DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 219-11
DROPS Design: Mynstur ee-698
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
650-700-750-850-950-1000 g litur 46, milligrár

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykki í annarri hverri umferð – byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt í þessum 4 lykkjum) og prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir hálsmáli, er prjónað fram og til baka – lykkjum er fækkað þá í laskalínu í hverri umferð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna (skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf). Setjið síðan ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er síðan prjónað í hring. Kraginn er prjónaður í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 96-104-112-120-128-148 lykkjur á hringprjón 7 með Snow. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og setjið eitt nýtt prjónamerki eftir 48-52-56-60-64-74 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón.
Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið síðan í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 12-12-12-12-12-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með 6-10-10-10-10-10 cm millibili alls 3 sinnum = 108-116-124-132-140-160 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 41-41-42-42-42-42 cm, fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) = 48-52-56-60-64-74 lykkjur á framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 24-24-24-32-32-36 lykkjur á sokkaprjóna 7 með Snow. Prjónið 2 umferðir sléttprjón, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til ermin mælist 6-6-6-7-7-7 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjón 8, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8-10-10-9-9-9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan.
Endurtakið útaukningu með ca 5½-4-3½-5-4½-4 cm millibili alls 8-10-11-8-9-9 sinnum = 40-44-46-48-50-54 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 51-50-49-48-46-46 cm, í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 34-38-40-42-44-48 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón á fram- og bakstykki – þar sem lykkjur eru felldar af lykkjur fyrir handveg = 164-180-192-204-216-244 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli erma og fram- og bakstykki = 4 prjónamerki. Prjónið 2-1-1-0-0-0 umferðir sléttprjón áður en úrtaka fyrir laskalínu byrjar.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan – í annarri hverri umferð 13-15-16-17-18-21 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, setjið miðju 8-8-10-12-14-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Stykkið er síðan prjónað fram og til baka á meðan lykkjum er fækkað fyrir laskalínu frá réttu eins og áður og lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli í byrjun í hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 1 sinni.
Á eftir öllum úrtökum/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli, eru 46-46-48-50-52-54 lykkjur í umferð.

KRAGI:
Notið sokkaprjóna 7. Prjónið upp lykkjur fyrir kraga og setjið lykkjur af þræði á prjóninn, þannig að það verða ca 14 til 22 lykkjur í hálsi að framan. Alls eiga að vera ca 60 til 76 lykkjur í umferð (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 9 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Brjótið kragann út að réttu. Saumið niður affellingarkantinn með smáu, fallegu spori frá röngu á peysu (passið uppá að saumurinn sjáist ekki frá réttu og að saumurinn verði ekki stífur).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Carolien wrote:

Een vraag over de mouw. 32 steken opzetten op een naald zonder knop. Dan een markeerdraad bij een hoogte van 8cm aan het begin. Dan verder breien op naald 8 Als de mouwen klaar zijn kun je de overige steken op de rondbreinaald zetten bij het voor en achterland. Naai je de zijnaden dicht van de mouwen?

13.03.2024 - 17:11

DROPS Design answered:

Dag Carolien

De mouwen worden in de rondte gebreid, evenals de panden, dus je hoeft geen zijnaden dicht te naaien. Enkel de stukjes onder de oksel, waar de mouwen en de panden samen op de naald worden gezet, naai je op het einde dicht.

14.03.2024 - 21:48

country flag Carolien wrote:

Hallo, ik zie het al. Ik was in de war met een ander patroon dat vanuit de bovenkant begon.🙈

04.03.2024 - 04:10

country flag Carolien wrote:

Klopt het dat je maar 2 markeerdraden hebt. Daar ben ik mee begonnen. Ik zit nu op de 12 cm, en ik kom er niet verder mee. Moeten er niet 4 markeerdraden zijn?

03.03.2024 - 21:47

country flag Remco wrote:

Hallo, Veel dank voor heldere uitleg. Stekenverhouding is oke, maar idd raglanmindering niet om elke ander naald gedaan. Groeten, Remco

07.02.2024 - 09:43

country flag Remco wrote:

Hallo, Trui is af, maar te klein. Ongeveer 10cm. Ben na raglanmindering meteen begonnen aan hals. Had ik eerst nog door moeten breien in triocotstteek? Heb maat L. Dank en groeten, Remco

02.02.2024 - 14:31

DROPS Design answered:

Dag Remco,

Nee, je kunt direct na de raglanminderingen met de hals verder gaan. Klopt je stekenverhouding in de hoogte? En heb je de raglanminderingen om de naald gemaakt, dus de ene naald wel en de andere naald niet?

04.02.2024 - 19:12

country flag Remco wrote:

Hallo, Ik loop een beetje vast bij de pas. Zit nu op een hoogte van 60 cm. Waar zet ik de tien steken op de hulpdraad? Is dat op het lange stuk en naast elkaar? Die brei ik dan niet? En moet ik dan terug breien met de mindering? En ik beegrijp het afkanten niet: Kant 1 keer 2 steken af, en kant 1 keer 1 steek af. In totaal 12 of 6 steken afkanten. Dank alvast! Groeten, Remco

12.01.2024 - 09:11

DROPS Design answered:

Dag Remco,

Je zet de middelste steken van het voorpand op een hulpdraad, dus precies de 10 middelste steken. Dan brei je het werk verder heen en weer en het afkanten doe je dan steeds aan het begin op elke naald, dus direct naast de 10 steken aan beide kanten. Op deze manier krijg je een mooie ronding in de hals. Je kant aan beide kanten eerst 2 steken af en dan aan beide kanten nog een keer 1 steken. In totaal dus 6 steken (3 steken aan beide kanten).

14.01.2024 - 13:07

country flag Anne Forbes wrote:

I am stuck! Having slipped middle 8 stitches on holder for neck I am u sure how I decrease the neck and keep shaping the raglan. Does 'work price back and forth' mean coming off the round?

13.07.2023 - 17:20

DROPS Design answered:

Hi Ann, Yes, you now continue back and forth from one side of the neck, around the back piece to the other side of the neck, always continuing the decreases for raglan on rows from the right side. In addition, you decrease for the neck by casting off 2 stitches by the neck 1 time on each side, then cast off 1 stitch on each side 1 time (on both rows from the right and wrong side). Hope this helps and happy knitting!

14.07.2023 - 07:03

country flag Paula wrote:

What are the measurements for the sizes? ie what width chest is size XL. I cant see a conversion chart anywhere.

30.09.2021 - 22:58

DROPS Design answered:

Dear Paula, you can find all the relevant measurements on the schematic drawing at the bottom of the pattern. We suggest that you take a sweater that fits and compare the sizing. Happy Stitching!

30.09.2021 - 23:29

country flag Malika Katharina Raduenz wrote:

Hallo , Ob auf Französisch oder auf Deutsch, ich verstehe nicht wie der Kragen bzw. die Halsblende gestrickt wird. Ich habe das viel zu eng gestrickt. Könnten Sie mir das genauer erklären? Danke

15.05.2021 - 22:07

country flag Irja Syvertsen wrote:

Kant dan losjes de af steken 2-1-1-3-4-4 keer af met recht boven recht en averecht boven averecht. Ik begrijp deze zin niet zo goed. Hoe kant ik 4 keer af? Hartelijk dank.

23.03.2021 - 17:52

DROPS Design answered:

Dag Irja,

Dat klopt inderdaad niet. Er moet staan: Kant dan losjes de steken af met recht boven recht en averecht boven averecht. Het is nu gecorrigeerd. Veel breiplezier!

26.03.2021 - 16:03