DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11110.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

White Cascade Cardigan

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca eða DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, og hekluðum kanti. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 257-25

#whitecascadecardigan

DROPS Design: Mynstur z-1050
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 gr litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150 gr litur 56, marsipan

Eða notið:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 gr litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150 gr litur 56, marsipan

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522: 5-5-6-6-6-6 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11110.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HEKLAÐUR KANTUR:
Sjá mynsturteikningu A.2 til A.4 (á við um ermi) og mynsturteikningu A.5 og A.6 (á við um framstykki og kant í hálsmáli).

LASKALÍNA:
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI:
Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón, prjóna aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI:
Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 6 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp í kringum hálsmál og prjónað er fram og til baka á hringprjóna – jafnframt því sem prjónaðar eru stuttar umferðir í kringum hálsmál til að forma hálsmáli. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða og lykkjum fækkað í hvorri hlið á fram- og bakstykki til að forma stykkið.
Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er heklaður kantur meðfram framstykkjum og hálsmáli og neðst í kringum báðar ermar.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 95-99-103-111-111-115 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Alpaca eða 1 þræði DROPS Nord saman með 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 3 umferðir MYNSTUR fram og til baka – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið A.1 þar til eftir er 1 lykkja í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi á sama hátt.
Eftir þessar 3 umferðir, setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= miðja að aftan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni.
Teljið 15-16-17-17-17-18 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju,
teljið 29-31-33-33-33-35 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju,
teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 15-16-17-17-17-18 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki).

Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón og kant í hálsmáli með stuttum umferðum JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir LASKALÍNU – sjá útskýringu að ofan og lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN áður en prjónað er áfram. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu!

HÁLSMÁL:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið 3 lykkjur A.1, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri), prjónið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 4. merki í (þ.e.a.s. í hægri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð, með réttuna út), snúið stykkinu og herðið á þræði – munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 1. merki í (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri) þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 4. merki, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga):
Prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 1. merki, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri) þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 4. merki, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga):
Prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðasta var snúið við 1. merki, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 7 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri) þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 4. Merki, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 8 (= ranga):
Prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 1. merki, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 9 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri), síðan er prjónað í sléttprjóni þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 3 lykkjur A.1.

Hálsmál hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur = 135-139-143-151-151-155 lykkjur.
Prjónið síðan berustykki fram og til baka yfir allar lykkjur frá miðju að framan JAFNFRAMT sem útaukning fyrir lakslínu heldur áfram eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKIÐ HELDUR ÁFRAM:
UMFERÐ 1 (= ranga):
Prjónið brugðið með 3 lykkjur A.1 í hvorri hlið.
UMFERÐ 2 (= rétta):
Prjónið slétt með 3 lykkjur A.1 í hvorri hlið og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri).
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-9-12-16-13 sinnum (= 10-10-18-24-32-26 umferðir prjónaðar) = 175-179-215-247-279-259 lykkjur.

Síðan er prjónað og aukið út þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga):
Prjónið brugðið með 3 lykkjur A.1 í hvorri hlið.
UMFERÐ 2 (= rétta):
Prjónið slétt með 3 lykkjur A.1 í hvorri hlið og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 3 (= ranga):
Prjónið brugðið með 3 lykkjur í A.1 í hvorri hlið.
UMFERÐ 4 (= rétta):
Prjónið slétt með 3 lykkjur A.1 í hvorri hlið og aukið út fyrir laskalínu á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri).
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-8-7-6-5-8 sinnum (= 28-32-28-24-20-32 umferðir prjónaðar).

Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 24-26-28-29-31-34 sinnum á framstykkjum og bakstykki 17-18-21-23-26-26 sinnum á ermum = 259-275-299-319-339-355 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur A.1 í hvorri hlið eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Í stærð S, M og L skiptist berustykkið mitt í laskalínu, í stærð XL, XXL og XXXL skiptist berustykkið þannig að laskalínur verða staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki.
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 39-42-45-48-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 52-54-60-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 77-83-89-95-103-111 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 52-54-60-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 39-42-45-48-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 167-183-195-215-235-255 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 6-8-8-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur A.1 í hvorri hlið eins og áður.
Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-7-7 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 5-5-5-5-7-7 cm alls 3-3-3-3-2-2 sinnum = 155-171-183-203-227-247 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur A.1 í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 40-42-44-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að aftan.
Nú er prjónaður kantur í perluprjóni þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir með A.1, eru fellt af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Peysan mælist 41-43-45-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 46-48-50-52-54-56 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 52-54-60-64-66-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-68-76-80-82 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Fækkið 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-1½-1½-1½ cm alls 2-3-5-8-9-9 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-39-38-37-36 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 3 umferðir hringinn með A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Ermin mælist ca 42-41-40-39-38-37 cm frá skiptingunni.

HEKLAÐUR KANTUR ERMAR:
Notið heklunál 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræði), lesið LEIÐBEININGAR HEKLAÐUR KANTUR í útskýringu að ofan og byrjið frá réttu fyrir miðju undir ermi. Heklið A.2 í fyrstu lykkju, heklið A.3 hringinn á ermi þar til eftir er ca 1½ cm í umferð, heklið A.4. Þegar A.2 þar til A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið og festið þræði.

HEKLAÐUR KANTUR FRAMSTYKKI OG HÁLSMÁL:
Notið heklunál 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræði), lesið LEIÐBEININGAR HEKLAÐUR KANTUR í útskýringu að ofan og byrjið frá röngu neðst í vinstra framstykki, heklið A.5 í fyrstu lykkju, heklið síðan A.6 upp meðfram kanti á vinstra framstykki, í kringum hálsmál og síðan niður kant á hægra framstykki (stillið af að heklaðir séu jafnmargir bogar meðfram báðum framstykkjum), snúið stykkinu og heklið næstu umferð til baka frá réttu. Klippið og festið þráðinn.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í jafnt yfir á vinstra framstykki, mitt í 3 lykkjur með A.1.
Efsta talan er staðsett ca 1 cm fyrir neðan heklaða kant í hálsmáli og neðsta talan er staðsett ca 4 cm frá kanti neðst. Tölum er hneppt í gegnum heklaða kant meðfram hægra framstykki.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu <br />
<br />
= Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

1 lykkja á flíkinni = 1 lykkja á flíkinni
Hoppið yfir ca 1,5 cm á flíkinni = Hoppið yfir ca 1,5 cm á flíkinni
1 fastalykkja í lykkju á flík / 1 fastalykkja í lykkju fyrir neðan<br />
<br />
= 1 fastalykkja í lykkju á flík / 1 fastalykkja í lykkju fyrir neðan

1 fastalykkja um loftlykkjuboga = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull
Í byrjun umferðar er hekluð 1 loftlykkja, umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju = Í byrjun umferðar er hekluð 1 loftlykkja, umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju
Í byrjun umferðar er hekluð 1 loftlykkja, umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju, síðan eru heklaðar keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga = Í byrjun umferðar er hekluð 1 loftlykkja, umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju, síðan eru heklaðar keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga
3 loftlykkjur, 1 hálfur stuðull í 2. loftlykkju sem var hekluð, 1 stuðull í 3. loftlykkju sem var hekluð = 3 loftlykkjur, 1 hálfur stuðull í 2. loftlykkju sem var hekluð, 1 stuðull í 3. loftlykkju sem var hekluð
3 loftlykkjur, 1 hálfur stuðull í 2. loftlykkju sem var hekluð, 1 stuðull í 3. loftlykkju sem var hekluð, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 3 loftlykkjur, 1 hálfur stuðull í 2. loftlykkju sem var hekluð, 1 stuðull í 3. loftlykkju sem var hekluð, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar
Diagram for DROPS 257-25
Diagram for DROPS 257-25

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitecascadecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Ewa Ebbesson skrifaði:

Jag får inte ihop hur det kan bli 275 maskor i M efter raglan ökningarna. 99,8,8,8,8,8 =139 m 139,8,8,8,8,8 = 179 m 179,4,4,4,4,4,4,4,4=211m Då ska alla ökningar vara klara och det skulle vara 275 maskor, men det är det ju inte så måste vara något ni inte har förklarat i mönstret

19.03.2025 - 13:39

DROPS Design svaraði:

Hej Ewa. När du har 179 maskor så ska du sticka som förklarat i varv 1-4 och du stickar dessa 4 varv totalt 8 gånger. På varv 2 ökas det 8 maskor och på varv 4 ökas det 4 maskor. Dvs på dessa 4 varv ökas det 12 maskor, 12 maskor x 8 gånger = 96 maskor. 179+96= 275 m. Mvh DROPS Design

21.03.2025 - 11:33

country flag Sabine skrifaði:

Bonjour, Je fais la M de ce modèle, j'ai monté 99 mailles, mais pour l'encolure je n'arrive pas au même résultat que vous pour les rangs raccourci , il ne me reste pas 3 mailles à la fin du rang 9 mais bien plus. Je dois faire 3 rangs raccourcis supplémentaire pour arriver aux 3 mailles de fin de rang. J'ai donc 163 mailles à la fin de l'encolure au lieu de 139. Où est l'erreur svp ?

17.03.2025 - 22:19

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sabine, vous devez augmenter pour le raglan à chaque rang sur l'endroit soit 4 fois 8 mailles = 32 + les 99 mailles montées = 131 + les 8 mailles augmentées au 9ème rang = 139 mailles. À la fin du 9ème rang, vous tricotez simplement toutes les mailles jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles avant la fin du rang et vous tricotez ces 3 mailles comme dans A.1. Au rang suivant = sur l'envers, vous tricotez A.1 au début et à la fin du rang ainsi, vous avez maintenant A.1 de chaque côté. Bon tricot!

18.03.2025 - 10:12

country flag Ineke Berg skrifaði:

Sierlijk vestje.

07.03.2025 - 23:46

country flag Kyoungmi skrifaði:

Hi nice to meet you

25.02.2025 - 03:18