DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Candy Cane Lane Kids Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn með norrænu Fana mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 2-12 ára.

DROPS Children 34-31
DROPS Design: Mynstur u-081-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 – 3/4 – 5/6 – 7/8 – 9/10 – 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 48, vínrauður
100-150-150-150-150-200 g litur 01, natur

Eða notið
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 3609, rauður
100-150-150-150-150-200 g litur 0100, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, viður NR 513: 6-6-6-7-7-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.
Stillið mynstrið af mitt undir ermi þannig að mynstrið haldi fallega áfram hringinn út ermina.

HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan, séð þegar flíkin er mátuð):
Fellið af fyrir hnappagati á hægri kant að framan. 1 hnappagat = Prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH. Það er fallegast ef fellt er af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjum brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Neðsa hnappagatið er staðsett ca 2 cm frá neðri kanti, efsta hnappagatið er í kanti í hálsmáli, þannig að passið uppá að hin hnappagötin séu staðsett jafnt yfir miðað við þessi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-96-100-100-104 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum vínrauður/rauður. Prjónið 1 umferð brugðið (ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-2-3-3-3 cm, en eftr ca 1-1-1-1½-1½ -1½ cm fellið af fyrir 1 hnappagati í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð) með því að prjóna frá réttu þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af 6 lykkjur í byrjun á umferð (hér á að sauma kant að framan í lokin), prjónið brugðið yfir næstu 80-84-84-88-88-92 lykkjur og aukið jafnframt út 17-17-17-17-17-21 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING, haldið síðan áfram með stroff yfir þær 5 lykkjur sem eftir eru og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu og fellið af fyrstu 6 lykkjurnar í byrjun á umferð = 97-101-101-105-105-113 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Fyrsta umfeðr er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (= 23-24-24-25-25-27 mynstureiningar með 4 lykkjur), prjónið A:2 yfir 3 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan, það er prjónaður mismunandi fjöldi lykkja eftir mynsturteikningu A.2 þegar lykkjum er aukið út til að mynstrið gangi fallega upp meðfram kanti að framan.
Ör-1: Aukið út 12-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 109-113-113-117-117-125 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 12-12-12-16-16-24 lykkjur jafnt yfir = 121-125-125-133-133-149 lykkjur.
Ör-3: Aukið út 15-19-19-23-23-31 lykkjur jafnt yfir = 136-144-144-156-156-180 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (= 33-35-35-38-38-44 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 yfir 2 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Ör-4: Aukið út 35-39-39-39-39-27 lykkjur jafnt yfir = 171-183-183-195-195-207 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (= 14-15-15-16-16-17 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2 yfir 1 lykkju og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Ör-5: Aukið út 13-13-21-17-29-25 lykkjur jafnt yfir = 184-196-204-212-224-232 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (= 45-48-50-52-55-57 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 yfir 2 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Ör-6: Aukið út 13-21-21-21-25-25 lykkjur jafnt yfir = 197-217-225-233-249-257 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (= 48-53-55-57-61-63 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 yfir 3 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Ör-7: Aukið út 8-4-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 205-221-233-245-261-269 lykkjur.
Ör-8: Aukið út 4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 209-225-237-249-265-273 lykkjur.
Haldið áfram með A.X og A.Y og þegar stykkið mælist ca 14-14-15-16-17-17 cm frá prjónamerki, prjónið frá réttu þannig: Prjónið 34-37-39-41-44-45 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 40-43-45-47-49-51 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-73-79-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 40-43-45-47-49-51 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 34-37-39-41-44-45 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 141-151-159-171-183-187 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Haldið áfram með A.X og A.Y frá röngu og aukið jafnframt út 0-2-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir í umferð = 141-153-161-173-185-189 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.X og A.Y þar til stykkið mælist ca 4 cm, nú á að auka út lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 í útskýringu að ofan.
Passið uppá að útaukningar séu gerðar í umferð sem eru merktar með stjörnu (með því að gera þetta svona þá kemur mynstrið til með að halda áfram að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, þá er aukið út um 4 lykkjur í hvorri hlið á milli hverra umferða þar sem litamynstur er prjónað). Aukið út í mismunandi stærðum þannig:
STÆRÐ 2 – 3/4 – 5/6 – 7/8 ára:
Aukið út alls 4-4-4-6 sinnum – aukið út í hvert skipti sem A.X - A.Y er prjónað á hæðina.
STÆRÐ 9/10 – 11/12 ára:
Aukið út alls 6-6 sinnum – aukið út í annarri hverri umferð sem A.X – A.Y er prjónað á hæðina.

ALLAR STÆRÐIR:
= 157-169-177-197-209-213 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-20-23-25-28-32 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 43-43-47-51-51-55 lykkjur jafnt yfir = 200-212-224-248-260-268 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 með litnum vínrauður/rauður og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið síðan af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 40-43-45-47-49-51 lykkjurnar frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 46-49-51-55-57-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota prjónamerkið aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið mynstur A.X hringinn eins og áður, stillið af þannig að mynstrið passi yfir mynstur sem prjónað var á berustykki (það kemur ekki alltaf að ganga jafnt upp undir ermi). Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3½-3½-4-4 cm millibili alls 7-7-7-8-8-9 sinnum = 32-35-37-39-41-41 lykkjur. Þegar ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-5-3-5-3-7 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og litinn vínrauður/rauður. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 22-26-30-34-38-42 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp ca 76-84-92-100-108-116 lykkjur frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 2,5 með litnum vínrauður/rauður (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 3 cm – stillið af að það sé jafn breitt og breiddina á 6 lykkjum sem felldar voru af í hálsmáli, þannig að stroffið verði fallegt þegar það er saumað að hvoru öðru. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og kantur að framan, en eftir 1-1½ cm er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-7 hnappagötum jafnt yfir- sjá HNAPPAGAT í útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið kant í hálsmáli fallega yfir kant að framan þannig að saumurinn sjáist eins lítið og mögulegt er. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = vínrauður/rauður
symbols = natur/natur
symbols = útauknings umferð fyrir berustykki
symbols = útauknings umferð fyrir fram- og bakstykki. Útaukning í hlið á fram- og bakstykki verður að gerast í báðum umferðum með stjörnu til að mynstrið gangi jafnt upp í næsta skipti sem mynstrið er prjónað
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Candy Cane Lane Kids Jacket

Marina, United States

s34-31 Candy Cane Lane Kids Jacket

Marina, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Ülle Grünberg wrote:

Tere! Avastasin tekstis vea enne kehaosa allääre sooniku tegemist, kus oleks vaja kasvatada sooniku jaoks silmuseid, aga õpetuses on öeldud, et vaja KAHANDADA silmused. :)

16.09.2021 - 01:01

country flag Maj-Lis Olofsson wrote:

Hej! Har kommit till första ”stjärnan ” i diagrammet som tydligen innebär att man ökar i sidan på fram och bakstycket. Borde inte ökningen på oket vid pil 8 göras före? Vad betyder ”stjärna” nr två? Stickar i syl 110 -116. Trodde att ”stjärnan” innebär deln av arbetet i bak - och framstycken??? Tacksam för hjälp!

14.05.2020 - 16:22

DROPS Design answered:

Hei Maj-Lis. Du strikker diagram A.1+A.2 1 gang i høyden med økningene forklart med piler (1.-8. pil). Etter at diagram A.1+A.2 er strikket 1 gang i høyden, skal A.X strikkes/gjentas og da er det bare med økninger markert med stjerne og kun i sidene av jakken. God Fornøyelse!

25.05.2020 - 10:15

country flag Pirkko Björn wrote:

Kiitos, aivan ihanaa , että saan täältä myös tulostettua nämä ohjeet. Ostin Liljan lankakaupasta viime kesänä langat ja nyt olen aloittamassa villatakkia lapsenlapselle.

15.02.2020 - 09:57

country flag Riitta Haanpää wrote:

Hei! Löytyisikö tähän malliin lisäystä niin, että villatakki voidaan neuloa yhtenäisenä niin, että se leikataan viimeistelyssä keskeltä auki.?

02.01.2020 - 13:31

DROPS Design answered:

Hei, valitettavasti meillä ei ole mahdollisuutta kirjoittaa tätä ohjetta uudestaan. Voit kuitenkin kysyä neuvoa paikallisessa DROPS jälleenmyyjäliikkeessäsi.

14.01.2020 - 19:19