DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Candy Cane Lane

Prjónuð peysa með norrænu Fana mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-22
DROPS Design: Mynstur u-884
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 48, vínrauður
250-300-300-350-350-400 g litur 01, natur

Eða notið
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 3609, rauður
250-300-300-350-350-400 g litur 0100, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið frá réttu með litnum vínrauður og prjónið 12-13-14-15-15-16 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-30-30-32 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 36-39-42-45-45-48 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-60-60-64 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-75-75-80 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-90-96 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða það er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-100-104-108-112-116 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður/rauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-28-32-36-36-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 120-128-136-144-148-152 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt.
Setjið 1 prjónamerki í umferð – mitt framan á peysu, berustykkið á að mætast frá prjónamerki. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, þá er hægt að fara beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 30-32-34-36-37-38 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:
Ör-1: Aukið út 44-44-44-52-52-56 lykkjur jafnt yfir = 164-172-180-196-200-208 lykkjur (nú er pláss fyrir 41-43-45-49-50-52 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur).
Ör-2: Aukið út 40-40-44-48-52-52 lykkjur jafnt yfir = 204-212-224-244-252-260 lykkjur (nú er pláss fyrir 51-53-56-61-63-65 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur).
Ör-3: Aukið út 36-36-40-44-48-48 lykkjur jafnt yfir = 240-248-264-288-300-308 lykkjur (nú er pláss fyrir 60-62-66-72-75-77 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur).
Ör-4: Aukið út 0-8-8-16-20-28 lykkjur jafnt yfir = 240-256-272-304-320-336 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-19-20-21 mynstureiningar A.1 með 16 lykkjur).
Ör-5: Aukið út 24-28-28-24-28-32 lykkjur jafnt yfir, en passið uppá að aukið sé út með natur svo að stjarnan skemmist ekki = 264-284-300-328-348-368 lykkjur (nú er pláss fyrir 66-71-75-82-87-92 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur).
Ör-6: Aukið út 16-16-20-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 280-300-320-348-368-392 lykkjur (nú er pláss fyrir 70-75-80-87-92-98 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur).
Ör-7: Aukið út 12-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 292-312-332-364-384-412 lykkjur (nú er pláss fyrir 73-78-83-91-96-103 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur).
Ör-8: Aukið út 8-12-8-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 300-324-340-376-396-428 lykkjur (nú er pláss fyrir 75-81-85-94-99-107 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur).
Haldið áfram með A.X án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls.
Nú skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað þannig:
Prjónið 45-49-51-56-61-67 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-102-112-122-134 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-49-51-56-61-67 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 196-212-228-248-276-300 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi í annarri hlið á stykki. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið síðan A.X eins og áður (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við þar sem berustykkið endaði).
Þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingu, aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út í umferð með einum lit með litnum vínrauðum/rauður). Aukið svona út með ca 6 cm millibili alls 5 sinnum = 216-232-248-268-296-320 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 28 cm frá skiptingu, en stillið af að endað sé eftir heila rönd með litnum natur (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt með litnum vínrauður/rauður þar sem aukið er út um 48-52-56-60-68-72 lykkjur jafnt yfir = 264-284-304-328-364-392 lykkjur (aukið er út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast, dragist saman).
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-64-68-76-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð aðeins síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.X hringinn (passið uppá að byrja rétt miðað við þar sem berustykki endaði.
Þegar ermin mælist ca 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 41-40-38-37-35-34 cm, en stillið af þannig að endað sé eftir heila rönd með litnum natur (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengdra berustykkis.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3 með litnum vínrauður/rauður. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-60-60-64 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.03.2021
UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA:... Snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-90-96 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan.

Mynstur

symbols = vínrauður/rauður
symbols = natur
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Candy Cane Lane

Donna, United States

Candy Cane Lane

Valérie, France

Rainbow sweater

Sinne Kold, Denmark

Candy cane lane sweater

Annalisa, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Val wrote:

Bonjour, mon ouvrage terminé j’ai souhaité le bloquer mais le pull s est beaucoup détendu Avez vous une astuce ou tout simplement ne pas bloquer les pulls fait avec la Karisma ? Merci par avance pour votre retour Bien cordialement Valérie

21.08.2023 - 19:58

DROPS Design answered:

Bonjour Val, tout dépend de ce que vous avez fait, un simple lavage en respectant bien les consignes d'entretien suffit généralement - DROPS Karisma est super wash et doit donc être lavée en machine, cycle délicat, sans assouplissant et l'ouvrage doit être bien posé à plat - retrouvez les consignes d'entretien sur le nuancier et d'autres astuces ici, votre magasin pourra également. probablement vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

22.08.2023 - 09:23

country flag Valerie wrote:

Bonjour, le modèle sur la photo est fait avec la Karisma ou la Lima? Merci par avance pour votre retour Bien cordialement

17.07.2023 - 21:07

DROPS Design answered:

Bonjour Valerie, c'est Karisma. Bon tricot!

17.07.2023 - 21:57

country flag Veroperrit wrote:

Ai remplacé les étoiles de neige par des petits loups (qui ressemblent à des renards 😂) me réjouis qu'il fasse frais

29.07.2022 - 18:07

country flag Zuzana wrote:

Dobrý den, dokončila jsem sedlo, tedy v druhé polovině zadního dílu. ale přízi mám uprostřed a píše se, že mám odstřihnout přízi a začít uprostřed nahozených ok v podpaží. Ale řada mi končí uprostřed dílu...nevím jak na to. Mám řadu doplést až k podpaží a tam začít sekvenci A.X.?

16.05.2022 - 14:47

DROPS Design answered:

Dobrý den, Zuzano, kvůli návaznosti vzoru je potřeba dodržet předepsaný postup: nevadí, že kruhová řada končí uprostřed zad, je dokončená pletenina má všude stejnou výšku, dál tedy nepleťte, ale přízi odstřihněte. Trup budete začínat uprostřed podpaží - začátek/konec krhové řady bude tedy ležet tam. Hodně zdaru! Hana

20.07.2022 - 08:07

country flag Magdalena wrote:

Jak mam zmienić liczbę oczek jeśli chce zrobić ten sweter wloczka drops snow którą jest dwa razy grubsza i na druty 8-9? Czy jeśli zrobię z połowy oczek w schemacie to będzie pasował?tu próbka na druty 4 to 21 oczek a na wloczce snow ok.11

06.04.2022 - 14:13

DROPS Design answered:

Witaj Magdaleno, niestety nie jesteśmy w stanie dostosować każdego wzoru do indywidualnych potrzeb. Musielibyśmy tak naprawdę napisać nowy wzór dla innej włóczki :) Możesz zwrócić się o pomoc do sklepu, w którym kupiłaś włóczkę. Osobiście odradzam wykonanie takiego gęstego żakardu z tak grubej włóczki. Może przed podjęciem ostatecznej decyzji zrób próbkę. Pozdrawiamy!

07.04.2022 - 08:57

country flag Carine wrote:

Bonjour, Ce patron existe t'il en français ?

06.12.2021 - 14:42

DROPS Design answered:

Bonjour Carine, tout à fait, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez sur le menu déroulant sous la photo pour changer de langue. Bon tricot!

06.12.2021 - 15:33

country flag Helga wrote:

The pattern is s/m/l etc for sizes. What are the sizes in centimeters, I have never used diagrams before and struggle to understand them.

05.11.2021 - 15:02

DROPS Design answered:

Dear Helga, measure a similar garment you have and like the shape to find out the matching size - read more here; to understand how to read diagram, this lesson might help you. Happy knitting!

05.11.2021 - 15:57

country flag Cahuzac wrote:

Bonjour,je voudrais faire ce modèle en couleur unie sauf la frise de l’encolure et un petit rappel au bas des manches .Pour une taille M il faut 14 pelotes au total ,comment les répartir : 12 pour la partie unie et 2 pour la frise ou11 + 3 ? Merci de vos conseils,bien cordialement.

25.02.2021 - 21:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cahuzac, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, vous pouvez vous inspirer d'un modèle analogue de même tension. Votre magasin saura également vous conseiller, même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

26.02.2021 - 08:24

country flag Ina wrote:

Hallo, welche Farbe und Qualität wurde für das Modellfoto verwendet? Ist es das Rot von Lima oder das Weinrot von Karisma?

17.12.2020 - 22:35

DROPS Design answered:

Liebe Ina, Karisma wurde für das Modell gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

18.12.2020 - 07:15

country flag Milly Varagnolo wrote:

Buongiorno, ho eseguito questo modello con facilità, il risultato mi ha soddisfatto in pieno ma, ahimè, al lavaggio la lana rossa ha rilasciato il colore su quella bianca, pur avendo usato le istruzioni di lavaggio! È la prima volta che mi succede da quando acquisto i vostri filati. Grazie della vostra attenzione.

04.12.2020 - 14:21