DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Budding Warmup

Prjónuð peysa fyrir herra með laskalínu úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 219-10
DROPS Design: Mynstur x-448
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-650-700-750-850-900 g litur 02, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 9,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um laskalínu):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við öll prjónamerkin (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð – það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur á framstykki og bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1, útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kraginn og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Kraginn er prjónaður tvöfaldur og saumaður inn í lokin. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KRAGI:
Fitjið upp 80-84-92-96-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Byrjun á umferð = mitt að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, mæla á berustykkið frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2-6-6-2-10-2 lykkjur jafnt yfir = 82-90-98-98-106-106 lykkjur – sjá ÚTAUKNING-1.
Næsta umferð er prjónuð þannig (setjið prjónamerki á milli lykkja): Prjónið 12-14-16-16-18-18 lykkjur eftir mynsturteikningu A.1 (= hálft bakstykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, 14 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 2. prjónamerki, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið 25-29-33-33-37-37 lykkjur eftir mynsturteikningu A.1, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 14 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 4. prjónamerki, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið 13-15-17-17-19-19 lykkjur eftir mynsturteikningu A.1 (= seinni helmingur af bakstykki).
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 19-20-22-24-26-30 sinnum = 234-250-274-290-314-346 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Stykkið mælist ca 19-20-22-24-26-29 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-21-23-25-27-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig:
Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 34-35-39-42-47-52 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-54-58-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 69-71-79-85-95-105 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-54-58-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 35-36-40-43-48-53 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 158-162-178-194-214-234 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10-10-10-12-12-12 nýrra lykkja undir ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum.
Haldið áfram hringinn með mynstur eins og áður (passið uppá A.1 í hliðum, þannig að mynstrið haldið fallega áfram á framstykki og bakstykki). Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 9 cm millibili alls 3 sinnum = 146-150-166-182-202-222 sinnum. Þegar stykkið mælist 31-32-32-32-32-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum þar sem JAFNFRAMT er aukið út um 14-18-14-18-14-18 lykkjur jafnt yfir = 160-168-180-200-216-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 5 cm – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 36-37-37-37-37-36 cm frá skiptingu.

ERMI:
Setjið 48-54-58-60-62-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-10-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-68-72-74-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10-10-10-12-12-12 nýrra lykkja. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-4-5-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 11-12-13-15-15-18 sinnum = 36-40-42-42-44-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-43-41-40-39-38 cm frá skiptingu, aukið út jafnt yfir 4-4-2-6-4-4 lykkjur = 40-44-44-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 5 cm – sjá AFFELLING!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið kragann út að réttu. Saumið niður affellingarkantinn með smáu, fallegu spori frá röngu á peysu (passið uppá að saumurinn sjáist ekki frá réttu og að saumurinn verði ekki stífur).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Budding Warmup

@lalenak.nit, Germany

Budding Warmup & Tangled Willows

Linda Christensen, Denmark

Budding Warmup

Karen, United Kingdom

Budding Warmup

Svetlana, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Malti wrote:

Hi, if I want to make back, front and sleeves seperately do you instructions for that

28.03.2024 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Mati, please understand, that since we have many thousands of patterns on our site, we cannot modify patterns to each individual request, or have many variation of one sweater. This sweater was designed from top down, and sleeves knitted integrally, together with the body to reduce the need for sewing up. There are plenty of patterns on our site that have the front/back/sleeves knitted separately. We hope you will understand. Happy Knitting!

29.03.2024 - 08:21

country flag Gunn-Heidi Nordtveit wrote:

Mønster A1 til 219-10, Budding Warmup mangler i oppskrifta. Kan dere hjelpe med dette mønsteret?

04.03.2024 - 21:40

DROPS Design answered:

Hej Gunn-Heidi. Du finner diagram A.1 längst ner, till höger om måleskitsen. Mvh DROPS design

05.03.2024 - 08:03

country flag Gunn-Heidi Nordtveit wrote:

Ser ut som mønster A1 ikkje er med i oppskrifta til 219-10, Budding Warmup. Kan dere hjelpe med hvordan dette mønsteret er?

04.03.2024 - 21:38

country flag Fanny wrote:

Bonjour, J'ai une question dans les diminution de la section DOS/DEVANT : je fais la première diminution donc sur les 9cm suivants, le shéma de ce que je tricote ne correspond plus au diagramme. je fais la seconde diminution et ça correspond de nouveau. Je fais la dernière diminution et ça ne correspond plus de nouveau... jusqu'à la fin du tricot. Comment faire pour adapter ça de façon à ce que ça reste joli et harmonieux svp ? Merci!

05.08.2023 - 20:53

DROPS Design answered:

Bonjour Fanny, comme le motif est multiple de 2 m et que l'on diminue 3 mailles, il ne va plus tomber juste tout le tour, continuez comme avant ou bien diminuez 1 maille en plus/en moins pour que le motif tombe de nouveau juste. Bon tricot!

07.08.2023 - 09:57

country flag Fanny wrote:

Bonjour ! Mon homme trouve que ce fil 100% laine pique trop... Y a-t-il un autre fil de chez vous avec lequel je peux faire ce patron sans que ça ne modifie le résultat? Merci d'avance !

05.06.2023 - 19:38

DROPS Design answered:

Bonjour Fanny, utilisez notre convertisseur pour voir toutes les alternatives possibles (Air, Big Merino par ex pour un fil du groupe C ou bien en utilisant 2 fils du groupe de fils A) et les quantités correspondantes. Votre magasin saura vous conseiller la laine idéale (même par mail ou téléphone) en fonction de sa sensibilité. Bon tricot!

06.06.2023 - 08:51

country flag Meri wrote:

Hei! Ohjeessa mainittu ruutupiirros ei näy tällä sivulla mobiilissa eikä tietokoneen selaimella tarkastellessa. Kokeilin myös ohjeen tulostamista ja Ruutupiirros -niminen sivu tuli näkyville - tyhjänä. Mistä saisin tuon ruutupiirroksen? Nimimerkillä aloitin jo tekemään ja vasta sen jälkeen aloin katselemaan oliko ohjeessa kaikki tiedot kohdillaan.

23.03.2023 - 08:44

DROPS Design answered:

Hei, ruutupiirros A.1 avautuu normaalisti. Se löytyy mittapiirroksen oikealta puolelta.

23.03.2023 - 17:18

country flag Lesley wrote:

In working this pattern, I've installed the centre back stitch marker at the top of the neck and again at its base. Having moved the marker at the base along with its knitted row, I am now unclear as to the total 'yoke' measurement I must reach before dividing the sleeves from the body. ( Mine is the 'L' size. ) Will you kindly clarify whether I should measure from the base of the neck piece or the top?

02.01.2023 - 12:01

DROPS Design answered:

Dear Lesley, the yoke should be measured from the marker inserted on mid back, ie from after the neck edge (or just at the beginning of "yoke" section). Happy knitting!

02.01.2023 - 16:14

country flag Laura wrote:

Buongiorno sono veramente a le prime esperienze . Ho fatto 3 maglioni in lana con i ferri dritti, ma poi me li aveva cuciti mia madre che purtroppo adesso non c\'è più. Sto facendo l\'ultimo maglione da uomo in lana con ferro n.6, tre dritti e due rovesci. Volevo fare un collo tondo basso. Mi dite come cucirlo? Lo devo lavorare staccato e poi successivamente cucirlo al maglione?\r\nCome mi consigliate? \r\nResto in attesa e vi saluto. Grazie Laura

25.12.2022 - 20:12

DROPS Design answered:

Buonasera Laura, può anche riprendere le maglie del collo e lavorarlo come desidera. Per un'assistenza più personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

28.12.2022 - 19:05

country flag Anne K T wrote:

Hejsa! Jeg er nået til at tage ind i siden af rug og forstykket. Men jeg forstår ikke hvordan jeg får det til at passe med mønsteret. Skal den sammenstillede maske strikkes ret eller brand nedad? (Uanset vil der vil komme tre masker uden mønster de næste 9 cm), eller skal jeg strikke modsat på mønsteret over de midterste fire masker/ omkring mærket?

12.10.2022 - 19:53

DROPS Design answered:

Hei Anne. Når bærestykket ermene settes og de nye maskene strikkes på sammen pinne og mønstret fortsettes som før, må man tilpasse A.1 i sidene slik at mønstret fortsetter pent på forstykket og bakstykket. Når det skal felles under ermene (1 maske på hver side av merketrådene), vil ikke alltid mønstret gå opp. Så da vil det bli 9 cm som ikke vil stemme overens. mvh DROPS Design

24.10.2022 - 07:41

country flag Karine wrote:

Kuidas peab kuduma need 10 silmust , mis on kehaosa vahel ja kuidas neid kahandada?

03.10.2022 - 13:42

DROPS Design answered:

Tere Karine! Silmused külgedel kootakse samamoodi mustrisse, nagu ülejäänud kehaosal. Kuidas kahandada, on kirjeldatud juhendi alguses - KAHANDAMISE NIPP (külgedel ja varrukatel). Head kudumist!

27.10.2022 - 16:24