DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Candy Cane Lane Jacket

Prjónuð peysa með norrænu Fana mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-21
DROPS Design: Mynstur u-885
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 48, vínrauður
250-300-300-350-350-400 g litur 01, natur

Eða notið
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 3609, rauður
250-300-300-350-350-400 g litur 0100, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 121 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 44) = 2,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja lykkju og 3. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar.
Byrjið frá réttu með litnum vínrauður og prjónið 12-13-14-15-15-16 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-31-31-33 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-46-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-61-61-65 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-76-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-90-96 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan þegar flíkin er mátuð):
Fellið af fyrir 6-6-6-7-7-7 hnappagötum í hægri kanti að framan (fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í kanti í hálsmáli).
1 hnappagat = Prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn: ATH: Fallegast er að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjum brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera ca 7½-8½ cm frá hnappagati í kanti í hálsmáli. Þau 4-4-4-5-5-5 hnappagöt sem eftir eru, eru staðsett með jöfnu millibili með ca 7½-8½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Í lokin eru prjónaðir kantar að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður/rauður. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af fyrir hnappagati með því að prjóna eins og áður frá réttu þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 3 cm í öllum stærðum, skiptið yfir á hringprjón 4.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Fellið af 6 lykkjur í byrjun á umferð (hér á að sauma niður kantinn í lokin), prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út um 25-29-33-37-37-37 lykkjur jafnt yfir þessar 96-100-104-108-112-116 lykkjur – sjá ÚTAUKNING, haldið síðan áfram með stroff yfir 6 lykkjur sem eftir eru. Snúið stykkinu og fellið af fyrstu 6 lykkjur í byrjun á umferð = 121-129-137-145-149-153 lykkjur í umferð. Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, berustykki er mælt frá prjónamerki!
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka - sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR! Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni (=29-31-33-35-36-37 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 3 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:
Ör-1: Aukið út um 44-44-44-52-52-56 lykkjur jafnt yfir = 165-173-181-197-201-209 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-42-44-48-49-51 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum).
Ör-2: Aukið út um 40-40-44-48-52-52 lykkjur jafnt yfir = 205-213-225-245-253-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 50-52-55-60-62-64 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum).
Ör-3: Aukið út um 35-39-43-47-51-51 lykkjur jafnt yfir = 240-252-268-292-304-312 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-62-66-72-75-77 mynstureiningar à A.1A með 4 lykkjum og A.1B nær nú yfir 2 lykkjur).
Ör-4: Aukið út um 3-7-7-15-19-27 lykkjur jafnt yfir = 243-259-275-307-323-339 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-19-20-21 mynstureiningar A.1A með 16 lykkjum og A.1B nær nú yfir 1 lykkju).
Ör-5: Aukið út um 25-29-29-25-29-33 lykkjur jafnt yfir, en passið uppá að lykkjur séu auknar út með natur svo að stjarnan skemmist ekki = 268-288-304-332-352-372 lykkjur (nú er pláss fyrir 66-71-75-82-87-92 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum og A.1B nær nú yfir 2 lykkjur).
Ör-6: Aukið út um 13-13-17-17-17-21 lykkjur jafnt yfir = 281-301-321-349-369-393 lykkjur (nú er pláss fyrir 69-74-79-86-91-97 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum og A.1B nær nú yfir 3 lykkjur).
Ör-7: Aukið út um 12-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 293-313-333-365-385-413 lykkjur (nú er pláss fyrir 72-77-82-90-95-102 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum).
Ör-8: Aukið út um 8-12-8-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 301-325-341-377-397-429 lykkjur (nú er pláss fyrir 74-80-84-93-98-106 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum).
Haldið áfram með A.X og A.Y án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-52-57-62-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 89-97-101-111-121-133 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-50-52-57-62-68 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 197-213-229-249-277-301 lykkjur. Haldið áfram með A.X og A.Y fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við hvar berustykkið endaði). Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu. Aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út lykkjur í umferð með einum lit, vínrauður/rauður). Aukið svona út með ca 6 cm millibili alls 5 sinnum = 217-233-249-269-297-321 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 28 cm frá skiptingu, en passið uppá að endað sé eftir heila rönd með litnum natur (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum vínrauður/rauður þar sem aukið er út um 51-55-59-63-71-75 lykkjur jafnt yfir = 268-288-308-332-368-396 lykkjur (lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffi sem á að prjóna dragist saman).
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-64-68-76-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.X hringinn (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við hvar berustykkið endaði).
Þegar ermin mælist ca 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 41-40-38-37-35-34 cm, en passið uppá að endað sé eftir heila rönd með litnum natur (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og litinn vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-60-60-64 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Prjónið upp frá réttu á hringprjón 3 með litinn vínrauður/rauður þannig: Prjónið upp ca 124-128-132-140-144-148 lykkjur lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram miðju að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Prjónið stroff þannig (1. umferð = ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 3 cm – stillið af að það sé jafn breitt og breiddin á 6 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsmáli. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en eftir 1-1½ cm er fellt af fyrir 6-6-6-7-7-7 HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið kant í hálsmáli fallega við kant að framan með saum inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.01.2022
UPPHÆKKUN:..herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-90-96 lykkjur brugðið,

Mynstur

symbols = vínrauður/rauður
symbols = natur
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Anna Von Waldenfels wrote:

Kann man diese Wolle auch steeken? Ich stricke mit Merino extra fine!

06.09.2022 - 08:20

DROPS Design answered:

Liebe Frau Von Waldenfels, Merino Extra Fine ist vielleicht nicht die beste Wolle um mit Steek Maschen zu stricken. Viel Spaß beim stricken!

06.09.2022 - 09:41

country flag Vanja Holm wrote:

Hejsan! Detta mönster är helt omöjligt att sticka fram o tillbaka när man gör koftan i och med att oftast så när det är färgbyte så har man inte det andra garnändan åt det håll man ska sticka ifrån = den är på andra sidan då. Vill gärna ha förklaringar hur man ska ändra när man stickar vit o ska gå över till röd t.ex. Annars så tycker jag mönstret är jättefint!

04.05.2022 - 17:54

country flag Sima wrote:

Bonsoir; en faisons mon échantillon j’ai trouvé que pour 10x10 cm il me faudrait 22 m et 28 rg une maille de plus que l’échantillon du modèle et je voudrais faire une maille M est ce que pour une maille de plus je garde le même nombre de mailles que celui du modèle à savoir 112 m pour M où je monte 114 m merci beaucoup😊

23.01.2022 - 13:39

DROPS Design answered:

cf réponse ci-dessous :) Bon tricot!

24.01.2022 - 09:41

country flag Sima wrote:

Bonsoir; en faisons mon échantillon j’ai trouvé que pour 10x10 cm il me faudrait 22 m et 28 rg une maille de plus que l’échantillon du modèle et je voudrais faire une maille M est ce que pour une maille de plus je garde le même nombre de mailles que celui du modèle à savoir 112 m pour M où je monte 114 m merci beaucoup

22.01.2022 - 20:30

DROPS Design answered:

Bonjour Sima, essayez de laver/bloquer votre échantillon pour vérifier si vous "récupérez" cette maille; sinon, essayez une aiguille d'une taille au-dessus, sinon votre gilet sera trop court. Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon dans la FAQ. Bon tricot!

24.01.2022 - 09:17

country flag Anita wrote:

Vielen Dank. Liebe Grüsse, Anita

30.09.2021 - 15:36

country flag Anita wrote:

Hallo liebes DropsTeam, Ich wollte diese Jacke mit Drops Nepal stricken, da mir Karisma zu kratzig ist. Könnt ihr mir bei der Menge der Wolle helfen? Karisma hat 100 lm und Nadel 4 und Nepal hat nur 75lm umd Nadel 5. Jetzt weiss ich nicht genau wie ich da den Wollverbrauch ausrechnen kann. Vielen Dank. Liebe Grüsse, Anita

28.09.2021 - 16:00

DROPS Design answered:

Liebe Anita, Nepal gehört zur Garngruppe C und ist hier für Karisma keine Alternative, benutzen Sie unseren Garnumrechner um die unterschiedlichen Alternative zu sehen (z.B. DROPS Lima, mit gleichen Zusammensetzung wie DROPS Nepal). Viel Spaß beim stricken!

28.09.2021 - 16:11

country flag Michelle wrote:

Bonjour, pour ce modèle je suppose qu'il faut changer d'aiguille circulaire et passer à la 4 ??? juste à cette endroit là au col : ou dois je continuer avec l aiguille 3 ? Quand le col mesure 3 cm dans toutes les tailles continuer avec l'aiguille circulaire et tricoter le rang suivant sur l'endroit ainsi: ............ merci

28.09.2020 - 16:28

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, effectivement, on continue avec l'aiguille circulaire 4 quand le col mesure 3 cm - la taille de l'aiguille est bien là maintenant, merci. Bon tricot!

28.09.2020 - 16:40

country flag Julie wrote:

I'm happy to see Scandinavian patterns modernized for sleeker fits.

20.08.2019 - 19:28

country flag Andrea wrote:

Traumhaft schön!

12.08.2019 - 08:55

country flag Kelly wrote:

Love to make this for winter.

09.08.2019 - 23:15