Lucia Naldi skrifaði:
Buongiorno. Sono all'inizio della sezione 5. Avendo appena terminato la sezione 4 con il ferro n. 5 della costa inglese (diritto del lavoro) mi trovo in difficoltà perchè devo fare 4 ferri a maglia rasata e il lavoro non mi viene giusto perchè se li comincio con un ferro dritto mi ritrovo con una riga a legaccio, se invece comincio con un ferro rovescio poi non so come proseguire con i due ferri prima degli schemi A4 - A5 - A6. Grazie in anticipo dell'aiuto
28.09.2020 - 14:51DROPS Design svaraði:
Buongiorno Lucia. La sezione 4 si conclude con 16 ferri di coste inglesi: l'ultimo di questi 16 ferri dovrebbe essere il 4° ferro delle coste inglesi, lavorato sul rovescio del lavoro. Buon lavoro!
30.09.2020 - 10:06
Lisa skrifaði:
Vielen lieben Dank für Ihre schnelle Antwort. Toller Service! Dann versuche ich nochmal.
22.09.2020 - 20:33
Lisa skrifaði:
In der Beschreibung im 3. Bereich schreiben Sie (in der ersten Reihe die Umschläge des Vollpatents mit der zugehörigen Masche rechts zusammenstricken), ja wenn man die 1. Reihe im Vollpatent so strickt wie angegeben, aber dann sind es nicht 195 Maschen. Und wie sieht es aus, wenn man erstmal 70 Maschen zugenommen hat und dann nach 16 Reihen wieder reduziert? Es ist kein schönes Bild! Oder lese ich da was falsch?
22.09.2020 - 08:44DROPS Design svaraði:
Liebe Lisa, haben Sie gesehen, die Beschreibung vom Vollpatent wurde korrigiert - die Umschläge von dem Vollpatent sind nicht in der Maschenanzahl gezählt,denn sie gehören je zu der abgehobene Maschen. Viel Spaß beim stricken!
22.09.2020 - 11:54
Lisa skrifaði:
Hallo, ich brauche Ihre Hilfe beim Vollpatent. Bereits in der ersten Reihe sind bei mir am Ende 268 Maschen, also nicht nur 2 Zunahmen. Dann habe ich bei mir korrigiert und in der ersten Reihe die ersten 2 Maschen ab Sternchen immer zusammengestrickt. Das sah schon besser aus. Aber in der 5 Reihe werden dann insgesamt 4 Maschen zugenommen! Also insgesamt 6 Maschen mehr!
22.09.2020 - 08:40
Laura Genn skrifaði:
Ok thankyou! I look forward to seeing the edited pattern. I'm excited to proceed with the shawl. For now I will p2tog once on the last stockinette row to adjust the stitch count before proceeding with the first English rib section.
17.09.2020 - 16:23
Laura Genn skrifaði:
I am having a problem with the first section of English Rib. The stitch count at the start of Row 1 is 179sts. Taking away the 4 edge stitches (2 on each side) leaves 175sts. After working the ribbing repeat of 2 stitches this leaves one stitch at the end not accounted for. Could you explain what to do with this stitch or am I mis-reading instructions? Many thanks!
16.09.2020 - 19:25DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Genn, thanks for your feedback, pattern will be edited and English rib description adapted to the amount of sts. Happy knitting!
17.09.2020 - 13:35
Olivia skrifaði:
Thanks for previous reply, the 2nd rows of diagram A1 & A3 do not show increases.
16.09.2020 - 13:57Olivia svaraði:
Ignore me, I was looking at the wrong diagram
16.09.2020 - 13:58
Olivia skrifaði:
Hi, in 3rd Section, how are we to increase the stitches? Do the diagrams include this increase on either side? The increases before have been 2 at the start of each row, but this says to increase at the start and end, which would be 4 per row. The lace is worked over 16 rows x 2 =32 increase as stated so the instructions and the diagrams don't tally up with the number of stitches given as a starting point of 237 and how many to increase by. Please can you help?
15.09.2020 - 20:02DROPS Design svaraði:
Dear Olivia, in 3rd section, you work and increase as shown the diagrams over the 237 sts - this means 1 edge st, A.1 (= you increase in A.1 as before, ie inside the first st), repeat A.2 and finish with A.3 (= increase as before, ie inside the last st), 1 edge st in garter st. You increase on every row, as shown in diagram and new stitches are worked in garter st (as all sts in A.1 and A.3). Diagrams are 16 rows = 32 increases in total + 237 sts = 269 sts when diagrams are finished. Happy knitting!
16.09.2020 - 08:32
Netty Van Beek skrifaði:
Staat fout voor steekverhouding dikkere teveel steken of dunnere naald bij te weinig steken moet omgedraaid
07.09.2020 - 09:40
Gabriela skrifaði:
Núnca tejí con aguja circular, hay muchos modelos que se deben tejer con ése tipo de aguja. No me doy cuenta por ejemplo en un saco que no se me una el tejido y quede como un tubo. Les agradecería me enseñaran. Saludos
14.08.2020 - 16:35DROPS Design svaraði:
Hola Gabriela. La aguja circular la utilizamos para trabajar en redondo (sin costuras) o trabajar de ida y vuelta con un número elevado de puntos ( y con agujas rectas es difícil trabajar). En el caso de las chaquetas y etc. se trabaja de ida y vuelta (sin unión), como si trabajaras con agujas rectas.
16.08.2020 - 14:08
Sienna Wrap#siennawrap |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónað sjal með gatamynstri og klukkuprjóni úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.
DROPS 214-3 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 57 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 1,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 1. og 2. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki á prjóninn hér * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, setjið 1 prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið (prjónamerki situr hér), prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr hér), * prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman (prjónamerki situr hér), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið (prjónamerkið situr hér), prjónið 4 lykkjur slétt. Eftir umferð 1-4 hefur verið aukið út um 4 lykkjur alls (2 lykkjur í hvorri hlið). Nú er hægt að prjóna þessar 2 lykkjur inn í klukkuprjónsmynstrið. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Nú eru 2 lykkjur fram þar sem prjónamerkið situr, færið prjónamerkið hingað og prjónið inn 2 lykkjur í klukkuprjónsmynstri þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Nú eru 2 útauku lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstrið. Prjónið yfir næstu lykkjur þannig: * Prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir (prjónað er fram að prjónamerki). Takið frá prjónamerkið og prjónið inn fyrstu 2 lykkjur í klukkuprjónsmynstri þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Nú eru 2 útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstrið. Setjið prjónamerkið á prjóninn hér. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið síðan umferð 2-5 (= 4 lykkjur fleiri í hverri endurtekningu). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. SJAL: Fitjið upp 13 lykkjur á hringprjón 3,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. FYRSTA EINING: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, passið uppá að ysti uppslátturinn sé alltaf laus, svo hann herði ekki á kantinum á sjalinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið eins og umferð 1-2 þar til prjónaðar hafa verið 22 umferðir garðaprjón (stykkið mælist ca 5 cm fyrir miðju), nú eru 57 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 2 lykkjur eins og áður, en aukið út til viðbótar 30 lykkjur jafnt yfir í umferð með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Nú eru 89 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2 lykkjur eins og áður. Nú eru 91 lykkja í umferð. Prjónið áfram í garðaprjóni og aukið út eins og áður í umferð 1-2, þar til prjónaðar hafa verið að auki 22 umferðir garðaprjón. Nú eru 135 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-11 cm fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. ÖNNUR EINING: Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 2 lykkjur í hverri umferð eins og áður, uppslátturinn innan við kantlykkju er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu – það eiga að myndast göt. Nú eru 143 lykkjur í umverð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni – aukið út í hlið eins og áður, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 177 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út í hlið eins og áður – MUNIÐ EFTIR að uppslátturinn sem er gerður þegar aukið er út jafnt yfir á að prjónast snúinn. Nú eru 179 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-13 cm fyrir miðju. Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur slétt sýnilegar frá réttu): Klukkuprjón mælist ca 4 cm, og stykkið mælist ca 16 cm fyrir miðju. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 195 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. ÞRIÐJA EINING: Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður frá klukkuprjónsmynstri slétt saman með lykkju sem tilheyrir henni) og aukið út 2 lykkjur í hverri umferð eins og áður, uppslátturinn innan við kantlykkju er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu – það eiga að myndast göt. Nú eru 203 lykkjur í umverð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni – aukið út í hlið eins og áður, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 177 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út í hlið eins og áður . Nú eru 237 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18 cm fyrir miðju. Nú er prjónað gatamynstur eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynsturteikningu A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið mynsturteikningu A.2 yfir næstu 224 lykkjurnar (28 sinnum á breiddina), prjónið A.3 yfir 9 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina hafa verið auknar út 32 lykkjur. Nú eru 269 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23 cm fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. FJÓRÐA EINING: ATH! Nú breytist útaukning í hlið. Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 273 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 306 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju. Nú eru 307 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 25 cm frá miðju. Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur slétt sýnilegar frá réttu). Klukkuprjónsmynstrið mælist ca 4 cm. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 323 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 29 cm fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. FIMMTA EINING: Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (í fyrstu um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 327 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 36 lykkjur jafnt yfir = 364 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju. Nú eru 365 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 31 cm fyrir miðju. Prjóni nú gatamynstur eftir mynsturteikningu A.4, A.5 og A.6, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynsturteikningu A.4 yfir 2 lykkjur, prjónið mynstureiningu A.5 yfir næstu 352 lykkjurnar (= 44 sinnum á breiddina), prjónið A.6 yfir 9 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 16 lykkjur. Nú eru 381 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 36 fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. SJÖTTA EINING: Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 385 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 418 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju. Nú eru 419 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 38 cm fyrir miðju. Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur sýnilegar frá réttu). Klukkuprjóns einingin mælist ca 4 cm. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 435 lykkjur í hverri umferð og stykkið mælist ca 42 cm fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur, fellið af á meðan prjónað er slétt þannig: Fellið af hverja lykkju og hvern uppslátt fyrir sig. Ef kanturinn er enn of stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #siennawrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.