Kassalia Maria skrifaði:
Nun am Anfang der nächsten 2 Reihen, d.h. beidseitig, wie folgt die äußersten je 5 Maschen stilllegen (= Blenden-Maschen) und je 1 Rand-Masche anschlagen: 5 Blenden-Maschen kraus rechts stricken, glatt rechts stricken bis noch 5 Blenden-Maschen übrig sind, diese nächsten 5 Blenden-Maschen stillegen .KOENNEN SIE MIR BITTE NOCH EIN MAL ERKLEREN WIE ICH DIE BLENDE MASCHE STRICKE
14.10.2020 - 11:45DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kassalia, dieses Video könnte vielleicht Ihnen damit helfen, um zu verstehen, wie diese Maschen still gelegt werden und wie es weitergestrickt wird. Beachten Sie, daß dieses Video mit einer unterschiedlichen Maschenanzahl gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!
14.10.2020 - 13:00
Manuela skrifaði:
Do you have a similar pattern for adults? Thanks.
21.09.2020 - 15:50DROPS Design svaraði:
Dear Manuela, what about Scent of Pine Jacket? find even more nordic patterns here. Happy knitting!
21.09.2020 - 16:24
Nicole Curry skrifaði:
Where can I find the pattern for the matching hats with the Icelandic sweater patterns for children
04.09.2020 - 19:48DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Curry, you will find the Lillesand Hat pattern here. Happy knitting!
07.09.2020 - 08:14
Lizet Weber skrifaði:
Hvor er mønsteret henne til denne trøje
03.09.2020 - 22:37DROPS Design svaraði:
Hej Lizet, nu er det sidste også lagt ud. Tak for info og god fornøjelse!
04.09.2020 - 11:33
Lillesand#lillesandjacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2 - 12 ára.
DROPS Children 37-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 83 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (10 kantlykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 4,56 lykkjur. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá röngu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur brugðið (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (rétta), prjónið uppsláttinn snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur með prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½ til 2 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati í hægri hlið í kanti í hálsmáli (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. Fellt er af fyrir næstu 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagöt með ca 6-6½-7½-7-7½-8½ cm millibili. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Kantlykkjur að framan eru settar á þráð og afgangur af berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 83-85-87-89-91-93 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum ryð DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 16-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 99-101-103-107-109-111 lykkjur. Setjið nú ystu 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á 1 þráð (= kantlykkjur að framan) og fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið í 2 næstu umferðum þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð án þess að prjóna þær, fitjið upp 1 kantlykkju, snúið og prjónið sléttprjón þar til 5 kantlykkjur að framan eru eftir í hinni hliðinni, setjið 5 kantlykkjur að framan á þráð án þess að prjóna þær, fitjið upp 1 kantlykkju, snúið = 91-93-95-99-101-103 lykkjur – kantar að framan eru prjónaðir síðar og saumaðir niður við framstykki innan við 1 kantlykkju þegar flíkin hefur verið prjónuð til loka. Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið 0-0-2-4-6-8 umferðir sléttprjón fram og til baka með litnum ryð og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Kantlykkjur eru síðan prjónaðar í sama lit og fyrsta/síðasta lykkjan í mynstri. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 44-45-46-48-49-50 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.2 (þannig að mynstrið byrji og endi aldveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út 16-18-20-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 107-111-115-119-123-127 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-27-28-29-30-31 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-2: Aukið út 40-36-44-40-48-44 lykkjur jafnt yfir = 147-147-159-159-171-171 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum). Ör-3: Aukið út 36-44-40-48-44-52 lykkjur jafnt yfir = 183-191-199-207-215-223 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum, en passið uppá að A.2 er núna 5 lykkjur). Ör-4: Aukið út 24-28-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 207-219-231-243-255-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum). Ör-5: Áður en þessi umferð er prjónuð geymið þá stykkið aðeins á prjóni og prjónið kanta að framan. Setjið 5 kantlykkjur að framan af þræði á vinstra framstykki á prjón 3 og prjónið garðaprjón fram og til baka með litnum ryð í ca 13-13-14-15-15-16 cm – leggið kantinn að framan meðfram miðju að framan og athugið málið, strekkið aðeins á kanti að framan (endið eftir umferð slétt frá röngu). Setjið lykkjur á 1 þráð. Prjónið hægri kant að framan alveg eins, en munið eftir hnappagat í hægri kanti að framan. Prjónið síðan frá réttu í umferð merktri með ör 5 í A.1 þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan af þræði í garðaprjóni, fækkið um 1 kantlykkju við miðju að framan, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 205-217-229-241-253-265 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-4-0-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, fækkið um 1 kantlykkju og prjónið 5 kantlykkjur að framan af þræði í garðaprjóni = 219-231-243-251-263-275 lykkjur. Ef prjónfestan passar á hæðina mælist stykkið ca 15-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón með litnum ryð og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið að réttu máli. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-37-39-41-43-45 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-73-77-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-37-39-41-43-45 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 143-151-159-171-179-187 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 38-40-42-45-47-49 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 67-71-75-81-85-89 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ryð og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-5-6-6-7-8 cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 155-163-171-183-191-199 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykki mælist 16-20-23-25-28-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 46-48-50-54-58-60 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1= 201-211-221-237-249-259 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ryð. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 38-40-40-42-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 16-21-25-29-32-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist ca 19-24-28-33-36-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið fallega niður kanta að framan innan við 1 kantlykkju á berustykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lillesandjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.