DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 214-4
DROPS Design: Mynstur z-908
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál ca: 54/56 - 56/58 - 58/60 cm.
Hæð með tvöföldu uppábroti ca: 25-26-27 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 9024, dökk blush

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 144-152-160 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið stroffprjón hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið stroff þar til stykkið mælist ca 26-27-28 cm (eða prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli).
Nú byrjar úrtaka fyrir toppinn á húfunni, prjónið þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 126-133-140 lykkjur.
UMFERÐ 2: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 3: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 4: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 108-114-120 lykkjur.
UMFERÐ 5: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 6: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 90-95-100 lykkjur.
UMFERÐ 7: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkjur brugðið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 8: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 72-76-80 lykkjur.
UMFERÐ 9: * Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 10: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 54-57-60 lykkjur.
UMFERÐ 11: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 36-38-40 lykkjur.
UMFERÐ 12: Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 18-19-20 lykkjur.
UMFERÐ 13: Prjónið 0-1-0 lykkja slétt, prjónið síðan 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 9-10-10 lykkjur.
Klippið þráðinn frá. Notið nál til að þræða þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar nokkrum sinnum. Herðið vel að. Húfan mælist ca 30-31-32 cm. Brjótið kantinn 2 sinnum að réttu ca 2½ cm í hvort skipti. Húfan mælist ca 25-26-27 cm með uppábroti.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Elke wrote:

DROPS Design answered: Liebe Elke, Sie stricken (2 M re, 2 M li, 2 M re, 2 M links zusammen) insgesamt 19 Mal in der Runde (8 M x 19 = 152 M) und so nehmen Sie 19 Maschen ab und sind noch übrig: 152-19=133 Maschen (2 M re, 2 M li, 2 M re, 1 M li)x 19. Viel Spaß beim stricken! ...und wie verteile ich diese 19 Maschen? Ich habe bei 152 M, 76 rechte Maschen und 76 linke Maschen. Grüße Elke

03.11.2022 - 20:17

DROPS Design answered:

Liebe Elke, mit 152 Maschen stricken Sie 19 Mal (2 M re, 2 M li, 2 M re, M Li) dh 19 x 8 = 152 (16 Mal 2 M re, 2 M li) - dann werde Sie 1 Masche links in jede 2. Links-Parti abnehmen und so stricken: (2 M re, 2 M li, 2 M re, 2 M li zusammen) x 19 in der Runde, so haben Sie (2 M re, 2 M li, 2 M re, 1 M li) x 19 so sind es noch= 7 Mashen x 19Mal in der Runde =133 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

04.11.2022 - 07:46

country flag Elke wrote:

Hallo, wenn ich, wie in Runde 1: 2 M re, 2 M li, 2 M re, 2 M li zusammenstricke und bis zum Ende der Reihe so wiederhole, können keine 133 M von 152 angeschlagene M übrig bleiben. Wie kann das sein? Grüße Elke

02.11.2022 - 20:20

DROPS Design answered:

Liebe Elke, Sie stricken (2 M re, 2 M li, 2 M re, 2 M links zusammen) insgesamt 19 Mal in der Runde (8 M x 19 = 152 M) und so nehmen Sie 19 Maschen ab und sind noch übrig: 152-19=133 Maschen (2 M re, 2 M li, 2 M re, 1 M li)x 19. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2022 - 09:48

country flag Enrica wrote:

Buongiorno, non riesco a capire dove devo utilizzare i ferri a doppia punta (e perchè).

23.05.2022 - 11:21

DROPS Design answered:

Buonasera Enrica, deve utilizzare i ferri a doppia punta quando la circonferenza del cappello diventa troppo piccola per poter utilizzare i ferri circolari. Buon lavoro!

23.05.2022 - 18:01

country flag Gosia wrote:

What does it mean -'knit all stitches together'?

02.02.2022 - 11:54

DROPS Design answered:

Hi Gosia, it means: knit 2 stitches together until the end of round (you have half the number of stitches now). Happy knitting!

02.02.2022 - 12:21

country flag Heidi wrote:

Hei. Jeg tenker å strikke denne fine luen i Fabel. Jeg synes det er så vanskelig å vite hvilken størrelse jeg skal strikke. Hvor eksakt rundt hodet måler jeg for riktig størrelse?

22.09.2021 - 12:36

DROPS Design answered:

Hej Heidi, du måler der hvor hovedet er størst, men husk at da huen er strikket i rib, så bliver den elastisk og meget fleksibel :)

22.09.2021 - 15:52

country flag Caroline Naish wrote:

Could you help me understand Round 13 please? I don't understand "Knit 0-1-0", nor "knit all stitches together 2 and 2". The rest of it is very clear, and I'm enjoying knitting it! Thank you in advance for your explanation, Caroline.

24.03.2021 - 12:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nash, if you work first or 3rd size, you will not star the round knitting 1 stitch, just work "knit 2 sts together" all the round; in the 2nd size, knit the first stitch on the round then repeat "knit 2 sts together" to the end of the round. Happy knitting!

24.03.2021 - 12:57

country flag Giuseppina wrote:

I made one with 144 meshes. The hat was too big. So I made one with 128 meshes. Perfect. I would recommend 128 meshes for small heads.

07.02.2021 - 21:43

country flag Marina wrote:

Come posso adattare questa lavorazione ai ferri diritti?grazie

22.01.2021 - 15:06

DROPS Design answered:

Buonasera Marina, può lavorare il cappello con i ferri dritti aggiungendo 1 maglia per lato per la cucitura. Buon lavoro!

22.01.2021 - 19:57

country flag Céline Ledoux wrote:

Comment on doit faire le transfert sur des aiguilles doubles pointes rendu aux diminutions. Doit-on le faire sur 2 - 3 ou 4 broches ? Merci beaucoup

09.12.2020 - 21:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ledoux, procédez en début de tour, au lieu de continuer à tricoter avec l'aiguille droite de l'aiguille circulaire, tricotez avec une aiguille double pointe - le nombre de mailles à répartir sur chaque aiguille dépend de votre nombre de mailles total et du nombre d'aiguilles - répartissez les mailles sur 3 ou 4 aiguilles doubles pointes et tricotez avec la 4ème ou avec la 5ème. Bon tricot!

10.12.2020 - 09:12

country flag Betina Nordby Jensen wrote:

Dette står i oppskriften: "13.OMGANG: Strikk 0-1-0 maske rett, strikk deretter 2 og 2 masker rett sammen omgangen rundt = 9-10-10 masker." Hva betyr det at man skal strikke 0-1-0 maske rett?

18.11.2020 - 12:07

DROPS Design answered:

Hej Betina. Det betyder att du i minsta och största storleken går direkt vidare i oppskriften och stickar 2 og 2 masker rett sammen. Mvh DROPS Design

18.11.2020 - 13:31