DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alaska yarn
DROPS Alaska
100% Ull
frá 594.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Urban Forest

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og axlarsæti. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 219-16

#urbanforestsweater

DROPS Design: Mynstur x-456
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
700-750-800-900-1000-1100 g litur 45, ljós ólífa

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 594.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir til skiptis ca 3. og 4. hverri lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. hver og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 78-82-88-92-98-102 lykkjur á hringprjón 4 með Alaska.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 14½ cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-32-32-34-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-104-120-124-132-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5.

BERUSTYKKI:
Setjið nú prjónamerki í byrjun á stykki (= mitt að aftan) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum er sett á milli 2 lykkja.
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti.
1. prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 17-18-20-21-21-23 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju.
2. prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
3. prjónamerki: Teljið 34-36-40-42-42-46 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
4. prjónamerki: Teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Það eru 17-18-20-21-21-23 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki.
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjur við hvert af þessum prjónamerkjum.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið sléttprjón hringinn.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl verður sá sami.
Haldið áfram hringinn svona og aukið út á sama hátt í hverri umferð alls 14-16-16-18-20-22 sinnum = 156-168-184-196-212-228 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 6-7-7-8-9-10 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á ERMUM:
Prjónið sléttprjón hringinn.
JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING.
Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-13-13-15-12-12 sinnum = 200-220-036-256-260-276 lykkjur.
Stykkið á nú að mælast 16-19-19-22-20-21 cm frá prjónamerki við háls. Í stærð S er prjónað áfram þar til stykkið mælist 17 cm. Ef stykkið mælist styttra en þetta í stærð M, L, XL, XXL og XXXL, prjónið e.t.v. áfram að réttu máli án þess að auka út lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi. Það eru 36-40-44-48-46-46 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út lykkjum bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING.
Aukið nú út lykkjur á framstykki, bakstykki og á báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-4-6-6-8-10 sinnum = 232-252-284-304-324-356 lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð mælist stykkið ca 21-23-24-27-27-30 cm. Ef stykkið mælist styttra en þetta er prjónað áfram þar til stykkið mælist 21-23-24-27-27-30 cm án útaukninga.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið yfir fyrstu 35-38-42-45-49-55 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 46-50-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-76-84-90-98-110 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-50-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 35-38-42-45-49-55 lykkjur (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 164-176-192-208-224-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 29-29-29-28-29-28 cm frá skiptingu, aukið út um 16-18-20-20-22-26 lykkjur jafnt yfir (= 180-194-212-228-246-274 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 46-50-58-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hliðinni stykki á stuttan hringprjón /sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 12-12-12-14-14-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 58-62-70-76-78-82 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 6-6-6-7-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 11-6-3½-3-3-2½ cm millibili alls 4-6-9-11-11-13 sinnum = 50-50-52-54-56-56 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-39-37-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-8-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-46-46-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður að röngu þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

prjónstefna = prjónstefna
útaukning fyrir axlarsæti = útaukning fyrir axlarsæti
útaukning fyrir ermar = útaukning fyrir ermar
útaukning fyrir berustykki = útaukning fyrir berustykki
Diagram for DROPS 219-16
Diagram for DROPS 219-16

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (85)

country flag Allays Marie skrifaði:

Comment faire pour éviter les fronces, qd on fait les manches marteau.. Je tricote en Alaska, le pull Urban.. Et au niveau des épaules, ça froncé un peu.. Y a t il un moyen de l'éviter..?

23.12.2022 - 21:18

DROPS Design svaraði:

Bonjour Marie, vous ne devriez pas avoir de fronces, cette vidéo montre comment augmenter pour les épaules, elle pourra peut-être vous aider à repérer la raison des fronces. Bon tricot!

02.01.2023 - 08:49

country flag Rosie skrifaði:

In the Increases for the Yoke section, when it says move the markers so they're "in the outermost sleeve stitches" does this mean the markers are actually 'in' a stitch or between two stitches?

23.12.2022 - 12:26

DROPS Design svaraði:

Dear Rosie, the markers are inserted in a stitch. You later need to work on both sides of this "marker-stitch". Happy knitting!

25.12.2022 - 23:41

country flag Stine skrifaði:

Denne oppskriften er dårlig laget. Å avfeie kommentarene om stygg fold foran under halsen på genseren med at -dette er en sadelskulder-oppskrift- er for enkel. Det kommer en fold foran på halsringningene fordi oppskriften er feilkonstruert. Det finnes mange sadelskulderoppskrifter som unngår dette. I tillegg er størrelsene for små. Eks: S her blir i praksis en trang XXS/XS. Som andre har påpekt går heller ikke målene i oppskriften opp. Dette er for dårlig. Bør fjernes.

19.12.2022 - 12:01

DROPS Design svaraði:

Hej Stine, følger du opskriften og strikkefastheden som står i opskriften, får du den stilige genser du ser på billedet. Glædelig Jul :)

20.12.2022 - 08:57

country flag Iwona Harris skrifaði:

I have a problem with the length of the jumper. I'm knitting size S and the piece is divided for sleeves and body when it measures 21cm. Then the body piece is knitted to the length of 29 cms from the division and then the rib for 5cm. Overall, the length comes to 21+29+5=55cms; in the pattern, however, it is stated the the jumper has to be approx 60 cm in length. Is it a mistake or have I misunderstood something? Do I just knit the body longer?

06.12.2022 - 14:37

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Harris, you are missing approx. 5 cm for the shoulder as shown on the chart, then the total length of jumper from shoulder towards bottom edge is approx. 60 cm. Happy knitting!

06.12.2022 - 16:23

country flag Ingeborg skrifaði:

Liebes DROPS Team, Ich finde die Querfalte im Vorderteil an Hals doch recht störend. Eigentlich sind verkürzte Reihen keine Schwierigkeit bei Sattelschultern, oder? Ich stricke die verkürzten Reihen über die beiden Sattel-Teile und den Rücken hin und her und nehme zunächst 3x jeweils 1 M. , dann 3x jeweils 2 M. und 1x jeweils 3 M. links und rechts am Vorderteil dazu. Danach einfach weiter in Runden. Zumindest funktioniert es damit bei mir. Liebe Grüße, Ingeborg

20.11.2022 - 15:45

country flag Beata skrifaði:

Cześć, w którym momencie oraz w jaki sposób należy wykonać podwójne wykończenie dekoltu?

26.10.2022 - 20:43

DROPS Design svaraði:

Witaj Beato, sweter jest wykonywany od góry, czyli wykonujesz wykończenie dekoltu ściągaczem o dł. 14,5 cm. Dalej przerabiasz cały sweter zgodnie ze wzorem, a na końcu składasz ściągacz wykończenia dekoltu na pół i przyszywasz po lewej stronie robótki otrzymując podwójne wykończenie dekoltu. Zobacz video TUTAJ. Pozdrawiamy!

27.10.2022 - 08:30

country flag Nicole skrifaði:

Hallo. Ich habe in M den Rumpf gestrickt bis zu einer Länge von 29 cm aber der Teilung. Nun habe ich zwei Fragen: 1. Nehme ich mit Umschlägen zu - und wenn ja, muss ich dann nicht in der nächsten Runde, d. h. die, in der ich das Rippenmuster anfange, die Umschläge ggf. links oder rechts umdrehen, um sie richtig durchstricken zu können? 2. Wenn man dann 5 cm weiterstrickt, kommt man auf 57 cm+1/2 cm für die Runde mit Zunahmen+1/2cm fürs Abketten. Wie kommt ihr auf 62 cm Länge?

01.09.2022 - 20:05

DROPS Design svaraði:

Liebe Nicole, die Zunahmen vor dem Bündchen stricken Sie mit Ihrem Lieblingstechnik, dh z.B. mit Umschläge, die rechts/links verschränkt bei der nächsten Runde gestrickt werden, um Löcher zu vermeiden. Diese 62 cm verteilen sich so: 5 cm Schulter + 23 cm Passe + 29 cm Rumpfteil + 5 cm Bündchen. Viel Spaß beim stricken!

02.09.2022 - 08:50

country flag Agnieszka skrifaði:

Mam wątpliwość co do nabierania oczek na karczek. Jakim sposobem mam nabrać z nitki poniżej dwa oczka obok siebie- jedno przed markerem a drugie po? Dwa oczka z tego samego miejsca?

19.08.2022 - 15:04

DROPS Design svaraði:

Witaj Agnieszko, przeformułowałam początek opisu jak dodawać oczka na karczku, ponieważ markery powinny być włożone w oczko, a nie między oczkami. Jak dodawać oczka na karczek w takiego rodzaju swetrach znajdziesz na filmie TUTAJ. Miłej pracy!

19.08.2022 - 15:31

country flag Fausto skrifaði:

Modello abbastanza brutto. Fa un grosso difetto sul davanti. Quello che si intuisce dalla foto, quella piega sotto al collo, viene molto amplificata nel lavoro finito. Immettibile

04.03.2022 - 09:38

country flag MN skrifaði:

Mange har problemer med en fold foran ved halsen og jeg ser ud til at få samme problem. Kan I svare på, hvordan opskriften rettes til, så man undgår dette?

22.02.2022 - 14:49

DROPS Design svaraði:

Hei MN. Det er ikke noe man kan rette på i oppskriften, dette er en gensere med sadelskulder teknikk. Ønsker man å strikke en genser der ryggstykket er høyere enn forstykket, kan man velge en oppskrift der man har en forhøyning bak. mvh DROPS Design

28.02.2022 - 11:31