DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14036.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sand Trails

Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 248-3
DROPS Design: Mynstur ai-470
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-500 g litur 02, hveiti
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
175-175-200-225-250-275 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
17 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með mynstri og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14036.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan er of stíf á hæðina, þá verður handvegur of lítill – hægt er að jafna þetta út með því að prjóna nokkrar umferðir fleiri á milli úrtöku.

LASKALÍNA:
Aukið út lykkum á undan og á eftir merkiþráðum.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt / brugðið eins og áður (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón (mikilvægt er að lykkjur sem auknar er út passi við stroff sem þegar hefur verið prjónað hvoru megin við A.1, A.2 og A.3, ekki við miðju að neðan/undir).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring upp að handvegi. Fram- og bakstykki og ermar er sett saman og berustykkið er prjónað í hring á meðan lykkjum er fækkað fyrir laskalínu. Í lokin er kantur í hálsmáli prjónaður sem brotinn er inn og saumaður niður að röngu. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 160-176-208-208-224-256 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið hringinn í stroff þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju brugðið.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 80-88-104-104-112-128 lykkjur, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja brugðið.
Prjónið stroff þar til stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið lykkjur frá framstykki þannig: * Prjónið 1 lykkju brugðið, stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 0-4-4-4-8-8 lykkjur, A.1, A.2 yfir næstu 24-24-32-32-32-40 lykkjur, A.3, 2 lykkjur brugðið (= mitt framan á stykki), A.4, A.5 yfir næstu 24-24-32-32-32-40 lykkjur, A.6, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 0-4-4-4-8-8 lykkjur og prjónið 1 lykkju brugðið *, merkiþráðurinn situr hér, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar yfir lykkjur á bakstykki. Haldið áfram með þetta mynstur upp úr.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 36-36-37-38-38-38 cm, athugið vel í hvaða umferð í mynstri sem var síðasta prjónaða umferðin.

SKIPTING FYRIR HANDVEG:
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki, prjónið umferðina þannig: Fellið af fyrstu 4-4-5-5-7-7 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 72-80-94-94-98-114 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 8-8-10-10-14-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 72-80-94-94-98-114 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 4-4-5-5-7-7 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn og leggið fram- og bakstykki til hliðar á meðan ermar eru prjónaðar.

ERMAR:
Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið hringinn í stroffprjóni (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) í 8-8-8-9-9-9 cm.
Setjið 1 merkiþráð á milli 2 fyrstu lykkja brugðið í stærð S, M, XXL og XXXL, setjið merkiþráð á milli 2 fyrstu lykkja slétt í stærð L og XL – Nú byrjar umferðin hér. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota hann þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8, prjónið mynstur þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir næstu 5-5-7-7-9-9 lykkja, A.1, prjónið A.2 yfir næstu 24 lykkjur, A.3, prjónið stroff eins og áður yfir síðustu 5-5-7-7-9-9 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar ermin mælist 10-10-11-12-12-12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING.
Aukið svona út í ca hverjum 4-2½-3-2-2-1½ cm alls 8-12-10-14-12-16 sinnum = 64-72-72-80-80-88 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 45-44-44-44-41-40 cm – stillið af að endað sé í sömu umferð í mynstri eins og á fram- og bakstykki.
Fellið af miðju 8-8-10-10-10-10 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 4-4-5-5-5-5 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn) = 56-64-62-70-70-78 lykkjur í umferð.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur. Prjónið 1 umferð jafnframt því sem ermar eru settar inn á sama hringprjón og framstykki og bakstykki, ermar eru settar á prjóninn þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi = 256-288-312-328-336-384 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 merkiþræðir, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja). Byrjið umferð við merkiþráð á undan bakstykki.
Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu byrjar úrtaka við laskalínu við merkiþræðina – lykkjum er fækkað mismunandi við framstykki/bakstykki og ermum – lestu því ÚRTAKA FYRIR LASKALÍNU FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI og ÚRTAKA FYRIR LASKALÍNU ERMAR í kaflanum að neðan, áður en byrjað er á úrtöku fyrir laskalínu.

ÚRTAKA FYRIR LASKALÍNU FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI:
Lestu útskýringu LASKALÍNA og LEIÐBEININGAR að ofan.
Fækkað er alls 22-26-33-33-31-39 sinnum hvoru megin við framstykki/bakstykki jafnt yfir þannig:
ÚRTAKA 1: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 7-6-0-2-7-2 sinnum.
ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í hverri umferð alls 15-20-33-31-24-37 sinnum.

ÚRTAKA FYRIR LASKALÍNU ERMAR:
Lestu útskýringu á LASKALÍNA og LEIÐBEININGAR að ofan.
Fækkað er alls 22-26-25-29-29-33 sinnum hvoru megin við ermar jafnt yfir þannig:
ÚRTAKA 1: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 7-6-8-6-9-8 sinnum.
ÚRTAKA 2: Fækkið lykkjum í hverri umferð alls 15-20-17-23-20-25 sinnum.

Á EFTIR SÍÐUSTU ÚRTÖKU:
Á eftir síðustu úrtöku eru 80-80-80-80-96-96 lykkjur í umferð.
Berustykkið mælist ca 20-22-23-24-26-28 cm frá skiptingunni, peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitjunarkanti fyrir öxl. Það eru 28-28-28-28-36-36 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki/bakstykki og 12 lykkjur á milli merkiþráða á hvorri ermi.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
= 80-80-80-80-96-96 lykkjur. Prjónið síðan með hringprjón 6, frá merkiþræði á undan bakstykki og prjónið umferð 1 þannig:
* Prjónið 1 lykkju slétt, stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) – stroffið á að passa yfir mynstur frá bakstykki/framstykki, endið með 1 lykkju slétt á undan næsta merkiþræði, yfir 12 lykkjur á ermi er prjónað frá merkiþræði þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman 2 sinnum, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman 2 sinnum og 1 lykkja slétt (= 4 lykkjur færri, það eru 8 lykkjur á milli merkiþráða á ermi) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Það eru 72-72-72-72-88-88 lykkjur í umferð og stroffið gengur upp í stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið alla leiðina hringinn.
Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 13-13-13-15-15-15 cm. Fellið af aðeins laust og brjótið kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið niður – til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði ekki of stífur er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm uppábrotin.

FRÁGANGUR:
Saumið 8-8-10-10-10-10 affelldar lykkjur mitt undir ermi við 8-8-10-10-14-14 affelldar lykkjur á fram- og bakstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2024
Mynsturtexti hefur verið uppfærður

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, setjið 2 lykkjur brugðið frá kaðlaprjóni til baka yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 2 lykkjur brugðið og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, setjið 2 lykkjur brugðið frá kaðlaprjóni til baka yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 2 lykkjur brugðið og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (67)

country flag Nicole wrote:

Bonjour Tout va bien.je pensais qu’il y avait une erreur dans le nombre de mailles Tout est parfait

24.04.2024 - 10:42

country flag Nicole wrote:

Bonjour Pour la TS, combien de torsades dois je faire pour arriver au milieu du devant?(sur 40 mailles ) Merci

23.04.2024 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, je ne comprends pas vraiment votre question, à quel niveau en êtes-vous? Vous tricotez la taille S, c'est bien cela? Pouvez-vous nous en dire plus pour que nous puissions vous aider? Merci pour votre compréhension.

23.04.2024 - 12:31

country flag Tuija Lahti wrote:

Hi, Lovely pattern! Will this pattern instruction be available in finnish? If yes, when might? Or should I just use this english instruction already available?

19.04.2024 - 12:31

DROPS Design answered:

Hi Tuija, to get the Finnish instruction, please click on the drop-down menu just under 'Pattern instructions', you will see there all language versions available. Happy knitting!

19.04.2024 - 12:35

country flag Ingela wrote:

Hej! När man stickar ärmen, ska man enbart repetera mönstret A1, A2, A3 varvet runt och inte använda A4-A6?

17.04.2024 - 06:46

DROPS Design answered:

Hej Ingela, ja det stemmer :)

19.04.2024 - 14:24

country flag Grace wrote:

Can this sweater be knitted flat with sewn-in sleeves? If so, how would I go about it?

11.04.2024 - 20:03

DROPS Design answered:

Dear Grace, pleace understand that with many thousands of patterns available on our site, we cannot modify them to each individual request. However, we do have a lesson HERE on adapting patterns to a straight needle that might help you.

12.04.2024 - 02:23

country flag Monika Kapica wrote:

Bardz dziekuje i pozdrawiam ,piekne wzory

09.04.2024 - 13:45

country flag Monika Kapica wrote:

Sciagacz ogarniam chodzi mi juz o wzor w rozmiarze L jak zaczac czy 1oczko pozniej 8 +32+6+8+32+6+8+1

09.04.2024 - 10:48

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, zaczynasz od 1 oczka lewego jak wcześniej, czyli od markera: 1 ol + 4 o. (2op, 2 ol) + 8 o. (A.1) + 32 o. (A.2) + 6 o. (A.3) + 2 ol + 8 o. (A.4) + 32 o. (A.5) + 6 o. (A.6) + 4 o. (2op, 2ol) + 1 ol = 104 oczka. Pozdrawiamy!

09.04.2024 - 11:18

country flag Monika Kapica wrote:

Dziendobry chodzi mi o rozmiar L Czy na poczatku mam robic 1+8+32+6+8+32+6+8+1 ? Bo inaczej mi nie wychodzi . Dziekuje za odpowiedz.

09.04.2024 - 07:49

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, 208 dzieli się przez 4 więc przez całe okrążenie będziesz powtarzać sekwencję 2 oczka prawe, 2 oczka lewe. Zaczynasz od 1 oczka lewego, dalej przerabiasz *2 oczka prawe, 2 oczka lewe*, a gdy zostanie 3 oczka do końca okrążenia przerabiasz 2 oczka prawe i 1 oczko lewe. W ten sposób ściągacz jest niezakłócony w okrążeniu. Pozdrawiamy!

09.04.2024 - 08:47

country flag Monika Kapica wrote:

Nie moge rozgrysc wzoru na poczatku za sciagaczem inaczej mi wychodz prosze o pomoc

08.04.2024 - 19:32

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, z czym dokładnie jest problem?

08.04.2024 - 20:58

country flag Moa Hardemo wrote:

Hej! Jag undrar vad de förskjutna rutorna i mönstret indikerar? Exempelvis i A.2, rad 9 nedifrån. Om jag hoppar över de två räta maskorna och stickar två aviga, så matchar det inte förra raden. Eller ska det vara så?

07.04.2024 - 22:50

DROPS Design answered:

Hej Moa, jo du flyttar bara flätan, du har samma antal flätor och samma antal maskor mellan :)

09.04.2024 - 11:15