum crimson rauður. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá efst á öxl. ERMAR: Stillið umferðin af frá réttu eða röngu þannig að áferðin sem er á berustykki haldi áfram á ermum og stilli af að rendurnar haldi áfram frá berustykki yfir á ermi. Byrjið með 1 keðjulykkju í 3-3-4-5-7-7 loftlykkju sem fitjuð var upp í hlið undir ermi á fram- og bakstykki (= ca fyrir miðju undir ermi), heklið 3 loftlykkjur (= jafngilda fyrsta stuðli), heklið 1 stuðul í hverja af 0-0-1-2-4-4 næstu loftlykkjur, heklið 2 stuðla saman í síðustu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hvern 50-52-56-58-60-64 stuðlum sem hoppað var yfir á ermi, heklið 2 stuðla saman í fyrstu loftlykkju og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 1-1-2-3-5-5 loftlykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-56-62-66-72-76 stuðlar. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Setjið eitt merki í byrjun á stykki (= fyrir miðju undir ermi). Snúið stykkinu og heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul í röndum eins og áður, þannig að áferðin frá ermi verði alveg eins og á fram- og bakstykki – umferðin endar með keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun sömu umferðar áður en stykkinu er snúið þannig að það lokast undir ermi. Þegar ermin mælist ca 3 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við merki fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 12-12-7-6-4-3 cm alls 4-4-6-7-10-11 sinnum = 46-48-50-52-52-54 stuðlar. Heklið þar til ermin mælist ca 46-46-46-44-44-42 cm frá skiptingunni – stillið af að ermin endar með 2 röndum í litnum crimson rauður. KANTUR Í HÁLSMÁLI OG KANTUR AÐ FRAMAN: Notið litinn crimson rauður og heklunál 4,5 og festið þráðinn með 1 keðjulykkju yst í neðri kant á hægra framstykki og heklið meðfram kanti upp að hálsmáli þannig: * Heklið 3 loftlykkjur (= yfir rendur í litnum crimson rauður), heklið 1 keðjulykkju efst í rönd með litnum crimson rauður, heklið 4 loftlykkjur (= yfir rendur í litnum ljós beige), 1 keðjulykkja neðst í rönd með litnum crimson rauður *, heklið frá *-* upp að kanti í hálsmáli, haldið áfram að hekla í kringum kant í hálsmáli þannig: * Heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, heklið 1 keðjulykkju í næsta stuðul (= 1 keðjulykkja í annan hvern stuðul) *, heklið frá *-* fram að lok á kanti í hálsmáli, haldið áfram að hekla niður meðfram vinstra framstykki á sama hátt og var gert meðfram hægra framstykki. Með þessu þá eru keðjulykkjurnar einungis festar í rendur í sama lit og kantur að framan og sjást þar af leiðandi minna. Næsta umferð er hekluð þannig: 3 stuðlar um loftlykkjuboga yfir rendur í litnum crimson rauður og 5 stuðlar um loftlykkjuboga yfir rendur í litnum ljós beige og í kringum hálsmál eru heklaðir 2 stuðlar um hvern loftlykkjuboga. Klippið og festið þræðina. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki, fyrsta talan er saumið í skiptinguna á milli 1. og 2. umferðar frá hálsmáli, síðan eru næstu 5-5-5-5-6-6 tölur saumaðar í skiptinguna á milli 2 randa eftir 3. hverja rönd. Tölum er hneppt í götin í heklaða kant að framan á hægra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. Ertu búin að klára þetta mynstur? |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.