Cristina skrifaði:
No entiendo cómo puedo empezar a tejer la parte del cuerpo desde el marcador que situamos a la mitad de los puntos aumentados de las mangas. ¿Podéis poner un video explicando como hacerlo? gracias
10.12.2024 - 22:48DROPS Design svaraði:
Hola Cristina, cuando terminas el canesú cortas el hilo. Ahora colocas 1 hilo marcador en el centro de los puntos bajo una de las mangas (de la sisa) y comienzas a trabajar desde este hilo marcador.
15.12.2024 - 18:45
Olga María Ávila García skrifaði:
Esta muy elegante el diseño gracias por la explicación
06.11.2024 - 21:13
Erika skrifaði:
Hej! Alltså när jag ska avsluta oket och börja sticka fram och bakstyckena så står det att jag ska klippa av tråden och börja varvet vid markören mitt i de nylagda maskorna. Hur går det till? Jag är ju mitt bak på tröjan när oket är klart? Hur kan jag då plötsligt börja nytt varv vid ärmen? Och dessutom ha klippt av tråden innan?\r\nHjälp en förvirrad typ.\r\nMed vänlig hälsning,\r\nErika
31.10.2024 - 19:12
Ea Hansen skrifaði:
Er i sikre på det ikke er en fejl der skal tages så mange masker ud ved rib - for xl vedkomne 60 masker .. ? Skift til rundpind 3. Strik 1 omgang ret med vinrød/rød hvor der tages 48-52-56-60-68-72 masker ud jævnt fordelt = 224-244-264-288-324-352 masker (der tages ud for at undgå at ribben som skal strikkes, trækker sig sammen).
22.07.2023 - 18:43DROPS Design svaraði:
Hei Ea. Nei, ingen feil. Når man tar ut masker før man strikker vrangborden, så vil ikke vrangborden trekke seg sammen, men man vil få en fin overgang mellom bol og vrangbord. Men ønsker du ikke å tøke så mange mansker kan du fint øke en mindre antall masker. Bare pass på at maskeantallet stemmer slik at vrangborden går opp i 2 rett / 2 vrang. mvh DROPS Design
25.07.2023 - 09:13
Karin skrifaði:
Hur ökar jag de 44 maskorna, storlek L, i det första varvet med en pil? Jag vill ju att maskorna i vit färg ska passas in med de nedan i röd färg på vit botten.
16.02.2022 - 22:19DROPS Design svaraði:
Hej Karin, det kan du ikke få til, prikkerne vil altid blive forskudt efter hver gang du har taget ud på en omgang med pil. God fornøjelse!
18.02.2022 - 13:52
Gerlinde Wallmeyer skrifaði:
Ich stricke das Modell Candy Cane Lane Drops 208-5 Der Zunahmetrick funktioniert nur in der Beispielrechnung! Bei Pfeil 1 z.B. müsste ich nun bei Größe S 120 Maschen durch 44 teilen...das geht nicht! Auch die folgenden Rechnungen würden nicht aufgehen...wie komme ich weiter? Danke f Ihre Hilfe im voraus!
08.12.2021 - 08:42DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wallmeyer, diese Lektion erklärt, wie man regelmäßig verteilt zunimmt - siehe Beispiel 2. Viel Spaß beim stricken!
08.12.2021 - 13:31
Ives DLR skrifaði:
Bij de uitleg voor de verhoging staat een foutje denk ik. Bij de laatste reeks van het aantal steken dat moet gebreid worden staat voor de maat L 48 steken terwijl dit denk ik 84 steken moeten zijn.
27.10.2021 - 18:24
Helga skrifaði:
Please help, I have reached A.X in the pattern, do I do the eight rows then divide the yoke for the body and sleeve. Please can you help with a video tutorial on how to work the yoke and sleeve for this pattern. Thank you
20.10.2021 - 10:11DROPS Design svaraði:
Dear Helga, you can find all th erelevant videos linked just below the pattern, including THIS one that might help you. Happy Stitching!
20.10.2021 - 11:49
Annette Åberg skrifaði:
Så fint mönster! Kan jag sticka denna tröja i bomullsgarn eller blandning av ull/bomull? I så fall vilket garn?
24.09.2020 - 22:48DROPS Design svaraði:
Hej Anette. Du kan sticka detta mönster med ett annat garn i Garngrupp B . Vill du sticka 100 % bomull så är det DROPS Muskat du får använda, men vi har flera alternativ med bomullsblandningar i denna garngrupp. Tänk bara på att få den stickfasthet som står i mönstret och att beräkna riktig garnåtgång. Lycka till!
25.09.2020 - 08:31
Candy Cane Lane#candycanelanesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S – XXXL.
DROPS 208-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan við hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið frá réttu með litnum vínauður og prjónið 12-13-14-15-15-15-16 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-30-30-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-45-45-48 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-60-60-64 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-75-75-80 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-90-96 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-112-116 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður/rauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-28-32-36-36-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 120-128-136-144-148-152 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í umferð – mitt framan á peysu, berustykkið er nú mælt frá prjónamerkinu. Prjónið nú UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu þá beint áfram í berustykki. BERUSTYKKI. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 30-32-34-36-37-38 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Ör-1: Aukið út 44-44-44-52-52-56 lykkjur jafnt yfir = 164-172-180-196-200-208 lykkjur (nú er pláss fyrir 41-43-45-49-50-52 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-2: Aukið út 40-40-44-48-52-52 lykkjur jafnt yfir = 204-212-224-244-252-260 lykkjur (nú er pláss fyrir 51-53-56-61-63-65 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-3: Aukið út 36-36-40-44-48-48 lykkjur jafnt yfir = 240-248-264-288-300-308 lykkjur (nú er pláss fyrir 60-62-66-72-75-77 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út 0-8-8-16-20-28 lykkjur jafnt yfir = 240-256-272-304-320-336 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-19-20-21 mynstureiningar A.1 með 16 lykkjum). Ör-5: Aukið út 24-28-28-24-28-32 lykkjur jafnt yfir, en passið uppá að aukið sé út með natur þannig að stjarnan skemmist ekki = 264-284-300-328-348-368 lykkjur (nú er pláss fyrir 66-71-75-82-87-92 mynstureiningar A.1 à 4 lykkjur). Ör-6: Aukið út 16-16-20-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 280-300-320-348-368-392 lykkjur (nú er pláss fyrir 70-75-80-87-92-98 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-7: Aukið út 12-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 292-312-332-364-384-412 lykkjur (nú er pláss fyrir 73-78-83-91-96-103 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-8: Aukið út 8-12-8-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 300-324-340-376-396-428 lykkjur (nú er pláss fyrir 75-81-85-94-99-107 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Haldið áfram með A.X án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 45-49-51-56-61-67 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-102-112-122-134 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 45-49-51-56-61-67 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-212-228-248-276-300 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi í annarri hlið á stykki. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið síðan A.X eins og áður (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við þar sem berustykkið endaði). Þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingu, fækkið 4 lykkjur jafnt yfir (fækkið lykkjum í einlitri umferð með litnum vínrauður/rauður). Fækkið lykkjum svona með ca 6 cm millibili alls 5 sinnum = 176-192-208-228-256-280 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 36 cm frá skiptingu, en stillið af að endað sé eftir heila rönd með litnum natur (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt með litnum vínrauður/rauður þar sem aukið er út um 48-52-56-60-68-72 lykkjur jafnt yfir = 224-244-264-288-324-352 lykkjur (það er aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragist saman). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-68-76-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.X hringinn (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við þar sem berustykkið endaði). Þegar ermin mælist ca 6-6-6-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 45-44-42-41-39-39 cm, en passið uppá að endað sé eftir heila rönd með litnum natur (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-8-12-8-12-12 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 49-48-46-45-43-43 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candycanelanesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 208-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.