DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Pebbles Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð: Fyrirburar til 2 ára.

DROPS Baby 43-3
DROPS Design: Mynstur bm-122-by
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
(<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 ára)
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 100-150-150-150 (200) g litur 37, ljós lavender

DROPS TALA NR 627: (4) 5-6-6-6 (6) st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá réttu):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2: (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá röngu):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri (séð frá réttu).
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri (séð frá réttu).
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir (3) 4-5-5-5 (5) næstu hnappagötum með ca (5) 5-5-5-5½ (6) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, ermar og berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp (72) 76-80-84-88 (96) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í (2) 2-2-3-3 (3) cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (10) 14-14-18-18 (18) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = (82) 90-94-102-106 (114) lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (þær 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt).
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja.
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki við hálsmál til að aðgreina þau.
Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að framan, teljið (18) 20-21-21-22-24 lykkjur (framstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 1. prjónamerki (öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið (26) 30-32-32-34 (38) lykkjur frá 2. prjónamerki (bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 3. prjónamerki (öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Það eru (18) 20-21-21-22 (24) lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (framstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar – í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2.
Þ.e.a.s. það er aukið út í hverri umferð og aukið er út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar leggist fallega.
Haldið svona áfram og aukið út alveg eins í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls (10) 10-10-12-12 (12) sinnum = (122) 130-134-150-154 (162) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca (3) 3-3-4-4 (4) cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls (10) 12-11-9-9 (10) sinnum = (162) 178-178-186-190 (202) lykkjur.
Stykkið mælist ca (9) 11-10-10-10 (10) cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
STÆRÐ (<0):
= (162) lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 ÁRA):
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum sitji í ystu í lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 34-32-32-32 (34) lykkjur á hvorri ermi á milli lykkja með prjónamerki í.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverju og einu af þessum 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið nú út lykkjur á framstykkjum, bakstykki og á báðum ermum.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls 1-3-4-5 (5) sinnum = 186-202-218-230 (242) lykkjur.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, mælist stykkið ca 11-12-12-13 (13) cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 11-12-12-13 (14) cm frá prjónamerki við hálsmál.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu (26) 29-32-34-36 (38) lykkjur, setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið (42) 48-54-58-62 (66) lykkjur eins og áður, setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu (26) 29-32-34-36 (38) lykkjur.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= (102) 114-130-138-150 (158) lykkjur. Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist (5) 8-11-12-14 (16) cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (14) 14-18-18-22 (22) lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = (116) 128-148-156-172 (180) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3 cm. Fellið aðeins laust af.
Peysan mælist ca (20) 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykkin á sokkaprjóna 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (á ekki við um stærð (<0).
Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls (0) 2-2-3-4 (4) sinnum á hæðina = (38) 40-44-46-48 (50) lykkjur.
Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist (4) 8-10-13-15 (18) cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 3 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (2) 0-0-2-0 (2) lykkjur jafnt yfir = (36) 40-44-44-48 (48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca (7) 11-13-16-18 (21) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.08.2022
ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:..JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Jenni wrote:

Onko ohjeessa virhe... tein lisäykset ohjeen mukaan koossa 1/3 ja silmukoita on yhteensä 210, vaikka niitä piti olla 218. Ohje jatkuu osioden jakamiseen 32+42+54+42+32 =202 ... eli lisäyksiä on ohjeessa joko liikaa tai loppuohjeen jako menee väärin.

02.03.2024 - 22:30

DROPS Design answered:

Tarkistin ohjeen lisäykset ja en löytänyt virheitä. Kaarrokkeen alkaessa työssä on 94 silmukkaa. Satulaolkapäitä varten lisätään yhteensä 40 silmukkaa, hihoja varten lisätään 44 silmukkaa ja kaarroketta varten lisätään 24 silmukkaa. Tämän jälkeen työssä on 202 silmukkaa (koossa 1/3).

06.03.2024 - 17:12

country flag Yard wrote:

Je ne sais pas tricoter avec des aiguilles circulaires. Puis je tricoter avec des aiguilles double pointe. et comment dois-je m'y prendre (voir les instructions) Merci

02.03.2024 - 13:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Yard, vous pouvez tricoter le col et l'empiècement sur aiguilles droites, puis après la division, tricotez le bas du gilet sur aiguilles droites, et tricotez ensuite les manches en rond sur les aiguilles doubles pointes. Bon tricot!

04.03.2024 - 07:53

country flag Marianne Beck wrote:

Die 4 Markierer der Ärmelzunahmen so versetzen, dass jeder dieser Markierer in der äußersten Masche an beiden Seiten von Vorderteil und Rückenteil sitzt. Es sind 34-32-32-32 (34) Maschen pro Ärmel zwischen den markierten Maschen vorhanden. Das verstehe ich nicht.

17.02.2024 - 16:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Beck, die Markierer waren zuerst zwischen 2 Maschen, jetzt soll jeder Markierer in einer Masche eingesetzt werden und zwar in die letzte Masche vom linken Vorderteil + in die 1. Masche + in die lezte Masche vom Rückenteil + in die erste Masche vom rechten Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!

19.02.2024 - 09:01

country flag Duverger wrote:

Dans dos/devants je tricote pendant 12 cm ensuite un rang endroit et j'augmente 14 mailles après les 12 cm ce qui fait que mon gilet est plus large en bas ....... ou j'augmente avant de tricoter les 12 cm j'ai un doute car sur le diagramme le gilet ne semble pas plus large en bas j'attends votre réponse merci

20.01.2024 - 19:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Duverger, vous tricotez jusqu'à ce que le dos et les devants mesurent 12 cm après la division (4ème taille), puis vous tricotez 1 rang sur l'endroit en répartissant 18 augmentations et continuez avec les aiguilles 2,5 en côtes comme indiqué; comme il faut davantage de mailles en côtes avec les aiguilles 2,5 qu'en jersey avec les aiguilles 3, on doit augmenter avant les côtes pour éviter que la bordure ne resserre le bas du gilet. Bon tricot!

22.01.2024 - 08:40

country flag Christine Weir wrote:

Hi ...I'm knitting the 6-9 mnths i have done the increases as each section said ...got the correct number of sts each time but now i have 186 sts ... my problem is the 32sts between marker .... i have 28i watched the video but dont know where my problem is ...can you help?

21.11.2023 - 22:50

Christine Weir answered:

Hi....thank you ... I found my mistake !🙂

21.11.2023 - 23:26

country flag Lina wrote:

Buongiorno, nel momento in cui si devono fare gli aumenti per lo sprone e le maniche contemporaneamente, quali suggerimenti bisogna seguire? Le istruzioni indicano il suggerimento 2, che fa riferimento agli aumenti dal rovescio del lavoro, ma per lo sprone devo aumentare dal diritto...non capisco

05.04.2023 - 13:03

DROPS Design answered:

Buonasera Lina, nel testo è riportato il riferimento ai suggerimenti per il lavoro -1 e -2 a seconda se si lavori dal diritto o dal rovescio del lavoro: vanno utilizzati entrambi. Buon lavoro!

05.04.2023 - 16:48

country flag Juliette wrote:

Bonjour. Je tricoté ce modèle en taille 0/1 mois. Au paragraphe DIVISION POUR LE DOS/ LES DEVANTS ET LES MANCHES, je ne tombe pas sur le même nombre de maille, mais sur : Manches = 48 et dos = 40 mailles. (Manches : 10 mailles + 10 augmentations + 24 augmentations + 4 augmentations) Pouvez-vous me dire à quelle étape j’ai raté quelque chose ? Merci

22.03.2023 - 19:35

DROPS Design answered:

Bonjour Juliette, en fait, vous ne devez pas avoir 48 mailles pour les manches, avant d'augmenter pour l'empiècement, vous avez 34 mailles pour les manches (10 m + 12 augm de chaque côté), puis vous mettez un marqueur dans la 1ère et dans la dernière de ces mailles (= 34 m pour les manches) et les marqueurs sont pour les augmentations de l'empiècement. Vous augmentez ensuite 1 fois 8 m au -total, soit 2 m pour chaque manche = 36 m entre les marqueurs. Vous glisserez ensuite 40 m (soit les 36 m entre les marqueurs + les 2 m avec un marqueur + 1 m de chaque côté) en attente pour les manches. Bon tricot!

23.03.2023 - 09:57

country flag Anaïs wrote:

Bonjour, Je ne suis pas sure de comprendre l augmentation pour les manches “monter (4) 4-6-6-8 (8) mailles (côté sous la manche),” je dois tricoter ces 4 mailles avec le dos devant ou les laisser en attente? Merci

29.11.2022 - 21:11

DROPS Design answered:

Bonjour Anaïs, ces mailles doivent être montées = ajoutées (pas augmentées au sens d'augmentation traditionnelle) car elles vont remplacer les mailles de la manche que l'on met en attente - cette leçon montre, à partir de la photo 11 comment on monte ces nouvelles mailles (montez-en bien 4 comme pour la taille tricotée, la leçon n'est qu'une illustration). Bon tricot!

30.11.2022 - 08:43

country flag Neli wrote:

Ist die erste Masche eine Randmasche? Denn sonst geht das alles nicht auf.

30.10.2022 - 16:46

DROPS Design answered:

Liebe Neli, es gibt hier keine Randmasche, die erste sowie die letzte Maschen gehören zu den 5 ersten /letzen Blende-Maschen. Viel Spaß beim stricken!

31.10.2022 - 09:07

country flag Martha wrote:

Veldig fin jakke. En feil i oppskriften: i "DEL TIL BOL OG ERMER SLIK:" så er det like før blitt tydeliggjort at for str 1/3mnd er 202 masker på pinnene. Når man skal dele til bol og ermer så blir tallet på masker oppgitt i oppskriften til sammen 186 (str 0/1mnd). Man må da følge str 6/9 mnd når man deler bol og ermer.

13.09.2022 - 11:59