Line skrifaði:
Est-ce que vous pourriez m'envoyer un vidéo-tutoriel pour savoir comment procéder pour: Poser les 4 mailles de bordure devant au début du rang au-dessus de ces 4 dernières mailles, en plaçant celle avec les boutonnières au-dessus. Tricoter ensemble 2 par 2 à l'endroit les mailles des deux bordures (on diminue 4 mailles). Merci !
14.09.2022 - 16:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Line, nous n'avons pas encore de vidéo pour cette technique, vous devez maintenant diminuer les mailles de l'une des bordure de boutonnage (et non celles de la bordure devant, correction faite, merci pour votre retour), ainsi, vous allez poser les 4 mailles de la bordure sur les 4 mailles de l'autre bordure et tricoter ces mailles ensemble 2 par 2 à l'endroit: tricotez la 1ère m de chacune des bordure ensemble, puis la 2ème m de chacune des bordures ensemble, et ainsi de suite. En espérant que ce soit un peu plus clair ainsi. Bon tricot!
14.09.2022 - 16:37
Line skrifaði:
Lorsqu'on est rendu à faire augmentation des manches, doit-on faire selon les indications avec augmentation-1 qui donne information des augmentations à l'endroit. ?
14.09.2022 - 03:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Line, vous devez suivre augmentation-1. Merci de l'avoir notifie. Nous allons corriger cela. Bon tricot!
14.09.2022 - 08:11
Line skrifaði:
Comment joindre l'ouvrage au milieu dos ? Je n'ai rien trouvé dans les vidéos. Merci !
14.09.2022 - 02:06
Christine skrifaði:
I opskriften skriver I "husk UDTAGNINGSTIPS-2" (brugt på vrangen), når man skal tage ud til ærmerne (på retsiden). Men i toppen, under UDTAGNINGSTIPS-1, står der, at denne skal bruges til ærmerne. Den er også egnet til retsiden. Er det korrekt, at jeg skal bruge UDTAGNINGSTIPS-2 til at lave ret udtagning ved ærmet, eller...??
13.06.2022 - 23:25DROPS Design svaraði:
Hei Christine. UDTAGNINGSTIPS-1 (gælder udtagning til sadelskulder, ærmer og bærestykke fra retsiden), altså ikke bare til erme. UDTAGNINGSTIPS-2 (gælder udtagning til sadelskulder fra vrangen), altså bare sadelskulder. mvh DROPS Design
20.06.2022 - 11:41
Anna Varriano skrifaði:
In the instructions for the JUMPER, it first says 'continue this rib for 3 cm', then it has a comment about remembering to do the buttonhole, then it says 'when the rib measures 4 cm, knit 1 row from the right side'. So should the ribbing be 3cm or 4 cm? Thank you!
08.05.2022 - 05:18DROPS Design svaraði:
Dear Anna, you need to work the rib 3 cm. The 4 cm sentence seems to be a typo; we will correct it as soon as possible. Thank you. Happy knitting!
08.05.2022 - 19:14
Anna Varriano skrifaði:
In the instructions for the JUMPER, it first says 'continue this rib for 3 cm', then it has a comment about remembering to do the buttonhole, then it says 'when the rib measures 4 cm, knit 1 row from the right side'
08.05.2022 - 05:17DROPS Design svaraði:
Dear Anna, please see answer above.
08.05.2022 - 19:14
Blue Pebbles#bluepebblessweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð: Fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 43-4 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá réttu): Á UNDAN MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá röngu): Á UNDAN MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri (séð frá réttu). Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri (séð frá réttu). Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (á við um kant fyrir hnappagötum aftan í hnakka): Fellið af fyrir hnappagötum í byrjun á umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. Í næstu umferð (ranga) prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með (2) 2-2½-2½-3 (3) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður þar til klaufin/opið hefur verið prjónað til loka. Síðan er stykkið sett saman og berustykkið er prjónað í hring. Jafnframt eru lykkjur auknar út fyrir axlarsæti, ermar og berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. PEYSA: Fitjið upp (70) 74-78-82-86 (94) lykkjur á hringprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram í (2) 2-2-3-3 (3) cm – munið eftir HNAPPAGAT í byrjun á umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (6) 10-10-14-14 (14) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið yfir 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) = (76) 84-88-96-100 (108) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (ystu 4 lykkjurnar eru prjónaðar slétt í hvorri hlið). Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 merki eftir 4 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu merki! Að auki eru sett 4 ný merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 merkjum eru sett á milli 2 lykkja. Merkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og merkin verða að hafa annan lit en merki við hálsmál til að aðgreina þau. Fyrsta merki: Byrjið mitt að aftan, teljið (15) 17-18-18-19-21 lykkjur (½ bakstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju. Annað merki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 1. merki (öxl), setjið 2. merki á undan næstu lykkju. Þriðja merki: Teljið (26) 30-32-32-34 (38) lykkjur frá 2. merki (framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju. Fjórða merki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 3. merki (öxl), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Nú eru (15) 17-18-18-19 (21) lykkjur eftir í umferð á eftir 4. merki (½ bakstykki). Látið þessi 4 merki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert af þessum merkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar – í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Prjónið sléttprjón með 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að aftan. Aukið út á UNDAN 1. og 3. merki og aukið út á EFTIR 2. og 4. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. merki og aukið út á EFTIR 3. og 1. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Þ.e.a.s. það er aukið út í hverri umferð og aukið er út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar leggist fallega. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls (10) 10-10-12-12 (12) sinnum = (116) 124-128-144-148 (156) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca (3) 3-3-4-4 (4) cm frá merki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan – jafnframt er stykkið sett saman mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan. Lestu ÚTAUKNING Á ERMUM og KLAUF/OP MITT AÐ AFTAN áður en þú prjónar áfram! ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að aftan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. merki og aukið út á UNDAN 2. og 4. merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Aukið svona út í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls (10) 12-11-9-9 (10) sinnum. Ermin mælist ca (9) 11-10-9-9 (10) cm frá merki við hálsmál. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka á ermi og stykkið hefur verið sett saman (eins og útskýrt er að neðan) eru (152) 168-168-176-180 (192) lykkjur í umferð. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. KLAUF MITT AÐ AFTAN: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (6) 6-7-7-8 (8) cm frá uppfitjunarkanti hefur klaufin verið prjónuð til loka og stykkið sett saman þannig að afgangur af berustykki er prjónað í hring. Prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í garðaprjóni í lok umferðar. Leggið 4 lykkjur garðaprjón frá byrjun á umferð yfir þessar 4 lykkjur þannig að hnappagötin komi efst. Prjónið lykkjur frá kanti í garðaprjóni slétt saman 2 og 2 (4 lykkjur færri). Prjónið síðan í hring (eftir að stykkið hefur verið sett saman heldur útaukning á ermum áfram í annarri hverri umferð, í stað hverri umferð frá réttu). Í fyrstu umferð eftir að lykkjur hafa verið prjónaðar saman, prjónið brugðnar lykkjur yfir þessar 4 lykkjur frá klauf. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. ATH: Byrjun á umferð færist til þannig að nú er byrjunin mitt á milli 4 lykkja frá klauf. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: STÆRÐ (fyrirburar): = (152) lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist (10) cm frá merki við hálsmál. Skiptið berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 ÁRA): Færið 4 merkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert af þessum 4 merkjum sitji í ystu í lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 34-32-32-32 (34) lykkjur á hvorri ermi á milli lykkja með merki í. Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af þessum 4 lykkjum með merki í – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið nú út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 1-3-4-5 (5) sinnum = 176-192-208-220 (232) lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 11-12-12-13 (13) cm frá merki við hálsmál. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 11-12-12-13 (14) cm frá merki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG: Prjónið eins og áður yfir fyrstu (21) 24-27-29-31 (33) lykkjur (½ bakstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið (42) 48-54-58-62 (66) lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu (21) 24-27-29-31 (33) lykkjur (½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (92) 104-120-128-140 (148) lykkjur. Setjið 1 merki í hlið, mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir annarri erminni. Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki fram að merki – umferðin byrjar nú við merkið. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist (5) 8-11-12-14 (16) cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um (12) 16-16-20-20 (20) lykkjur jafnt yfir = (104) 120-136-148-160 (168) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca (20) 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur frá ermi af þræði frá annarri hlið á stykkin á sokkaprjóna 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur. Setjið 1 merki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi. Byrjið umferð við merki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls (0) 2-2-3-4 (4) sinnum á hæðina = (38) 40-44-46-48 (50) lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist (4) 8-10-13-15 (18) cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (2) 0-0-2-0 (2) lykkjur jafnt yfir = (36) 40-44-44-48 (48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca (7) 11-13-16-18 (21) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í stykkið að aftan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluepebblessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.