Daniele skrifaði:
Bonjour, j'ai beaucoup de mal pour que le motif soit régulier avec les augmentations j'aimerais savoir combien d augmentations il y a au rang 4 de A1A XL combien il y en a au rang 10. Merci beaucoup
26.04.2019 - 09:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Daniele, on répète 10 fois A.1 en largeur en XL, on augmente 2 m au rang 3 (=soit 2 augm x 10 = 20 augmentations au total) et 2 m au rang 9 (= 20 augmentations au total). Bon tricot!
02.05.2019 - 08:48
Anne skrifaði:
Hei. Er det en feil i runde 3 i mønsteret i A2.A? (Str S, M og L) Jeg må strikke en ekstra maske m gul i begynnelsen for at mønsteret skal bli riktig. Da blir det en for lite gul på slutten av pinnen. Jeg har talt flere ganger at maskeantallet er riktig og at jeg har strikket runde nr 2 riktig. Takk for svar. Mvh Anne
14.12.2018 - 23:15DROPS Design svaraði:
Hei Anne. Mønsteret stemmer. Runde 3 i A.2a strikkes slik: 1maske gul, 1 kast, 2 masker gul, ( = 4 gule masker på pinnen), 4 masker hvit (de 2 hvite maskene på forrige omgang er nå under de midterste 2 hvite maskene på denne omgangen. Når du har gjentatt A.2a 8-9-9 ganger, avslutter du med A.2b som før (=1 maske gul). God fornøyelse.
17.12.2018 - 11:06
Monica skrifaði:
Tror dere må sjekke oppskriften før dere svarer. Mønster A3 skal strikkes i overgangen for at hullraden skal fortsette. Står i oppskriften..
24.06.2018 - 10:08DROPS Design svaraði:
Hei Monica. Du har helt rett i at A.3 strikkes for at hullmønsteret i raglanen skal fortsette, beklager det. A.3 strikkes kun til bærestykke er ferdig. Så når du setter av masker til ermer og går over til bolen strikkes ikke lenger A.3 God fornøyelse.
25.06.2018 - 08:19
Monica skrifaði:
Heia, jeg lurer på om mønster A3 skal strikkes hele veien ned på bolen? Eller avsluttes det under armene?
21.06.2018 - 20:52DROPS Design svaraði:
Hei Monica, Det er ikke noe A.3 i denne oppskriften. A.1 og A.2 er mønsteret på bærestykket og resten av bolen er strikket i glattstrikk, bortsett fra stolpene. God fornøyelse!
24.06.2018 - 08:40Judy skrifaði:
For drops 187-11 what do the symbols in A.3 tell me to do?
10.06.2018 - 20:19DROPS Design svaraði:
Dear Judy, on row 1 and 3 in A.3 work 6 sts as follows: K2 tog, YO, K2, YO, slip 1 stitch as if to knit, knit 1, pass the slipped stitch over the knit stitch = 6 sts. On row 2 and 4 in A.3, purl all the 6 sts. Happy knitting!
11.06.2018 - 09:47
M. Bundsgaard skrifaði:
Mangler der ikke en udtagnings markering i række 3 i mønster A.2A? Str.xl, XXL og XXL?
27.05.2018 - 08:49DROPS Design svaraði:
Hej, jeg tror du har ret, den er sendt videre til design, vi skal se på den i løbet af nogle dage. Tak for info! :)
30.05.2018 - 13:18
Elizabeth Statmore skrifaði:
I love the happy, lemon curd construction and swirls of cream in the yoke!
19.12.2017 - 05:52
Tenna Olsen skrifaði:
Spring sunshine
14.12.2017 - 22:13
Golden Heart Jacket#goldenheartjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 187-11 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 100 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 7,7. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir kant með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagöt með ca 8-8½-8½-8-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-120-126-130-136 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum sinnepsgulur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-23-17-25-21-29 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 123-137-137-151-151-165 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur slétt í hvorri hlið fyrir kant að framan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 8-9-9-10-10-11 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.1A. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1 (ranga) er aukið út um 8-9-9-10-10-11 lykkjur jafnt yfir. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 163-182-182-201-201-220 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 8-9-9-10-10-11 mynstureiningar með 19 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. Þegar A.2 er lokið eru 219-245-245-271-271-297 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-12-12-14-14-14 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan með litnum sinnepsgulur til loka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-5-1-3-3-5 lykkjur jafnt yfir = 226-250-246-274-274-302 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur slétt í hvorri hlið. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Fyrsta prjónamerkið er sett eftir fyrstu 39-42-42-47-49-55 lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerkið er sett eftir næstu 40-46-44-48-44-46 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerkið er sett eftir næstu 68-74-74-84-88-100 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerkið er sett eftir næstu 40-46-44-48-44-46 lykkjur (= ermi). Nú eru 39-42-42-47-49-55 lykkjur eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Prjónið nú sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 11-12-16-16-19-19 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 314-346-374-402-426-454 lykkjur í umferð. Prjónið síðan eins og áður án útaukningar fyrir laskalínu, en til að rjúfa ekki gataumferð meðfram hverri laskalínu er A.3 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerkin eru staðsett mitt í A.3). Þegar stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm er næsta umferð prjónuð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 50-54-58-63-68-74 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 62-70-76-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-106-116-126-138 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 62-70-76-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), og prjónið eins og áður yfir 50-54-58-63-68-74 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-238-258-282-310 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 32-32-32-32-32-32 cm frá skiptingu er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið svona alls 9-12-15-15-16-17 sinnum í S: Í 8. hverri umferð, í M: Í 5. hverri umferð, í L: Í 4. hverri umferð, í XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, í XXL: Í 3. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í annarri og 3. hverri umferð = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 26-24-23-21-19-18 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 4 umferðir garðaprjón í hring. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldenheartjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.