DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stroll in the Park Booties

Prjónaðar tátiljur fyrir börn með fölskum köðlum úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar – 4 ára.

DROPS Baby 33-27
DROPS Design: Mynstur bm-099-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
(fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd á fæti: (8) 9-10-11-12 (14-16) cm

EFNI:
DROPS BABY MERINIO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50) 50-50-50-50 (100-100) g litur 45, sítróna

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNN 2,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan.

TÁTILJA:
Fitjið upp (44) 44-48-52-52 (56-56) lykkjur á prjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. Haldið svona áfram með stroff í (4) 4-4-5-5 (6-7) cm – næsta umferð er prjónuð þannig, frá réttu: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist (5) 5-5-6-6 (7-8) cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um (9) 9-11-13-13 (13-13) lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = (35) 35-37-39-39 (43-43) lykkjur. Klippið frá.
Setjið nú ystu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjur í hvorri hlið á þráð = 13 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum. Prjónið A.1 yfir 13 lykkjur, byrjið frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur í (3) 3½-4-4½-5½ (6½-8) cm, prjónið síðustu umferð frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um (5) 5-3-1-1 (1-1) lykkjur yfir 13 lykkjur, klippið frá.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið lykkjur af þræði í annarri hliðinni, prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur meðfram hlið á miðju stykki, prjónið (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni (= fram), prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur meðfram hinni hlið á miðju stykki og prjónið lykkjur frá seinni þræði = (44) 48-54-60-64 (74-84) lykkjur í umferð. Prjónið (2½) 3-3-4-5 (5-5) cm með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eftir (1) 1½-1½-2-3 (3-3) cm lykkjum fækkað í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok umferðar með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 kantlykkju. Að auki eru prjónaðar 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjur í umferð (= 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð) = ca (32) 36-42-48-52 (62-72) lykkjur eftir í umferð. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

SNÚRA:
Klippið 3 þræði ca 1 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum gataumferðina á tátilju (byrjið og endið mitt að framan).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.01.2021
TÁTILJUR, ný mál:...Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. Haldið svona áfram með stroff í (4) 4-4-5-5 (6-7) cm

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Szekér Gabriella wrote:

Az A 1- és mintához tartozó magyarázat nem pontos: két különböző jelöléshez ugyanaz a magyarázat tartozik( fordított a színe oldalon, sima a fonák oldalon)

10.03.2024 - 18:22

country flag Marianne Van Gijlswijk wrote:

De instructie in het Nederlandse patroon is niet juist. Er staat: = 1 steek recht afhalen, 2 recht samen en haal de afgehaalde steek over de samengebreide steken. Dit moet zijn: 1 steek recht afhalen, 2 steken recht breien en haal de afgehaalde steek over de 2 recht gebreide steken heen.

09.11.2023 - 10:55

country flag Katya wrote:

I don't understand how to make a reduction in the middle of the row.("In addition decrease by knitting 2 stitches together on each side of the 2 knitted stitches in the middle of the row (= 4 stitches decreased every 2nd row) = (32) 36-42-48-52 (62-72) stitches left on needle")How many stitches should I have left between the two places, where I decrease in the middle of the row, if I knit the smallest size of a slipper.Could your, please make a scheme of reduction ?

02.08.2023 - 03:34

DROPS Design answered:

Dear Katya, insert a marker in the middle of the middle 8, 10 or 12 stitches on top of foot (see size) this means in the middle of the row and work as follows: knit 1, decrease 1 stitch, work until 3 stitches remain before marker, K2 tog, K1, marker, K1, K2 tog, work until 3 stitches remain before end of the row, K2 tog, K1. Happy knitting!

02.08.2023 - 07:56

country flag Virginie Miani wrote:

Bonjour Ce modèle est conçu avec une couture, est-il donc possible de le tricoter avec des aiguilles droites, sans aménagement ? Merci de votre réponse.

10.02.2023 - 18:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Miani, vraisemblablement, toutefois, la partie du pied peut être plus simple à tricoter sur aiguille circulaire (cf cette vidéo qui montre comment tricoter un modèle similaire). Bon tricot!

13.02.2023 - 08:50

country flag Sabrina wrote:

I am not 100% sure: do I knit in circles from the start or is it a square? I followed instructions but it’s not round so far so I am worried

06.06.2022 - 18:03

DROPS Design answered:

Dear Sabrina, you are working in rows, ie back and forth on needle. You start with the top of leg, then slip sts on each side on a thread and work the upper foot, then pick up stitches along the both sides of upper foot and work down towards mid under foot. Then sew the seam mid under foot + mid back. Happy knitting!

07.06.2022 - 10:17

country flag Helga wrote:

Ist im Diagramm A1 Hin-und Rückreihe dargestellt? In den ersten beiden Reihen steht z.B. Hinreihe re, Rückreihe li, d.h. ein rapport A1 geht über insgesamt 16 Reihen? Danke, Helga

24.05.2022 - 11:07

DROPS Design answered:

Liebe Helga, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet; 1. Reihe ist eine Hinreihe (lesen Sie rechts nach links), 2. Reihe ist eine Rückreihe (lesen Sie links nach rechts) usw, dh. A.1 ist über 8 Reihen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

24.05.2022 - 13:46

country flag Marie Serruys wrote:

Tot waar moet je patroon A1 breien ?Wanneer je de steken van op de hulpdraad breit en dan steken opneemt, begint dan al de ribbelsteek ?

15.01.2022 - 20:50

DROPS Design answered:

Dag Marie,

Ja dat klopt, op dat moment begint gelijk de ribbelsteek.

16.01.2022 - 14:01

country flag Mary wrote:

In rows 1 and 5, there is the black square for skip stitch, however there is not a row previous to row 1 that you decrease. The directions go directly to “work A1”

07.10.2021 - 19:54

DROPS Design answered:

Dear Mary, the black square is directly above the symbole that says "slip 1 stitch as if to knit, knit 2 and pass the slipped stitch over" which means yoz ARE decreasing one stitch. Yes, there is a yarnover to make up for it, that is why you have the full stitchnumber in the next row. Happy Stitching!

08.10.2021 - 01:21

country flag Emma wrote:

Ik krijg geen telpatroon in beeld en andere figuren laden ook niet op de website (via Chrome en Safari). Zijn dit soort problemen bekend? Kan ik op een andere manier het telpatroon krijgen?

25.09.2021 - 21:02

DROPS Design answered:

Dag Emma,

Er is een storing geweest bij het laden van de afbeeldingen, inmiddels werkt alles weer naar behoren als het goed is.

02.10.2021 - 12:49

country flag G Van Renswoude wrote:

Beste kom ook niet uit tel patroon,wat is er fout aan?

04.09.2021 - 14:26

DROPS Design answered:

Dag G Van Renswoude ,

Kan je aangeven waar je precies tegenaan loopt? Dan kunnen we je wellicht beter helpen. Gaat het om het zwarte hokje wat geen steek is? Dit hokje sla je namelijk over, dus je breit op die naald 1 averecht aan de goede kant, 1 recht, 1 omslag, 1 recht, averecht aan de goede kant, enzovoort...

12.09.2021 - 17:58