Valérie skrifaði:
Bonjour. Après la mise en attente des manches je ne trouve pas les explications (avec les fils marqueurs) pour la taille 1 mois pour arriver à 110m du dos et devant. Les explications ne sont que pour 12/18 mois, 2 ans. Un grand merci
16.03.2021 - 13:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Valérie, j'ai ajouté un espace pour délimiter les paragraphes pour les augmentations du raglan, continuez maintenant avec le paragraphe commençant par Continuer en jersey en allers et retours avec 5 mailles de bordure devant au point mousse de chaque côté. Après 2 rangs, augmenter pour le RAGLAN au rang suivant sur l'endroit – voir ci-dessus. Augmenter ainsi 2 (3) fois au total tous les 4 rangs (c'est-à-dire tous les 2 rangs sur l'endroit)..... Bon tricot!
16.03.2021 - 14:39
Alexandra skrifaði:
Bonjour! Est-ce que le modèle du pull peut se tricoter avec des aiguilles droites et est-ce que ça change les explications? Pouvez-vous publier s'il vous plait plus de modèles avec des aiguilles droites comme avant??? il y a trop de modèles avec des aiguilles circulaires!!!!!!! Merci
17.02.2021 - 09:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Alexandra, cette leçon explique comment adapter un modèle sur aiguilles droites, vous pourrez tricoter le gilet sur aiguilles droites, mais pour les manches, il sera peut être plus facile d'utiliser des doubles pointes ou une circulaire. Votre magasin saura vous aider et vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
17.02.2021 - 13:44
Kaye Bird skrifaði:
Still unable to print this pattern
03.01.2021 - 04:43DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bird, have you checked your printer's settings? You should be able to print it either on a virtual printer or on a real one clicking on the button "print" - but also check that your browser allow pop up. Happy knitting!
04.01.2021 - 16:04
Kaye Bird skrifaði:
Is there a free pdf pattern for the stroll in the park
02.01.2021 - 07:51DROPS Design svaraði:
Dear Kaye. All of the patterns in this website are free. To get the pdf, you should click on print and then, in your computer’s printing screen, select save as pdf. Happy knitting!
02.01.2021 - 13:01
Cristina Linares skrifaði:
Se puede hacer el modelo baby33-26 con dos agujas el lugar de las circulares? Gracias. Saludos.
01.12.2020 - 17:08DROPS Design svaraði:
Hola Cristina! Como adaptar un patrón para agujas circulares y tejerlo con agujas rectas encontreras en el video AQUI. Buen trabajo!
02.12.2020 - 10:06
Britt Matisen skrifaði:
Hei. Er det mulig å få oppskrift på denne babyjakken i dame str. ?
24.10.2020 - 19:01DROPS Design svaraði:
Hei Britt. Ta en titt på jakken i DROPS 179-1, samme teknikk. God Fornøyelse!
25.10.2020 - 20:56
Maria skrifaði:
W instrukcji do szortów jest napisane, żeby mierzyć długość spodni od rzędu nabierania oczek - ale długość spodni jest inna z przodu a inna z tyłu - ze względu na podwyższenie tyłu. Gdzie mierzyć w takim razie?
20.10.2020 - 22:17DROPS Design svaraði:
Witaj Mario, należny zawsze mierzyć wzdłuż przodu. Pozdrawiamy!
21.10.2020 - 10:11
Martina skrifaði:
Leider klappen bei mir die Krausrippen der Jacke unten nach oben. Was kann ich tun damit dies nicht passiert. Beim Ärmel ist dies nicht der Fall.
26.09.2020 - 00:12DROPS Design svaraði:
Liebe Martina, Sie können die Jacke mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen.
28.09.2020 - 08:45
Kerstin skrifaði:
I beskrivningen saknas förklaring på RÄTSTICKNING (runt). Jag förstår hur det ska göras, men i alla fall...
21.09.2020 - 12:08DROPS Design svaraði:
Hej Kerstin. Tack för info! Detta har nu lagts till. Mvh DROPS Design
22.09.2020 - 08:54
Stina skrifaði:
Hej! Kanten längst ner på koftan rullar sig för mig. Har följt mönstret och stickat en kant med rätstickning längst ner men ändå rullar den upp sig. Vad har jag gjort för fel och hur kan jag lösa det?
14.09.2020 - 07:26DROPS Design svaraði:
Hei Stina. Prøv å damp kanten lett. vmh DROPS design
14.09.2020 - 14:02
Stroll in the Park#strollintheparkset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og áferðamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stuttar buxur með snúru og stroffi. Stykkin eru prjónuð úr DROPS BabyMerino eða DROPS Alpaca. Stærð fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 33-26 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir á peysu): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11 lykkjur) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan. LASKALÍNA (á við um stærð 12/18 mán og 2 ára): Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í hverri útauknings umferð). Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi á peysu og innan á skálmum á buxum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati í fyrstu umferð frá réttu eftir kant í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 4 næstu hnappagötum með ca 5 cm millibili. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um mitt að framan og mitt að aftan á buxum): Byrjið á 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á PEYSU HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp (68) 72-78-82-84 (86) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Baby Merino eða Alpaca. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (11) 16-16-18-19 (20) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = (79) 88-94-100-103 (106) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir slétt). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1A (= 2 lykkjur), prjónið A.1B þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð (= (21) 24-26-28-29 (30) mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið A.1C (= 4 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og mynsturteikning sýnir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru (148) 166-178-190-196 (202) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 7 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið JAFNFRAMT út (10) 16-20-24-14 (12) lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = (158) 182-198-214-210 (214) lykkjur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan mismunandi eftir stærðum. FYRIRBURAR, 0/1 MÁNAÐA, 1/3 MÁNAÐA, 6/9 MÁNAÐA: Haldið áfram með sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist (9) 9-10-11 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: Prjónið (25) 28-31-33 lykkjur (= framstykki), setjið næstu (34) 40-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið (40) 46-52-56 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu (34) 40-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið (25) 28-31-33 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! 12/18 MÁNAÐA, 2 ÁRA: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Fyrsta prjónamerki er sett eftir fyrstu 33 (34) lykkjurnar (= framstykki), 2. prjónamerki er sett eftir næstu 44 (44) lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett eftir næstu 56 (58) lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 44-44 lykkjur (= ermi). Nú eru 33 (34) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Haldið áfram með sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir er aukið út fyrir LASKALÍNA í næstu umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2 (3) sinnum. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 226 (238) lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12 (13) cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: Prjónið 35 (37) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 60 (64) lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 35 (37) lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (98) 110-126-134-146 (154) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist (7) 11-14-15-17 (19) cm frá skiptingu er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca (20) 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (3) 2-2-1½-1½ (1½) cm millibili alls (2) 4-6-7-9 (9) sinnum = (34) 36-36-38-38 (40) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (7) 11-14-15-18 (19) cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 3 og fellið laust af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca (8) 12-15-16-19 (20) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kanti að framan. ------------------------------------------------------- STUTTAR BUXUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. STUTTAR BUXUR: Fitjið upp (96) 106-116-132-144 (152) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino eða Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2½ cm prjónið gataumferð fyrir snúru þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= (24) 26-29-33-36 (38) gat í umferð). Haldið síðan áfram með stroff með 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið þar til stykkið mælist 4 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (10) 10-10-12-14 (18) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = (86) 96-106-120-130 (134) lykkjur. Prjónið nú upphækkun aftan á buxum eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Til að flíkin passi betur eru buxurnar prjónaðar hærri að aftan en að framan. Þetta er gert með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 8 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið stykki, herðið á þræði og prjónið 16 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan STUTTAR BUXUR: Haldið áfram hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar buxurnar mælast (14) 16-17-20-21 (22) cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan er sett 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = (110) 120-130-144-154 (158) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (18) 20-21-24-25 (26) cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Nú skiptist stykkið fyrir skálmar við bæði prjónamerkin. Setjið helming af lykkjum á þráð eða á hjálparprjón og prjónið skálm yfir þær lykkjur sem eftir eru eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! SKÁLM: = (55) 60-65-72-77 (79) lykkjur. Skiptið lykkjunum á sokkaprjóna 3 og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT eftir 1 umferð er fækkað um 2 lykkjur innan á skálm – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (2) 2-2-2-3 (3) sinnum = (51) 56-61-68-71 (73) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um (5) 6-7-8-9 (9) lykkjur jafnt yfir = (56) 62-68-76-80 (82) lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina skálmina á sama hátt. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gataumferðina á buxunum og hnýtið slaufu mitt að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strollintheparkset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.