Yousra Mawazini skrifaði:
Bonjour, pour l'épaule gauche, on fait d'abord le motif A1 sur 24 m, puis A3 sur 26 m (2 mailles ont été augmentée avant la 1ère torsade) par la suite on continue avec A3 sur les 10 rangs suivant. Sauf que, je vois qu'il y a une erreur, et la petite torsade sur 3 mailles ne fonctionne plus, comme s'il y un rang de plus. Pouvez-vous m'expliquer comment faire.
13.04.2024 - 23:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mawazini, quelle taille tricotez-vous? Car dans les diagrammes XXL et XXXL, A.1 se commence sur 21 mailles, on augmente 2 mailles avant la 1è!re torsade pour tricoter A.3 sur 23 mailles au total. Lorsque vous répétez A.3 en hauteur, répétez les torsades comme avant pour avoir les bons croisements quand il faut, même s'ils ne sont plus faits aux mêmes rangs qu'avant. Bon tricot!
15.04.2024 - 07:43
Magdimansour skrifaði:
Bonjour, pour l'épaule gauche, on fait d'abord le motif A1 sur 24 m, puis A3 sur 26 m (2 mailles ont été augmentée avant la 1ère torsade) par la suite on continue avec A3 sur les 10 rangs suivant. Sauf que, je vois qu'il y a une erreur, et la petite torsade sur 3 mailles ne fonctionne plus, comme s'il y un rang de plus. Pouvez-vous m'expliquer comment faire.
13.04.2024 - 23:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Magdimansour, A.1 se tricote sur 21 mailles dans les tailles XXL et XXXL, et on augmente 2 mailles au 4ème rang pour avoir 23 mailles. Lorsque vous répétez A.3 par la suite, répétez le bon nombre de rangs pour la grande torsade mais continuez les petites torsades comme avant, autrement dit, il est possible qu'elles ne se fassent pas aux mêmes rangs qu'avant, mais il faut bien conserver le rythme des petites torsades comme avant. Bon tricot!
15.04.2024 - 07:41
Miri skrifaði:
Hallo Ich möchte gerne den Pulli stricken aber ein anderes Garn nutzen. Nun bekomme ich beim Umrechnen allerdings sehr verschiedene Ergebnisse raus, je nachdem ob ich mich nach DropsAir oder DropsParis richte. An welchem Garn sollte ich mich eher orientieren?
30.03.2024 - 12:16DROPS Design svaraði:
Liebe Miri, benutzen Sie die kleinere Angabe/Lauflänge für Ihre Größe - je nach Lauflänge wird die Garnmenge in gram verschieden sein. Viel Spaß beim stricken!
02.04.2024 - 14:25
Arlene Ruhle skrifaði:
How do I download free patterns
22.03.2024 - 17:34DROPS Design svaraði:
Dear Ariene, right above the line that says "Pattern Instructions" there is a line where you can select the language, and in there is a printer icon. Click on that and that gives you the PDF pattern. Happy Knitting!
23.03.2024 - 22:52
Mariolina skrifaði:
Buongiorno vorrei fare un maglione della taglia 58/60 mi fate vedere alcuni modelli con spiegazioni semplici? grazie
29.02.2024 - 15:35DROPS Design svaraði:
Buongiorno Mariolina, può trovare le misure dei nostri modelli per le diverse taglia in fondo ad ogni pagina del modello: le confronti con un modello in suo possesso e può trovare la taglia corretta. Buon lavoro!
02.03.2024 - 11:35
Katja skrifaði:
Guten Tag, wo finde ich den V-Ausschnitt bei dem Modell?
17.02.2024 - 14:12DROPS Design svaraði:
Liebe Katja, danke für den Hinweis, es sieht so aus, daß die Beschreibung geändert sollte, da hier es kein V-Ausschnitt ist. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2024 - 08:59
MANUELA ZANONI skrifaði:
Vorrei fare il mod 250-33 sostituendo il filato con Alpaca e silk mohair, potrebbe andare bene? acquisterei on line, chimi assiste per la scelta del colore? Alpaca Lampone e kidsilk lampone o ciliegia? grazie.
09.02.2024 - 14:43DROPS Design svaraði:
Buonasera Manuela, se acquista online può chiedere assistenza direttamente al negozio da cui acquista per la scelta di colori. Buon lavoro!
11.02.2024 - 14:42
Marlies Van Dijk skrifaði:
Erg mooi
18.01.2024 - 21:54
Eva skrifaði:
Red Berry
18.01.2024 - 19:57
Sabine HENRICH skrifaði:
J'aime la couleur pétillante de ce superbe pull ! J'aime aussi son design épuré
18.01.2024 - 13:19
Berry Me Sweater#berrymesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-33 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (frá réttu): Aukið út brugðið til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Aukið út brugðið lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1/A.3 og A.2/A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Bakstykkið er látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er prjónað fyrst í 2 hlutum. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram hægri öxl, prjónið samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á vinstri öxl. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama prjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptist fyrir klauf. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveginn. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Framstykkið er prjónað með mynstri, bakstykkið er prjónað í sléttprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 31-31-33-35-37-37 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air eða DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 24-28-28-32-34-38 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 79-87-89-99-105-113 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 11-12-12-13-12-13 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 85-93-97-107-115-123 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-13-14-15-15-16 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð): Prjónið upp 24-28-28-32-34-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá D í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, næsta umferð er prjónuð þannig - frá réttu: 3 lykkjur sléttprjón, A.1, sléttprjón yfir síðustu 6-10-10-14-10-14 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.3 yfir allar lykkjur í A.1 (aukið er út um 2 lykkju í A.1 á undan fyrsta kaðli) = 26-30-30-34-36-40 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmá eins og útskýrt er að neðan. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju brugðið til vinstri, prjónið mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru – lesið ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu = 29-33-33-37-39-43 lykkjur. Prjónið 1 umferð með mynstri frá röngu, klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 24-28-28-32-34-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá E í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 6-10-10-14-10-14 lykkjur slétt, A.2, 3 lykkjur slétt. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.4 yfir lykkjur í A.2 (aukið er út um 2 lykkjur í A.2 á undan fyrsta kaðli) = 26-30-30-34-36-40 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál eins og útskýrt er að neðan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju brugðið til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu = 29-33-33-37-39-43 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. ATH! Passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umferðir á hægri og vinstri öxl! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir 29-33-33-37-39-43 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 25-25-27-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan mynstur eins og áður yfir 29-33-33-37-39-43 lykkjur frá vinstra framstykki = 83-91-93-103-109-117 lykkjur (vegna kaðla eru 4 lykkjur fleiri á framstykki en á bakstykki). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6-10-10-14-10-14 lykkjur brugið, A.3, 3 lykkjur slétt, 31-31-33-35-37-37 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, A.4, 6-10-10-14-10-14 lykkjur brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6-10-10-14-10-14 lykkjur slétt, A.4, 3 lykkjur brugðið, A.5 yfir næstu 31-31-33-35-37-37 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.3, 6-10-10-14-10-14 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 22-24-25-26-27-28 cm. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 89-97-101-111-119-127 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-27-28-29-31-32 cm. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið mynstur eins og áður yfir 89-97-101-111-119-123 lykkjur í umferð, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir 85-93-97-107-115-127 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi) = 186-202-214-234-254-274 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 10-10-12-16-18-20 lykkjur undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri hringinn þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndast klauf í hliðum. Setjið 91-99-105-115-125-135 lykkjur frá bakstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá framstykki. FRAMSTYKKI: = 95-103-109-119-129-139. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 39-43-45-51-53-59 lykkjur jafnt yfir = 134-146-154-170-182-198 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í sléttprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efsta punkti á öxl á framstykki. BAKSTYKKI: = 91-99-105-115-125-135. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 43-47-49-55-57-63 lykkjur jafnt yfir = 134-146-154-170-182-198 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-8 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl Notið hringprjón 4,5, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 74-78-86-88-92-98 lykkjur í kringum handveg – passið uppá að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur meðfram handvegi hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form. Byrjið mitt undir ermi. Umferð 1 (rétta): Prjónið slétt 9-10-10-11-11-12 lykkjur fram hjá merki, snúið stykki. Umferð 2 (ranga): Prjónið brugðið 9-10-10-11-11-12 lykkjur fram hjá merki, snúið. Umferð 3 (rétta): Prjónið slétt 4-4-4-4-4-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Umferð 4 (ranga): Prjónið brugðið 4-4-4-4-4-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til prjónaðar hafa verið 29-30-34-35-39-36 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi (nú hefur verið snúið við 6-6-7-7-8-9 sinnum í hvorri hlið). Prjónið frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið síðan í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 7-7-8-8-10-10 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina er gerð mitt ofan á ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3-3-4-4-5-6 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 3-2½-2½-2-2-1½ cm 10-11-13-13-13-14 sinnum, fækkið alls 13-14-17-17-18-20 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-44-42-41-40 cm. Það eru ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-12-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 52-51-52-50-49-48 cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkjur ca 100 til 112 lykkjur á hringprjón 3,5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #berrymesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.